Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
14. janúar 2013
Útgáfudagur
29. janúar 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 74/2013
14. janúar 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðsins „vísindasvið“ í 1. mgr. 8. gr., 1. mgr. 37. gr., 5. mgr. 77. gr. og 3. mgr. 78. gr. kemur, í viðeigandi beygingarfalli: vísinda- og nýsköpunarsvið.
2. gr.
Á eftir 3. mgr. 47. gr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Deildum er heimilt að krefjast þess að erlendir umsækjendur um nám, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, sýni fram á kunnáttu sína í ensku, annaðhvort með staðfestu vottorði um niðurstöðu úr TOEFL-prófi (Test of English as a Foreign Language) með lágmarkseinkunninni 79, eða með staðfestu vottorði um niðurstöðu úr IELTS-prófi (International English Language Testing System) með lágmarkseinkuninni 6,5. Vottorð þessa efnis skal þá vera hluti umsóknargagna í hverju tilviki. Geri deildir þessa kröfu skal það koma fram með skýrum hætti í kennsluskrá og í aðgangskröfum viðkomandi námsleiða, sem og í öðru upplýsingaefni um inntökuskilyrði í námið.
3. gr.
Aftan við 1. mgr. töluliðar 4 í 69. gr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Deildum er heimilt að krefjast þess að erlendir umsækjendur um nám til meistara- eða doktorsgráðu, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, sýni fram á kunnáttu sína í ensku, annaðhvort með staðfestu vottorði um niðurstöðu úr TOEFL-prófi (Test of English as a Foreign Language) með lágmarkseinkunninni 79, eða með staðfestu vottorði um niðurstöðu úr IELTS-prófi (International English Language Testing System) með lágmarkseinkuninni 6,5. Vottorð þessa efnis skal þá vera hluti umsóknargagna í hverju tilviki. Geri deildir þessa kröfu skal það koma fram með skýrum hætti í kennsluskrá og í aðgangskröfum viðkomandi námsleiða, sem og í öðru upplýsingaefni um inntökuskilyrði í námið.
4. gr.
28. mgr. 84. gr., um meistaranám í hagnýtri þjóðfræði, fellur niður.
5. gr.
Á eftir 6. mgr. 97. gr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Diplómanám á meistarastigi í kynfræði er 30 eininga þverfræðilegt nám að loknu bakkalárprófi. Námið er samstarfsverkefni þriggja deilda háskólans, þ.e. félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar, í samræmi við sérstakt samkomulag deildanna. Fagleg ábyrgð á náminu er í höndum námsstjórnar en hjúkrunarfræðideild hefur umsjón með því.
6. gr.
Fremst í upptalningu kennslugreina til MA-prófs í 1. málslið b-liðar 1. mgr. 109. gr., á undan orðinu „danska“, bætist: Ameríkufræði.
7. gr.
Aftast í upptalningu kennslugreina til B.Ed.-prófs í a-lið 1. mgr. 119. gr., á eftir orðunum „faggreinakennsla í grunnskóla“, bætist: kennslufræði verk- og starfsmenntunar.
8. gr.
2. mgr. 121. gr. orðast svo:
Uppeldis- og menntunarfræðideild er skipað í fjórar námsbrautir, sbr. ákvæði 21. gr. þessara reglna: Námsbraut í menntastjórnun og matsfræði, námsbraut í menntunarfræði og margbreytileika, námsbraut í námi fullorðinna og námsbraut í sálfræði í uppeldis- og menntavísindum.
9. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 14. janúar 2013.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2013