Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Ölfus
Undirritunardagur
19. maí 2026
Útgáfudagur
20. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 510/2026
19. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Hafnarsands 2, stækkun tengivirkis.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 19. maí 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfus 2020-2036, sem samþykkt var í bæjarstjórn 30. október 2025.
Í breytingunni felst stækkun iðnaðarsvæðis I2 á Hafnarsandi úr 0,2 ha í 0,75 ha vegna fyrirhugaðs tengivirkis og heimildir fyrir byggingarmagn aukast úr 500 m² í 1.000 m².
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 19. maí 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026