Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Grímsnes- og Grafningshreppur
Undirritunardagur
28. september 2026
Útgáfudagur
12. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1079/2026
28. september 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna skógræktar- og landgræðslusvæðis í landi Villingavatns.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. september 2026 breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. júlí 2026.
Í breytingunni felst skilgreining á tæplega 1.400 ha skógræktar- og landgræðslusvæði SL18 í landi Villingavatns vegna áforma um ræktun nytjaskógar og landgræðslu. Skilgreind eru opin svæði umhverfis Villingavatn (OP9) og meðfram vatnsbakka Þingvallavatns (OP10). Frístundabyggð F6 minnkar um 25 ha en fjöldi lóða er óbreyttur. Landbúnaðarsvæði L2 og óbyggt svæði ÓB1 minnka sömuleiðis.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. september 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 12. október 2026