Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalvíkurbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð
Undirritunardagur
20. maí 2026
Útgáfudagur
21. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 529/2026
20. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð.
Íbúðarsvæði vestan Böggvisbrautar – nýtt deiliskipulag.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti 20. janúar 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð vestan Böggvisbrautar á Dalvík, skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir nýrri íbúðarbyggð með allt að 65 íbúðum í eins til þriggja hæða húsum, þ.e. einbýlis-, fjölbýlis-, par-, rað- og keðjuhúsum. Lögð verður áhersla á gott aðgengi svæðisins með öruggum gönguleiðum, haganlega staðsetningu íbúðarhúsa m.t.t. skjóls og birtu og blágrænar ofanvatnslausnir.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 40.-42.gr. skipulagslaga og öðlast hún þegar gildi.
Dalvík, 20. maí 2026.
F.h. Dalvíkurbyggðar,
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 21. maí 2026