Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Ásahreppur
Undirritunardagur
26. ágúst 2026
Útgáfudagur
9. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 966/2026
26. ágúst 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ásahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur hreppsnefnd Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Miðás, L211096, byggingarreitur stækkaður og aukin byggingarheimild.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Miðáss, L211096. Breytingin felst í því að byggingarreitur sem auðkenndur er Ú1 á uppdrætti stækkar. Norðurmörk reitsins hliðrast um 15 metra í áttina að Kálfholtsvegi. Skilmálar sem gilda um reitinn eru rýmkaðir.
Samþykkt í hreppsnefnd Ásahrepps 29. júní 2026.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. ágúst 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. september 2026