Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál
Undirritunardagur
7. september 2026
Útgáfudagur
8. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 965/2026
7. september 2026
REGLUGERÐ
um að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri í tengslum við umferðarlagabrot.
1. gr. Markmið og gildissvið.
Markmið reglugerðarinnar er að auka umferðaröryggi vegfarenda með því að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins í tengslum við umferðarlagabrot, og þar með greiða fyrir beitingu viðurlaga, þegar brotin eru framin við akstur ökutækis sem er skráð í öðru aðildarríki en því þar sem brotið átti sér stað.
Reglugerðin tekur til eftirfarandi umferðarlagabrota:
- Hraðaksturs.
- Notkunar öryggis- og verndarbúnaðar í bifreiðum.
- Aksturs gegn rauðu umferðarljósi.
- Ölvunaraksturs.
- Aksturs undir áhrifum fíkniefna.
- Notkunar hlífðarhjálms við akstur bifhjóls eða torfærutækis.
- Óheimillar notkun sérreinar.
- Notkunar farsíma eða annars fjarskiptabúnaðar í akstri.
2. gr. Ferli fyrir upplýsingaskipti á milli aðildarríkja.
Samgöngustofa er landsbundinn tengiliður, sbr. l-lið 3. gr. og 4. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413, og veitir upplýsingar um skráð ökutæki í ökutækjaskrá stofnunarinnar komi fram beiðni um það frá til þess bærum aðila.
Þrátt fyrir 1. mgr. fyllir ríkislögreglustjóri út beiðni og framkvæmir leit samkvæmt 3. mgr. 4. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413. Ríkislögreglustjóri heldur utan um þau gögn sem tengjast beiðnum um upplýsingar sem sendar eru til aðildarríkja.
3. gr. Málsmeðferð vegna umferðarlagabrota sem reglugerðin tekur til.
Ríkislögreglustjóri og viðeigandi lögregluembætti fara með málsmeðferð og eftirfylgni vegna umferðarlagabrota sem tengjast umferðaröryggi í samræmi við 5. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413.
4. gr. Skýrslugjöf til Eftirlitsstofnunar EFTA.
Samgöngustofa skal útbúa skýrslu og senda til Eftirlitsstofnunar EFTA í samræmi við 6. gr. tilskipunar (ESB) 2015/413. Ríkislögreglustjóri skal veita Samgöngustofu nauðsynlegar upplýsingar fyrir skýrslugerðina á því formi að taka megi þær beint upp í skýrsluna.
5. gr. Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi:
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/413 frá 11. mars 2015 um að greiða fyrir upplýsingaskiptum yfir landamæri í tengslum við umferðarlagabrot sem tengjast umferðaröryggi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2025, 7. febrúar 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 609-625.
6. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 5. mgr. 2. gr. og 9. mgr. 4. gr. laga um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, og 5. mgr. 72. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 7. september 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. september 2026