Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælastofnun
Málaflokkur
Neytendavernd, Afurðarheiti
Undirritunardagur
5. nóvember 2024
Útgáfudagur
27. nóvember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1330/2024
5. nóvember 2024
AUGLÝSING
frá Matvælastofnun um vernd afurðarheitisins „Íslenskt gin / Icelandic gin“ með vísan til landsvæðis.
Matvælastofnun hefur fallist á umsókn Samtaka íslenskra eimingarhúsa um að afurðarheitið „Íslenskt gin / Icelandic gin“ verði skráð sem verndað afurðarheiti með vísan til landsvæðis. Skráningin byggist á lögum nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
Auglýsing þessi um ákvörðun um skráningu afurðarheitis er birt í samræmi við 2. mgr. 16. gr. laga nr. 130/2014. Einnig er afurðarlýsingin birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, sbr. 14. gr. sömu laga.
Selfossi, 5. nóvember 2024.
F.h. Matvælastofnunar,
Viktor Stefán Pálsson.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 27. nóvember 2024