Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Árborg

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Sveitarfélagið Árborg, Mannvirki

Undirritunardagur

3. desember 2025

Útgáfudagur

18. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1401/2025

3. desember 2025

GJALDSKRÁ

skipulags- og byggingardeildar Sveitarfélagsins Árborgar.

1. gr. Gjaldskylda.

Fyrir útgáfu leyfa, úttektir, vottorð, skjalagerð, yfirlestur gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Sveitarfélagið Árborg veitir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfisskyldra framkvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir skipulags- og byggingardeild Sveitarfélagsins Árborgar í umboði bæjarstjórnar gjöld skv. gjaldskrá þessari.

2. gr. Ráðstöfun gjalda.

Innheimt gjöld skv. gjaldskrá þessari skulu renna til greiðslu hluta kostnaðar sveitarfélagsins við þjónustu skipulags- og byggingardeildar.

3. gr. Byggingarleyfisgjald.

Greiða skal byggingarleyfisgjald fyrir útgáfu á byggingarleyfi sem byggingarfulltrúi hefur veitt. Innifalið í byggingarleyfisgjaldi er ein yfirferð aðaluppdrátta, yfirferð séruppdrátta, útgáfa byggingarleyfis, útsetning lóðar, útmæling fyrir greftri, útmæling og hæðarsetning fyrir undirstöðum, útmæling á lóðarmörkum við verklok, lögbundið byggingareftirlit og úttektir, fokheldisvottorð, vottorð um öryggis/lokaúttekt og skráning húss hjá Þjóðskrá Íslands.

Fjárhæð byggingarleyfisgjalds fer skv. eftirfarandi töflu:

a) Íbúðarhúsnæði:    
  Einbýlishús kr. 405.000
  Parhús, tvíbýlishús, raðhús á einni hæð, kr. 284.000
  Raðhús á fleiri en einni hæð, fjölbýlishús með þremur íbúðum kr. 269.000
  Fjölbýlishús, tvær hæðir, með fjórum íbúðum eða fleiri kr. 186.000
  Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri með fjórum íbúðum eða fleiri kr. 155.000
b) Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum:    
  Gólfflötur allt að 500 fermetrar kr. 414.000
  Gólfflötur 500–1.000 fermetrar kr. 672.000
  Gólfflötur 1.001–2.000 fermetrar kr. 879.000
  Gólfflötur 2.001–5.000 fermetrar kr. 1.035.000
  Gólfflötur stærri en 5.000 fermetrar kr. 1.345.000
c) Óeinangraðar geymslur, landbúnaðarbyggingar, hesthús og áþekk hús:    
  Gólfflötur að 99 fermetrum kr. 326.000
  Gólfflötur 100–199 fermetrar kr. 388.000
  Gólfflötur 200–499 fermetrar kr. 439.000
  Gólfflötur 500–799 fermetrar kr. 491.000
  Gólfflötur 800–1.999 fermetrar kr. 543.000
  Gólfflötur frá 2.000 fermetrum kr. 631.000
d) Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar:    
  Sólstofur, garðhús, bílgeymslur fyrir mest 2 bíla og gripahús kr. 191.000
  Viðbyggingar allt að 20 fermetrar kr. 155.000
  Viðbyggingar 20–100 fermetrar kr. 258.000
  Frístundahús/gestahús kr. 393.000
  Niðurrif kr. 103.000
  Meiri háttar breytingar á innra skipulagi húsa án fermetrastækkunar kr. 103.000
  Minni háttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa kr. 70.000
  Veitumannvirki, dæluhús og spennistöðvar 0–100 m², möstur kr. 155.000
  Viðbyggingar stærri en 100 fermetrar = sömu gjöld og af því húsnæði sem byggt er við.    
e) Gjöld vegna stöðuleyfa:    
  Stöðuleyfi, sbr. byggingarreglugerð 2.6.1, liðir a og b kr. 53.000
  Stöðuleyfi söluvagna og söluskúra 1–6 mánuðir kr. 72.000
  Stöðuleyfi söluvagna og söluskúra 7–12 mánuðir kr. 103.000
  Stöðuleyfi vegna frístandandi auglýsinga-, þjónustu- og auglýsingaskilta kr. 62.000

4. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

Greiða skal eftirtalin þjónustu- og leyfisgjöld fyrir þjónustu sem skipulags- og byggingardeild veitir umfram þá sem er innifalin í öðrum gjöldum. Embættið innheimtir afgreiðslugjald sem er óafturkræft, hvort sem umsókn er samþykkt eða henni synjað.

  Afgreiðslugjald skipulags- og byggingarmála kr. 26.000
  Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla kr. 22.000
  Afgreiðslugjald fyrir tilkynningarskyldar framkvæmdir kr. 73.000
  Hver endurskoðun aðaluppdrátta kr. 25.000
  Endurtekin öryggis og/eða lokaúttekt kr. 35.000
  Gjald fyrir hvert útkall ef verkið er ekki úttektarhæft kr. 14.000
  Endurnýjun leyfis án breytinga á teikningum kr. 25.000
  Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt kr. 35.000
  Umsögn vegna rekstrar- og starfsleyfa kr. 35.000
  Úttekt vegna leiguhúsnæðis kr. 35.000
  Eignaskiptayfirlýsingar, 2-4 eignir kr. 31.000
  Eignaskiptayfirlýsingar, 5-15 eignir kr. 46.000
  Eignaskiptayfirlýsingar, 16-49 eignir kr. 67.000
  Eignaskiptayfirlýsingar, 50 og fleiri kr. 87.000
  Staðfestingargjald vegna lóðaúthlutnar (óafturkræft) kr. 26.000
  Lóðarsamningur nýrrar lóðar kr. 36.000
  Lóðarsamningur vegna eldri lóðar eða breytingar á samningi kr. 36.000
  Útgáfa á nýju lóðarblaði kr. skv. reikningi
  Auka útmæling fyrir húsi/lóð sem ekki er innifalin í byggingarleyfisgjaldi kr. 77.000
  Stofnun lóðar í landskrá fasteigna kr. 23.000
  Stofnun fasteignanúmera kr. skv. reikningi
  Landnúmer, umfram eitt kr. 10.000
  Breyting lóða / nafnabreyting í landskrá fasteigna kr. 10.000
  Afskráning í fasteignaskrá kr. 21.000
  Tímagjald starfsmanna skipulags- og byggingarfulltrúa kr. 28.000
  Tímagjald starfsmanna skipulags- og byggingardeildar kr. 17.000

5. gr. Gjald fyrir skipulagsvinnu.

Vegna grenndarkynninga skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, framkvæmdaleyfa skv. 13. og 14. gr. og vegna deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, sbr. 2. mgr., sömu laga, skal innheimta gjöld sem hér segir:

a) Gjöld vegna aðalskipulagsbreytinga:  
  Breyting á gildandi aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skv. reikningi
  Umsýslukostnaður skv. reikn. og tímafjölda
  Auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. (að lágmarki ein auglýsing. Fleiri en ein innheimt skv. reikn.) kr. 93.000
  Kostnaður vegna hönnunargagna skv. reikningi
  Óveruleg breyting á gildandi aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.  
  Umsýslukostnaður skv. reikn. og tímafjölda
  Auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. (að lágmarki ein auglýsing. Fleiri en ein innheimt skv. reikn.) kr. 93.000
  Kostnaður vegna hönnunargagna skv. reikningi
b) Gjöld vegna deiliskipulagsbreytinga:  
  Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skv. reikningi
  Umsýslukostnaður skv. reikn. og tímafjölda
  Auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 (að lágmarki ein auglýsing. Fleiri en ein innheimt skv. reikn.) kr. 93.000
  Kostnaður vegna hönnunargagna skv. reikningi
  Breyting á gildandi deiliskipulagi, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skv. reikningi
  Umsýslukostnaður skv. reikn. og tímafjölda
  Auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 (að lágmarki ein auglýsing. Fleiri en ein innheimt skv. reikn.) kr. 93.000
  Kostnaður vegna hönnunargagna skv. reikningi
  Óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skv. reikningi
  Umsýslukostnaður skv. reikn. og tímafjölda
  Auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 (að lágmarki ein auglýsing. Fleiri en ein innheimt skv. reikn.) kr. 93.000
  Kostnaður vegna hönnunargagna skv. reikningi
c) Gjald vegna grenndarkynningar:  
  Grenndarkynning, sbr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kr. 38.000
d) Gjöld vegna framkvæmdaleyfis:  
  Framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 kr. 207.000
  Aðrar framkvæmdir kr. 124.000
  Umfangsmiklar framkvæmdir skv. samningi
  Minni háttar framkvæmdir kr. 38.000
  Eftirlit umfram eina ferð sem er innifalin í framkvæmdaleyfi, pr. ferð kr. 38.000
e) Önnur þjónustugjöld:  
  Afnotaleyfi, smærri verkefni kr. 20.000
  Afnotaleyfi, stærri verkefni kr. 46.000
  Förgunargjald vegna afsetningar á uppgreftri á jarðvegstipp pr./m² af bruttógrunnfleti húss kr. 978
  Sögun og fjarlæging á kantsteini pr. lm kr. 5.000
  Endursteyptur kantsteinn pr. lm kr. 11.000
  Færsla á ljóstastaur skv. reikningi
  Færsla á rafmagnskassa skv. reikningi

6. gr. Innheimta – lögveð.

Skipulags- og byggingardeild annast innheimtu gjalda skv. gjaldskrá þessari.

Gjöldum samkvæmt gjaldskránni fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi.

Komi til vanskila á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari skal byggingarfulltrúi synja um útgáfu vottorðs fyrir viðkomandi mannvirki.

7. gr. Gjalddagi.

Gjalddagi byggingarleyfisgjalds skv. 3. gr. er við útgáfu byggingarleyfis, sem tekur ekki gildi fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.

Frestur er ekki veittur á greiðslu byggingarleyfisgjalds þó svo að byggingarleyfishafi fresti byggingarframkvæmdum.

Gjalddagi afgreiðslu- og þjónustugjalda skv. 4. gr. er við útgáfu reiknings fyrir veitta þjónustu.

Gjalddagi gjalda skv. 5. gr. er sem hér segir:

Samkvæmt a-lið: Við samþykkt tillögu til auglýsingar.

Samkvæmt b-lið: Við samþykkt tillögu til auglýsingar eða grenndarkynningar.

Samkvæmt c-lið: Áður en grenndarkynning fer fram.

Samkvæmt d-lið: Við útgáfu leyfis, sem tekur ekki gildi fyrr en framkvæmdaleyfisgjald hefur verið greitt.

8. gr. Endurgreiðsla.

Falli byggingarleyfishafi frá notkun byggingarleyfis eða það fellur úr gildi er heimilt að endurgreiða 50% gjaldsins.

9. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi sem öðlast þegar gildi er samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar með heimild í 51. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda í Sveitarfélaginu Árborg nr. 1644/2024.

Þannig samþykkt í bæjarstjórn, 3. desember 2025.

Selfossi, 3. desember 2025.

Bragi Bjarnason bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 18. desember 2025

Tengd mál