Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaeftirlitið

Málaflokkur

Neytendavernd, Lántökur

Undirritunardagur

18. júlí 2017

Útgáfudagur

20. júlí 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 666/2017

18. júlí 2017

REGLUR

um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda.

1. gr. Gildissvið og markmið.

Reglur þessar gilda um samninga um fasteignalán sem lánveitendur gera í atvinnuskyni við neytendur, sbr. 2. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda, með þeim takmörkunum sem greinir í 3. gr. sömu laga.

Markmið reglna þessara er að varðveita fjármálastöðugleika og treysta viðnámsþrótt lánveitenda og lántaka gagnvart ójafnvægi á húsnæðismarkaði.

2. gr. Skilgreiningar.

Í reglum þessum merkir:

  1. Fjármögnun kaupa á fyrstu fasteign: Veiting fasteignaláns til neytanda sem ekki hefur áður verið þinglýstur eigandi íbúðarhúsnæðis.
  2. Markaðsverð fasteignar: Virði fasteignar samkvæmt kaupsamningi eða samþykktu kauptilboði. Liggi kaupsamningur eða samþykkt kauptilboð ekki fyrir skal notast við fasteignamat eða brunabótamat Þjóðskrár Íslands eða verðmat löggilts fasteignasala, í samræmi við útlánareglur lánveitanda.
  3. Veðsetningarhlutfall: Hlutfall veðsetningar fasteignar af markaðsverði hennar, lýst sem hundraðshluta og reiknað út í samræmi við ákvæði 25.-26. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda og reglur þessar.

Hugtökin fasteign og fasteignalán ná í reglum þessum einungis til lánveitinga vegna íbúðarhúsnæðis, sbr. a-liður 4. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

3. gr. Hámark veðsetningarhlutfalls.

Hámark veðsetningarhlutfalls þegar fasteignalán er veitt skal vera 85% af markaðsverði fasteignar. Hámarkið skal þó vera 90% þegar um er að ræða fjármögnun kaupa á fyrstu fasteign. Ef aðeins hluti eigenda hefur ekki áður verið þinglýstur eigandi íbúðarhúsnæðis skal hámarkið ákvarðast með eftirfarandi hætti:

Jafna sem sýnir hámark veðsetningarhlutfalls

þar sem n er fjöldi eigenda sem ekki hafa áður verið þinglýstir eigendur íbúðarhúsnæðis og m er heildarfjöldi eigenda viðkomandi íbúðarhúsnæðis.

4. gr. Gagnaskil.

Lánveitandi skal senda Fjármálaeftirlitinu skýrslu til að unnt sé að sannreyna að kröfur samkvæmt reglum þessum séu uppfylltar. Skýrsluna skal senda á því formi og með þeirri tíðni sem stofnunin ákveður, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Í skýrslu skv. 1. mgr. skal lánveitandi m.a. tilgreina fastanúmer viðeigandi fasteignar.

5. gr. Viðurlög.

Brot á reglum þessum geta varðað stjórnvaldssektum, sbr. 57. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.

6. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 25.-26. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda, öðlast þegar gildi og gilda um samninga um fasteignalán sem gerðir eru eftir gildistöku þeirra.

Fjármálaeftirlitinu, 18. júlí 2017.

Unnur Gunnarsdóttir.

Jón Þór Sturluson.

B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2017

Tengd mál