Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur
Undirritunardagur
8. júlí 2024
Útgáfudagur
8. júlí 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 798/2024
8. júlí 2024
REGLUGERÐ
um (9.) breytingu á reglugerð nr. 849/2023, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024.
1. gr.
Í töflu í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar er gerð breyting svohljóðandi:
| Tegund | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar |
| 18. Íslensk sumargotssíld | 92.634 | 4.910 | 87.724 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 8. júlí 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 8. júlí 2024