Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

28. september 2021

Útgáfudagur

29. september 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1076/2021

28. september 2021

REGLUR

um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka samkvæmt 86. gr. d laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Gildi sveiflujöfnunarauka.

Fjármálafyrirtæki skulu viðhalda sveiflujöfnunarauka vegna innlendra áhættuskuldbindinga með eftirfarandi hætti:

  1. Gildi sveiflujöfnunarauka skal vera 0% af áhættugrunni til og með 28. september 2022.
  2. Frá og með 29. september 2022 skal gildi sveiflujöfnunarauka vera 2% af áhættugrunni.

Fjármálafyrirtæki skal einnig viðhalda sveiflujöfnunaraukanum á samstæðugrunni.

Við útreikning eigin fjár sem viðhalda skal vegna sveiflujöfnunarauka ber að líta til vegins meðaltals sveiflujöfnunarauka hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 1. mgr. 86. gr. d laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands og öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 227/2020 um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

Seðlabanka Íslands, 28. september 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Haukur C. Benediktsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 29. september 2021

Tengd mál