Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjavíkurborg

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

3. desember 2025

Útgáfudagur

17. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1393/2025

3. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir gjöld á bílastæðum í Reykjavíkurborg.

1. gr. Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum.

Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum eru eftirfarandi:

  1. 660 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 1, hámarkstími 3 klukkustundir.
  2. 240 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 2.
  3. 240 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar, en 70 krónur á klukkustund eftir það, á gjaldsvæði 3.
  4. 240 krónur á klukkustund á gjaldsvæði 4.

2. gr. Gjöld fyrir bílastæðakort íbúa í Reykjavík.

Gjöld fyrir bílastæðakort íbúa er eftirfarandi:

Íbúakort 1:

  1. 1.500 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.
  2. 3.000 krónur á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.

Íbúakort 2:

  1. 20.000 krónur á mánuði.

3. gr. Gjald fyrir rekstraraðilakort.

Gjald fyrir rekstraraðilakort er eftirfarandi:

  1. 20.000 krónur á mánuði.

4. gr. Gjald fyrir deilibílakort.

Gjald fyrir deilibílakort er eftirfarandi:

  1. 1.500 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.

5. gr.Gildistaka og lagastoð.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, var samþykkt á fundum borgarstjórnar 4. nóvember og 2. desember 2025 og tekur gildi 1. janúar 2026. Á sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 970/2025.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 3. desember 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 17. desember 2025

Tengd mál