Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Strandabyggð

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Strandasýsla

Undirritunardagur

17. desember 2025

Útgáfudagur

8. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1636/2025

17. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir gæludýraleyfi í Strandabyggð

1. gr.

Af hundum og köttum í Strandabyggð skal innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um gæludýrahald í Strandabyggð nr. 580/2022, sbr. 17. gr.

2. gr.

Við leyfisveitingu gæludýra skal innheimta skráningargjald sem hér segir:

Nýskráning hunds 16.020 kr.  
Nýskráning kattar 10.080 kr.  
Aukagjald fyrir nýtt merki 2.000 kr.  

Innifalið í skráningargjaldi er merki, árleg skoðun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélagsins. Ekki er innheimt eftirlitsgjald á skráningarári. Afsláttur af skráningargjaldi ef eigandi hefur sótt viðurkennt hundaþjálfunarnámskeið er 8.000 kr.

3. gr.

Af skráðum dýrum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald:

Hundagjald 11.760 kr.  
Kattagjald 7.285 kr.  

Innifalið í eftirlitsgjaldi er árleg skoðun og ormahreinsun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélagsins.

4. gr

Við hverja afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald, 16.240 kr. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu. Önnur og þriðja föngun hunds ber kostnað, 32.945 kr. Föngun hunds án leyfis ber kostnað, 38.490 kr. Við hverja afhendingu handsamaðs óskráðs kattar ber að innheimta gjald, 7.280 kr. Að auki skal eigandi greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.

5. gr

Undanþegnir eftirlitsgjaldi eru hundar sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og skal ljósrit af viðurkenningu um þjálfun þeirra afhendast við umsókn um niðurfellingu eftirlitsgjalds. Heimilt er að ógilda niðurfellingu eftirlitsgjalds sé viðkomandi hundur ekki lengur notaður til löggæslu- eða björgunarstarfa samkvæmt skilgreiningu þessari. Ekki er innheimt eftirlitsgjald af hundum sem að læknisráði eru notaðir til aðstoðar blindu fólki og fötluðu.

6. gr

Gjalddagi eftirlitsgjalds er 15. nóvember ár hvert og eindagi 15 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Verð í gjaldskrá þessari fylgir vísitölu neysluverðs eins og hún er 1. nóvember ár hvert.

7. gr

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn er sett með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Strandabyggð nr. 580/2022.

Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025. Gjaldskrá þessi tekur þegar gildi og fellur jafnframt brott gjaldskrá sama efnis nr. 1742/2024.

Strandabyggð, 17. desember 2025.

Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 8. janúar 2026

Tengd mál