Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
14. janúar 2013
Útgáfudagur
29. janúar 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 75/2013
14. janúar 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðanna „60 eininga diplómanámi á meistarastigi“ í 1. mgr. 3. gr. kemur: í kennslufræðihluta náms á meistarastigi.
2. gr.
Í stað orðanna „85 nemendur að hámarki“ í 1. málsl. 3. mgr. 5. gr. kemur: 95 nemendur að hámarki.
3. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræðasviða og deilda háskólans, gilda frá og með háskólaárinu 2013-2014 og eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.
Háskóla Íslands, 14. janúar 2013.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2013