ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2025/2469
frá 4. desember 2025
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2020/1999 um þvingunaraðgerðir
gegn alvarlegum mannréttindabrotum
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 7. desember 2020 samþykki ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2020/1999 (1).
2) Á grundvelli endurskoðunar viðaukans við ákvörðun (SSUÖ) 2020/1999 ætti að framlengja ráðstafanirnar, sem settar eru fram í 2. og 3. gr. þeirrar ákvörðunar, til 8. desember 2026 að því er varðar einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem eru á skrá í viðaukanum. Uppfæra ætti færslur 27 einstaklinga og 12 rekstrareininga á skrá í viðaukanum.
3) Því ætti að breyta ákvörðun (SSUÖ) 2020/1999 til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun (SSUÖ) 2020/1999 er breytt sem hér segir:
1) Í 1. mgr. 10. gr. fellur annar málsliður brott.
2) Viðaukanum er breytt í samræmi við viðaukann við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 4. desember 2025.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. DANIELSEN
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1999 frá 7. desember 2020 um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum (Stjtíð. ESB L 410 I, 7.12.2020, bls. 13, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2020/1999/oj).
VIÐAUKI
[Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/dec/2025/2469/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.]