Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

12. febrúar 2019

Útgáfudagur

27. febrúar 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 201/2019

12. febrúar 2019

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. 4. mgr. breytist og orðast svo:
    Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs í hjúkrunarfræði takmarkast við töluna 120.
  2. Á eftir 4. mgr. bætast við tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Samkeppnispróf eru haldin í desember ár hvert. Nemendum sem standast öll samkeppnispróf er raðað eftir veginni meðaleinkunn, frá þeirri hæstu til þeirrar lægstu, og er 120 nemendum með hæstu meðaleinkunnirnar boðið námspláss á vormisseri næsta árs.
    Ef færri en 120 nemendur ná öllum samkeppnisprófum er nemendum sem hafa fallið í einu prófi raðað eftir veginni meðaleinkunn, frá þeirri hæstu til þeirrar lægstu, og þeim nemendum sem hlotið hafa hæsta meðaleinkunn boðið námspláss á vormisseri 1. námsárs, þar til náð hefur verið þeim fjölda nemenda sem fjöldatakmörkun kveður á um.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi og verður beitt frá og með háskólaárinu 2019–2020.

Háskóla Íslands, 12. febrúar 2019.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. febrúar 2019

Tengd mál