Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Eyjafjarðarsveit
Málaflokkur
Skipulagsmál, Eyjafjarðarsýsla
Undirritunardagur
12. maí 2026
Útgáfudagur
28. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 563/2026
12. maí 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Eyjafjarðarsveit.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar á fundi sínum 30. apríl 2026 eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Deiliskipulag baðstaðar og hótels í landi Ytri-Varðgjár.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi baðstaðar og hótels í landi Ytri-Varðgjár. Núverandi hreinsistöð fráveitu fyrir baðstaðinn Skógarböðin annar ekki fráveitu frá fyrirhuguðu hóteli en samkvæmt gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir að fráveita frá Skógarböðunum og fyrirhuguðu hóteli verði veitt í nýja hreinsistöð fráveitu norðan þjóðvegar nr. 1, utan þess svæðis sem deiliskipulagið nær til. Nú er sú breyting gerð að gert verður ráð fyrir hreinsistöð með þriggja þrepa hreinsun innan skipulagssvæðisins og verður hún staðsett norðan aðkomuvegar að fyrirhuguðu hóteli þar sem skilgreint er plan sem er 5 x 25 m að stærð. Hreinsistöðin verður undir yfirborði en planið verður í sömu hæð og vegurinn og fyrirhugaður stígur norðan hans. Fráveitukerfið og hreinsivirkið skulu vera í samræmi við byggingarreglugerð, nr. 112/2012, og reglugerð um fráveitur og skólphreinsun, nr. 1450/2025. Frágangur hreinsivirkis skal vera vandaður í alla staði þannig að engin mengun stafi af. Aðstaða skal vera fyrir sýnatöku á fráveituvatni fyrir og eftir meðhöndlun í hreinsivirki. Afrennslið frá hreinsistöðinni verður leitt í röri frá hreinsistöðinni undir Eyjafjarðarbraut eystri og í árósa Eyjafjarðarár sem flokkast sem viðkvæmur viðtaki. Vegna þess skulu losunarmörk vera í samræmi við viðauka II í reglugerð nr. 1450/2025 m.a. hvað varðar heildarstyrk fosfórs og köfnunarefnis. Aðgengi að hreinsivirki skal vera þannig að auðvelt sé fyrir ökutæki að komast að til tæmingar og eftirlits. Þeir skilmálar eru settir að fráveituvatn frá eldhúsi skal forhreinsað í fitugildru áður en því er veitt í hreinsistöð. Fyrir utan þessar breytingar gildir áfram greinargerð deiliskipulags sem öðlaðist gildi 28. júní 2021.
Ofangreind tillaga hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. Eyjafjarðarsveitar, 12. maí 2026.
Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 28. maí 2026