Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Landhelgismál
Undirritunardagur
27. október 2026
Útgáfudagur
27. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1141/2026
27. október 2026
REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð um veiðar á skollakopp (ígulkerum), nr. 930/2025.
1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 6. gr. eru allar veiðar á skollakopp bannaðar í Steingrímsfirði í Húnaflóa frá og með 28. október 2026 til og með 31. ágúst 2027.
2. gr.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í 5., 6., 8., 9. og 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997, 2., 6., 8. og 30. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996, og 16. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. ágúst 2027.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 27. október 2026.
F. h. r.
Hallveig Ólafsdóttir.
Skúli Kristinn Skúlason.
B deild — Útgáfudagur: 27. október 2026