Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Veiði - friðun
Undirritunardagur
24. ágúst 2026
Útgáfudagur
7. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 959/2026
24. ágúst 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum.
1. gr.
2. málsl. 5. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Árið 2026 er rjúpnaveiði heimil frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan hvers veiðisvæðis með eftirfarandi hætti:
| a. | Austurland | 23. október – 22. desember |
| b. | Norðausturland | 23. október – 1. desember |
| c. | Norðvesturland | 23. október – 17. nóvember |
| d. | Suðurland | 23. október – 17. nóvember |
| e. | Vesturland | 23. október – 1. desember |
| f. | Vestfirðir | 23. október – 24. nóvember |
Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 17. gr. laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 24. ágúst 2026.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Björn Helgi Barkarson.
B deild — Útgáfudagur: 7. september 2026