Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
16. október 2015
Útgáfudagur
30. október 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 978/2015
16. október 2015
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr.
Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætast eftirfarandi nýir töluliðir:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/640 frá 23. apríl 2015 um viðbótarskilyrði fyrir lofthæfi í tiltekinni starfrækslu og sem breytir reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 351.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/140 frá 29. janúar 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189 frá 10. júlí 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 17. september 2015, bls. 382.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 16. október 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
B deild - Útgáfud.: 30. október 2015