Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Peningaþvætti, Hryðjuverk
Undirritunardagur
18. maí 2026
Útgáfudagur
29. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 577/2026
18. maí 2026
REGLUGERÐ um (9.) breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- 12. tölul. breytist sem hér segir:
Í stað orðanna „Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1393 er birt sem fylgiskjal II við reglugerð þessa.“ komi: Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 80 frá 18. desember 2025, bls. 358–359. - Við bætist nýr töluliður, 13. töluliður, svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/46 frá 3. desember 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um að bæta Rússlandi á skrá yfir áhættusöm þriðju lönd með annmarka í stefnu, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24, 9. apríl 2026, bls. 478–480. - Við bætist nýr töluliður, 14. töluliður, svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/83 frá 4. desember 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um að bæta Bólivíu og Bresku Jómfrúaeyjum á skrá yfir áhættusöm þriðju lönd sem hafa sett fram skriflega, pólitíska skuldbindingu háttsettra aðila til að ráða bót á þeim annmörkum sem greinst hafa og hafa útbúið aðgerðaáætlun með FATF og um að fjarlægja Búrkína Fasó, Malí, Mósambík, Nígeríu, Suður-Afríku og Tansaníu af þeirri skrá, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24, 9. apríl 2026, bls. 481–484.
2. gr.
Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal I við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal I við reglugerð þessa þannig breyttur.
3. gr.
Fylgiskjal II, viðvíkjandi birtingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1393 ásamt viðauka, fellur brott.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 18. maí 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026