Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
16. september 2026
Útgáfudagur
1. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1048/2026
16. september 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Æskulýðs- og fræðslusjóð Félags flogaveikra, nr. 498/2013.
1. gr.
Samþykktar hafa verið eftirfarandi breytingar á skipulagsskrá sjóðsins:
1. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Sjóðurinn heitir Æskulýðs- og fræðslusjóður Félags flogaveikra og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Sjóðurinn stundar ekki atvinnurekstur.
4. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Stofnandi sjóðsins er Félag flogaveikra, kt. 610884-0679.
6. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur mönnum til 2 ára í senn. Formaður Félags flogaveikra skal vera formaður og stjórn Félags flogaveikra skipar einn úr sínum röðum og auk þess einn aðila utan félagsins í sjóðstjórnina.
Stjórnin stýrir öllum málefnum sjóðsins og kemur fram út á við fyrir hönd hans. Stjórnin skal sjá til þess að skipulag og starfsemi hans sé jafnan í réttu og góðu horfi. Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda sjóðinn.
Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvægar ákvarðanir má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið, sé þess nokkur kostur. Halda skal fundargerðabók um það sem gerist á stjórnarfundum.
8. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Framkvæmdastjóri Félags flogaveikra mun einnig teljast framkvæmdastjóri sjóðsins. Framkvæmdastjóri á rétt til setu á stjórnarfundum þótt hann sé ekki stjórnarmaður, en hann fer þó ekki með atkvæðisrétt. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur sjóðsins, sem þeir óska eftir og veita ber samkvæmt lögum.
9. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Skrifstofa Félags flogaveikra heldur utan um fjárreiður sjóðsins. Ársreikningur með yfirliti yfir eignir sjóðsins og framlög úr honum skulu fylgja ársreikningi Félags flogaveikra hverju sinni og skulu skoðunarmenn reikninga Félags flogaveikra yfirfara ársreikninginn.
11. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina sjóðinn annarri sjálfseignarstofnun eða leggja hann niður, þarf samþykki allra stjórnarmanna stofnunarinnar svo og aðalfundar Félags flogaveikra. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumanns. Komi til niðurlagningar sjóðsins skal hreinni eign hans varið til markmiðanna sem greint er frá í 3. gr. hér að ofan eða skyldra markmiða.
2. gr.
Ofangreind breyting á skipulagsskrá fyrir Æskulýðs- og fræðslusjóð Félags flogaveikra staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 16. september 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Martyna Julia Czubaj.
B deild — Útgáfudagur: 1. október 2026