Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip

Undirritunardagur

17. desember 2025

Útgáfudagur

19. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1413/2025

17. desember 2025

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 80/2013 um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa.

1. gr.

Við 2. mgr. 31. gr. reglugerðarinnar bætist e-liður, svohljóðandi:

framseld tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/811 frá 19. febrúar 2025 um breytingu á I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/59/EB að því er varðar upplýsingar sem á að senda til tilkynningarkerfa skipa, sem vísað er til í XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 216/2025 frá 19. september 2025.

2. gr.

Eftirfarandi breyting verður á I. viðauka reglugerðarinnar:

X-liður 4. gr. orðast svo:

X. ýmsar upplýsingar:

einkenni og áætlað rúmmál skipaolíu fyrir skip sem eru yfir 1000 brúttótonn að stærð,
siglingafræðileg staða,
eitt eða fleiri tryggingarskírteini, sem gefin eru út af tryggingarfélaginu og geymd um borð í skipinu, sem færa sönnur á að fyrir hendi sé trygging gegn sjóréttarkröfum, í samræmi við 171. gr. a siglingalaga nr. 34/1985, auk skírteina um einkaréttarlega ábyrgð sem gefin eru út í samræmi við:
  alþjóðasamninginn um einkaréttarlega ábyrgð vegna tjóns af völdum olíumengunar frá 1992, með áorðnum breytingum (samningurinn um einkaréttarlega ábyrgð frá 1992),
  alþjóðasamninginn um einkaréttarlega ábyrgð vegna tjóns af völdum mengunar sem stafar frá eldsneytisolíu skipa frá 2001, (samningurinn um eldsneytisolíu skipa frá 2001) og
  Naíróbísamþykktina um fjarlægingu skipsflaka frá 2007 (Naíróbísamþykktin frá 2007).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. mgr. 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 17. desember 2025.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 19. desember 2025

Tengd mál