Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
28. desember 2012
Útgáfudagur
2. janúar 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 160/2012
28. desember 2012
LÖG
um breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum og tollalögum (úthlutun tollkvóta og fóðursjóður).
HANDHAFAR
VALDS
FORSETA
ÍSLANDS
samkvæmt
8.
gr.
stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra,
forseti
Alþingis
og
forseti
Hæstaréttar,
gjöra
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
vér
staðfest
þau
með
samþykki
voru:
I. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
framleiðslu,
verðlagningu
og
sölu
á
búvörum,
nr.
99/1993,
með
síðari
breytingum.
1.
gr.
31. gr. laganna fellur brott.
2. gr.
33. gr. laganna fellur brott.
3. gr.
Í
stað
1.–3.
mgr.
65.
gr.
A
laganna
koma
fjórar
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Ráðherra
skal
að
fengnum
tillögum
nefndar
skv.
87.
gr.
úthluta
tollkvótum
fyrir
landbúnaðarvörur
samkvæmt
viðaukum
IVA
og
B
við
tollalög
á
þeim
tollum
sem
tilgreindir
eru
í
12.
gr.
tollalaga
þegar
framboð
á
viðkomandi
vöru
er
ekki
nægjanlegt
á
innanlandsmarkaði
eða
sýnt
þykir
að
það
verði
ekki
nægjanlegt
á
næstu
þremur
mánuðum.
Framboð
telst
ekki
nægjanlegt,
sbr.
1.
mgr.,
ef
viðkomandi
vara
er
ekki
til
stöðugrar
dreifingar
eða
áætla
má
að
hún
verði
það
ekki
í
að
lágmarki
90%
magni
af
eftirspurn
a.m.k.
tveggja
leiðandi
ótengdra
dreifingaraðila
og
er
ekki
fáanleg
frá
a.m.k.
tveimur
framleiðendum.
Innflutningstímabil
tollkvóta
skv.
1.
mgr.
getur
verið
allt
að
eitt
ár
í
senn
en
skal
þó
ekki
vera
styttra
en
einn
mánuður.
Tollkvóti
í
viðauka
IVB
sem
við
úthlutun
ber
lægri
toll
en
kveðið
er
á
um
í
2.
mgr.
12.
gr.
tollalaga
kemur
til
frádráttar
tollkvóta
í
viðauka
IIIB.
Skerðir
þá
kvótinn
ekki
úthlutunarheimildir
samkvæmt
þessari
grein.
4. gr.
Eftirfarandi
breytingar
verða
á
82.
gr.
laganna:
a.
Orðið
„Matvælastofnun“
í
2.
mgr.
fellur
brott.
b.
Í
stað
orðanna
„frá
100–5.000
kr.,
eftir
því
sem
nánar
er
ákveðið
í
reglugerð“
í
2.
mgr.
kemur:
sem
mega
nema
20.000–100.000
kr.
fyrir
hvern
dag.
c.
Við
bætist
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Ráðherra
skal
taka
ákvörðun
um
álagningu
dagsekta
skv.
2.
mgr.
að
fenginni
tillögu
þess
aðila
sem
heimilt
er
að
safna
upplýsingum
samkvæmt
lögum
þessum.
Dagsektir,
að
frádregnum
kostnaði
við
álagningu
og
innheimtu,
renna
í
ríkissjóð
og
má
gera
aðför
til
fullnustu
þeirra
án
undangengins
dóms
eða
sáttar.
5. gr.
Eftirfarandi
breytingar
verða
á
87.
gr.
laganna:
a.
Inngangsmálsliður
2.
mgr.
orðast
svo:
Nefndin
skal
gera
tillögur
til
ráðherra
um
eftirgreind
atriði.
b.
Við
3.
mgr.
bætist
nýr
málsliður,
svohljóðandi:
Öllum
þeim
sem
búa
yfir
upplýsingum
sem
að
framan
greinir
ber
skylda
til
að
veita
nefndinni
upplýsingar
sé
þess
óskað.
c.
Við
bætist
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Áður
en
nefndin
gerir
tillögur
skv.
2.
mgr.
skal
hún
senda
Bændasamtökum
Íslands,
Félagi
atvinnurekenda,
Samtökum
verslunar
og
þjónustu
og
Neytendasamtökunum
drög
að
tillögunum.
Tillögudrögunum
skal
fylgja
stuttur
rökstuðningur.
Nefndinni
er
heimilt
að
gera
tillögurnar
fjórum
dögum
síðar
hafi
henni
ekki
borist
yfirlýsingar
studdar
gögnum
þar
sem
leitt
er
í
ljós
að
tillögur
nefndarinnar
séu
byggðar
á
röngum
eða
misvísandi
upplýsingum.
II. KAFLI Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
6. gr.
Við 1. mgr. 7. gr. laganna bætist nýr töluliður sem orðast svo: Af fóðurvörum og hráefnum í þær í 10., 11., 12., 17. og 23. kafla tollskrár í viðauka I til framleiðslu landbúnaðarafurða.
7. gr.
Eftirfarandi
breytingar
verða
á
12.
gr.
laganna:
a.
Á
eftir
orðinu
„vöruliðar“
í
3.
málsl.
1.
mgr.
kemur:
miðað
við
SDR/kg.
b.
Við
2.
mgr.
bætist
nýr
málsliður,
svohljóðandi:
Þá
skal
tollur
á
vörur
í
vöruliðum
0702–
0709
í
7.
kafla
tollskrár,
að
undanskildum
vörum
sem
eru
taldar
upp
í
viðauka
V,
vera
10%.
c.
Í
stað
3.
mgr.
koma
tvær
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Í
viðaukum
IVA
og
B
eru
tilgreindir
tollkvótar
sem
ráðherra
er
fer
með
málefni
landbúnaðar
úthlutar
skv.
65.
gr.
A
laga
um
framleiðslu,
verðlagningu
og
sölu
á
búvörum.
Tollur
á
þær
vörur
sem
eru
fluttar
inn
samkvæmt
tollkvótum
sem
tilgreindir
eru
í
viðaukum
IVA
og
B
skal
lagður
á
sem
magntollur
og
vera
mismunur
ríkjandi
heildsöluverðs
samkvæmt
upplýsingum
fengnum
frá
a.m.k.
tveimur
leiðandi
ótengdum
dreifingaraðilum
og
innflutningsverðs
samkvæmt
meðaltali
tollverðs
síðastliðinna
sex
mánaða.
Hafi
vara
ekki
verið
flutt
til
landsins
á
síðustu
sex
mánuðum
er
heimilt
að
miða
innflutningsverð
við
viðskiptaverð
vörunnar
í
útflutningslandi
að
viðbættum
flutnings-
og
vátryggingarkostnaði.
Þrátt
fyrir
ákvæði
3.
mgr.
skulu
við
innflutning
á
vörum
í
viðauka
V,
á
grundvelli
tollkvóta
samkvæmt
viðaukum
IVA
og
B,
gilda
þeir
tolltaxtar
sem
þar
eru
tilgreindir.
Úthlutun
skal
takmarkast
af
heildartollkvótum
í
tonnum
sem
tilgreindir
eru
í
viðaukum
IVA
og
B.
8. gr.
Við lögin bætist nýr viðauki, viðauki V, svohljóðandi:
| Vara | Verðtollar | Magntollar | ||
| Tollskrárnr. | % | kr./kg | ||
| 0208.9003 | Rjúpur, frystar | 0 | 0 | |
| 0208.9007 | Beinlaust hreindýrakjöt, fryst | 0 | 878 | |
| Hreindýrakjöt með beini, fryst: | ||||
| 0208.9008 | Skrokkar og hálfir skrokkar | 0 | 0 | |
| 0208.9009 | Annað | 0 | 878 | |
| Frjóegg til útungunar: | ||||
| 0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus | 0 | 0 | |
| 0407.1900 | Önnur | 0 | 0 | |
| 0408.1901 | Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í ≥ 5 kg umbúðum | 0 | 39 | |
| 0408.9901 | Soðin egg í ≥ 10 kg umbúðum | 0 | 91 | |
| 0603.1202 | Innflutningur á öðrum tíma (nellikur) | 0 | 48 | kr./stk. |
| 0603.1905 | Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísarfuglablóm) | 0 | 48 | kr./stk. |
| 0701.9001 | Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri | 0 | 0 | |
| 0701.9009 | Annars (kartöflur) | 0 | 0 | |
| 0703.9001 | Blaðlaukur | 0 | 0 | |
| 0704.1000 | Blómkál og hnappað spergilkál | 0 | 0 | |
| 0704.9001 | Hvítkál | 0 | 0 | |
| 0704.9002 | Rauðkál | 0 | 0 | |
| 0704.9003 | Kínakál | 0 | 0 | |
| 0704.9004 | Spergilkál (Brassica oleracea var. Ita.) | 0 | 0 | |
| 0706.1000 | Gulrætur og næpur | 0 | 0 | |
| 0706.9001 | Gulrófur | 0 | 0 | |
| 0706.9002 | Rauðrófur | 0 | 0 | |
| 0709.4000 | Selja, önnur en seljurót | 0 | 0 | |
| 0709.5100 | Sveppir af ættinni Agaricus | 0 | 80 |
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Eftirstöðvar fóðursjóðs skv. 31. og 33. gr. laga nr. 99/1993 við gildistöku laga þessara skulu renna í ríkissjóð.
Gjört í Reykjavík, 28. desember 2012.
| Jóhanna Sigurðardóttir. |
Ásta
R.
Jóhannesdóttir. (L. S.) |
Markús Sigurbjörnsson. |
Steingrímur J. Sigfússon.
A deild - Útgáfud.: 2. janúar 2013