Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

14. mars 2023

Útgáfudagur

15. mars 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 256/2023

14. mars 2023

REGLUR

um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka samkvæmt 85. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Gildi sveiflujöfnunarauka.

Fjármálafyrirtæki skulu viðhalda sveiflujöfnunarauka vegna innlendra áhættuskuldbindinga með eftirfarandi hætti:

  1. Gildi sveiflujöfnunarauka skal vera 2% af áhættugrunni til og með 15. mars 2024.
  2. Frá og með 16. mars 2024 skal gildi sveiflujöfnunarauka vera 2,5% af áhættugrunni.

Fjármálafyrirtæki skal einnig viðhalda sveiflujöfnunaraukanum á samstæðugrunni.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 85. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands og öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1076/2021, um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

Seðlabanka Íslands, 14. mars 2023.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Haukur C. Benediktsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 15. mars 2023

Tengd mál