Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
28. janúar 2026
Útgáfudagur
11. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 129/2026
28. janúar 2026
REGLUR
um breytingu á reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009.
1. gr.
Á eftir orðunum „Magister theologiae“ í staflið b 1. mgr. 55. gr. koma orðin: Magister diaconiae.
2. gr.
Í stað tölunnar „15“ í 4. málsl. 1. mgr. 57. gr. reglnanna kemur talan: 10.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 84. gr. reglnanna:
- Orðið „fötlunarfræði“ í 5. mgr. fellur brott.
- 15. mgr. fellur brott.
- 16. mgr. verður 15. mgr., 17. mgr. verður 16. mgr., 18. mgr. verður 17. mgr., 19. mgr. verður 18. mgr., 20. mgr. verður 19. mgr., 21. mgr. verður 20. mgr., 22. mgr. verður 21. mgr. og 23. mgr. verður 22. mgr.
- Á eftir nýrri 22. mgr. bætist við ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir brottfall 16. mgr. 84. gr. reglna þessara, um meistaranám í fötlunarfræði, skulu þeir nemendur sem hófu nám í greininni við félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild háskólaárið 2025–2026 eða fyrr, eiga rétt á að ljúka námi sínu og brautskrást frá félagsvísindasviði. Þessi réttur gildir til og með brautskráningu kandídata í október 2027. Eftir þann tíma fer brautskráning allra nemenda í fötlunarfræði fram frá menntavísindasviði.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 90. gr. reglnanna:
- Orðin „umhverfis- og auðlindafræði og öðrum“ í 4. málsl. 1. mgr. falla brott.
- 2. málsl. 6. mgr. fellur brott.
- Á eftir 9. mgr. bætist við ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Sá sem lokið hefur meistaranámi í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti við lagadeild á grundvelli reglna nr. 1055/2006 ber próftitilinn LL.M (Master of Laws) in Natural Resources Law and International Environmental Law.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 92. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „kynjafræði“ í e-lið og i-lið 1. mgr. koma orðin: kynja- og margbreytileikafræði.
- Í stað orðsins „kynjafræði“ í 1. og 2. málsl. 14. mgr. koma orðin: kynja- og margbreytileikafræði.
- Í stað orðsins „kynjafræði“ í 1. málsl. 15. mgr. koma orðin: kynja- og
margbreytileikafræði. - Orðið „kynjafræði“ í 2. málsl. 15. mgr. fellur brott.
- Á eftir orðinu „viðfangsefni“ í 2. málsl. 15. mgr. koma orðin: kynja- og
margbreytileikafræða. - Á eftir 18. mgr. bætist við ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir nýtt heiti á námsleiðum í kynjafræði, sbr. e- og i-lið 92. gr. reglna þessara, skulu þeir nemendur sem hófu nám í greininni háskólaárið 2025–2026 eða fyrr, eiga rétt á að ljúka námi sínu og brautskrást með próf í kynjafræði.
6. gr.
Á eftir 7. málsl. 1. mgr. 94. gr. reglnanna kemur nýr málsliður, 8. málsl., svohljóðandi: Til MS-gráðu í markaðsstjórnun.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 111. gr. reglnanna:
- Á eftir orðinu „guðfræði“ í a-lið 1. mgr. koma orðin: og almennum trúarbragðafræðum.
- Stafliður b 1. mgr. orðast svo: Til mag. theol.-prófs: Guðfræði.
- Stafliður c 1. mgr. orðast svo: Til mag. diac.-prófs: Djáknafræði.
- Í 1. mgr. bætist við nýr stafliður, d-liður, svohljóðandi: Til MA-gráðu: Guðfræði og trúarbragðafræði.
- Núverandi d-liður verður e-liður.
- Í stað orðanna „embættisgráðu og meistaragráðu í djáknafræði“ í 1. málsl. 7. mgr. koma orðin: mag. theol.-prófs og mag. diac-prófs.
- Í stað orðsins „meistaragráðu“ í 12. mgr. koma orðin: MA-gráðu, mag. theol.-prófs og mag. diac.-prófs.
- 13. mgr. orðast svo: Að lokinni BA-gráðu í guðfræði getur stúdent sótt um nám á meistarastigi í þeim greinum sem kenndar eru við deildina.
- Orðið „þó“ í 14. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „til meistaragráðu“ í 14. mgr. koma orðin: á meistarastigi.
- Í stað orðsins „meistaragráðu“ í 1. málsl. 15. mgr. kemur orðið: MA-gráðu.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 112. reglnanna:
- Í stað orðsins „meistaragráðu“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. koma orðin: MA-gráðu, mag. theol.-prófs og mag. diac.-prófs.
- Í stað orðsins „gráðu“ í 2. og 3. málsl. 2. mgr. kemur orðið: námi.
9. gr.
Á eftir orðinu „menntavísindi“ í b-lið 1. mgr. 117. gr. reglnanna kemur orðið: jafnréttismenntun.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 122. reglnanna:
- Stafliður b í 1. mgr. fellur brott.
- Á eftir orðinu „nýsköpun;“ í c-lið 1. mgr. kemur orðið: fötlunarfræði.
- Orðið „matsfræði“ í c-lið 1. mgr. fellur brott.
- Stafliður d í 1. mgr. orðast svo: Til M.Ed.-gráðu: Sérkennslufræði og skóli margbreytileikans; menntastefnur; mat og umbætur; starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf; stjórnun og forysta í menntastofnunum.
- Á eftir orðinu „doktorsgráðu:“ í e-lið 1. mgr. koma orðin: Fötlunarfræði, Ph.D.
- Stafliður c 1. mgr. verður b-liður, d-liður verður c-liður og e-liður verður d-liður.
- Í stað orðsins „fjórar“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur orðið: fimm.
- Á eftir orðinu „menntunarfræði“ í 2. málsl. 3. mgr. koma orðin: námsbraut í fötlunarfræði.
- Í stað orðanna „menntastjórnun og matsfræði“ í 2. málsl. 3. mgr. koma orðin: menntun, forysta og fræðslustarf.
- Í stað tölunnar „40“ í 2. málsl. 11. mgr. kemur talan: 30.
- Á eftir orðunum „doktorsgráðu í“ í 14. mgr. koma orðin: fötlunarfræði og.
- 18. mgr. fellur brott.
- Í stað talnanna „180-240“ í 14. mgr. kemur talan: 210.
- 19. mgr. verður 18. mgr.
- 22. mgr. verður 19. mgr. og orðast svo: Lokapróf í skólastjórnun og
menntaforystu er sjálfstætt 60 eininga nám á meistarastigi. - Á eftir 21. mgr. kemur ný málsgrein, 22. mgr., svohljóðandi: Lokapróf í
stefnumótun og mati á vettvangi menntunar er sjálfstætt 60 eininga nám á meistarastigi. - Á eftir nýrri 22. mgr. kemur ný málsgrein, 23. mgr., svohljóðandi: Örnámið þættir í mótun menntunar, 30 einingar á meistarastigi, er hægt að fá metið inn í 60 eininga nám í stefnumótun og mati á vettvangi menntunar og/eða 120 M.Ed. nám í menntastefnum, mati og umbótum.
- Núverandi 23. mgr. verður 24. mgr. og núverandi 24. mgr. verður 25. mgr.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 128. reglnanna:
- Orðið „og“ í b-lið 1. mgr. fellur brott.
- Á eftir orðinu „líffræði“ í b-lið 1. mgr. koma orðin: og sjálfbærri framleiðslu í lagareldi.
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi: MS-nám í sjálfbærri framleiðslu í lagareldi er tveggja ára nám í samstarfi við Háskólann á Hólum, Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólasetur Vestfjarða. Nemendur brautskrást með sameiginlega prófgráðu, sbr. 62 gr. þessara reglna, frá þeim skólum sem þeir ljúka að minnsta kosti 30 ECTS einingum.
- Núverandi 2. mgr. verður 3. mgr., 3. mgr. verður 4. mgr., 4. mgr. verður 5. mgr., 5. mgr. verður 6. mgr., 6. mgr. verður 7. mgr., 7. mgr. verður 8. mgr., 8. mgr. verður 9. mgr., 9. mgr. verður 10. mgr. og 10. mgr. verður 11. mgr.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 132. gr. reglnanna:
- Á eftir orðinu „stærðfræði“ í b-lið 1. mgr. bætist við orðið: gagnavísindum.
- Stafliður c orðast svo: Til lokaprófs á meistarastigi í gagnagreiningu í samstarfi við aðrar háskóladeildir.
- 10. mgr. orðast svo: Nám til lokaprófs í gagnagreiningu er 60 eininga nám á meistarastigi (ISQF 6.1) sem leggur áherslu á gagnagreiningu.
13. gr.
Reglur þessar eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 28. janúar 2026.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.
Magnús Jökull Sigurjónsson.
B deild — Útgáfudagur: 11. febrúar 2026