Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Innflutningur

Undirritunardagur

14. apríl 2016

Útgáfudagur

15. apríl 2016

Leiðréttingar

18. apríl 2016

HTML-texti: Í dálkinum magntollur kr./kg í töflu í 2. gr., í stað „31“ komi: 316

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 314/2016

14. apríl 2016

REGLUGERÐ

um úthlutun á opnum tollkvótum á nautakjöti.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum á nautakjöti samkvæmt viðauka IV A og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. búvörulaga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Verðtollur Magntollur
% kr./kg
Tollskrárnr.: Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst:
Sneitt á annan hátt með beini:
0202.2001 Hryggir og hryggsneiðar 18.04. - 30.09.16 0 31
Beinlaust:
0202.3002 Lundir 18.04. - 30.09.16 0 658
0202.3003 Hryggvöðvar 18.04. - 30.09.16 0 489

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. september 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. apríl 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur Sigmundsson.

B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2016

Tengd mál