Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
30. mars 2026
Útgáfudagur
31. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 6/2026
30. mars 2026
AUGLÝSING
um birtingu gerða á sviði verndarmála og fólksflutninga samkvæmt samningi milli Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi, nr. 3/2001.
Eftirtaldar gerðir á sviði verndarmála og fólksflutninga eru birtar í C-deild Stjórnartíðinda:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 frá 14. maí 2024 um stjórnun verndarmála og fólksflutninga, um breytingu á reglugerðum (ESB) 2021/1147 og (ESB) 2021/1060 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 604/2013. Birt eru ákvæði III., V. og VII. hluta reglugerðarinnar. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari.
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1358 frá 14. maí 2024 um stofnun evrópska fingrafaragrunnsins „Eurodac“ til að bera saman lífkennaupplýsingar í því skyni að stuðla að skilvirkri beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 og (ESB) 2024/1350 og tilskipunar ráðsins 2001/55/EB og til að staðfesta deili á ríkisborgurum þriðju landa og ríkisfangslausum einstaklingum sem dvelja þar ólöglega og um beiðnir löggæsluyfirvalda aðildarríkjanna og Löggæslusamvinnustofnunar Evrópusambandsins um samanburð við gögn í evrópska fingrafaragrunninum í löggæslutilgangi, um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1240 og (ESB) 2019/818 og um niðurfellingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 603/2013. Reglugerðin er birt að undanskildum 8.–11. gr. I. kafla, VII., VIII. og XIV. kafla hennar. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal 2 með auglýsingu þessari.
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1359 frá 14. maí 2024 um að taka á neyðarástandi og óviðráðanlegum atvikum á sviði fólksflutninga og verndarmála og um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1147. Birt eru ákvæði 12. og 13. gr., ásamt 1.–6. gr. að því marki sem þær tengjast 12. og 13. gr. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal 3 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2055 frá 2. október 2025 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 að því er varðar stjórnun hælismála og fólksflutninga og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1560/2003. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal 4 með auglýsingu þessari.
Birtingin er liður í undirbúningi þess að dómsmálaráðherra leggi fyrir Alþingi lagafrumvarp til innleiðingar á framangreindum gerðum í íslenskan rétt. Gerðirnar eru skuldbindandi fyrir Ísland að hluta, líkt og kveðið er á um í framangreindu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Dómsmálaráðuneytinu, 30. mars 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
C deild — Útgáfudagur: 31. mars 2026