Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
9. desember 2024
Útgáfudagur
20. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1561/2024
9. desember 2024
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 977/2018 um meistara- og doktorsnám í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. reglnanna:
- 5. málsl. 1. mgr. orðast svo: Forstöðumaður miðstöðvarinnar tekur þátt í stjórnarfundum og hefur atkvæðisrétt.
- Lokamálsliður 1. mgr. orðast svo: Verkefnisstjóri MLV er ritari stjórnar.
-
3.
mgr.
orðast
svo
í
heild
sinni:
Stjórn Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum skipar fimm manna námsstjórn að fengnum tillögum frá umsjónarkennurum þeirra námsgreina sem undir miðstöðina falla, þ.e. lýðheilsuvísindi, faralds- og líftölfræði. Í námsstjórn situr forstöðumaður miðstöðvarinnar sem jafnframt er formaður námsstjórnar, tveir fulltrúar fastra kennara og tveir fulltrúar þeirra deilda sem hverju sinni eru í mestu samstarfi í kennslu og leiðbeiningu nema. - 4. mgr. orðast svo í heild sinni:
Kennarar í skyldunámskeiðum og námskeiðum í bundnu vali sem tilheyra náminu, sem og umsjónarkennarar/aðalleiðbeinendur í meistara- og doktorsverkefnum, eru boðaðir á fundi námsstjórnar eftir þörfum og/eða óskum sem áheyrnarfulltrúar.
2. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 10. gr. reglnanna:
- Í stað tölunnar „30“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 60.
- Í stað orðsins „hlutanámi“ í 1. málsl. 2. mgr. koma orðin: fullu námi.
- Í stað orðsins „þrjú“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur orðið: fjögur.
3. gr.
Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af viðkomandi fræðasviðum, háskóladeildum og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 9. desember 2024.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 20. desember 2024