Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Reykjavík, Sorphreinsun

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

16. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1374/2025

1. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjaldskrá þessari.

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
A.1 120 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 49.800
A.2 120 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 59.800
A.3 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 70.200
A.4 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 80.200
A.5 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 105.300
A.6 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 115.300
A.7 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 193.050
A.8 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 220.550
    kr./losun
A.9 3 m³ gámur 15.300
A.10 4 m³ gámur 18.800
A.11 5 m³ gámur 22.100

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
B.1 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 7.500
B.2 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 10.700
B.3 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 11.250
B.4 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 14.450
B.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 20.625
B.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 29.425
    kr./losun
B.7 3 m³ gámur 300
B.8 4 m³ gámur 350
B.9 5 m³ gámur 400

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
C.1 240 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 5.900
C.2 240 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 9.100
C.3 360 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 8.850
C.4 360 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 12.050
C.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 16.225
C.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 25.025
    kr./losun
C.7 3 m³ gámur 300
C.8 4 m³ gámur 300
C.9 5 m³ gámur 300

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, matarleifar:

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
D.1 140 l tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 17.900
D.2 140 l tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 27.900
    kr./losun
D.3 3 m³ gámur 4.600

Gjald fyrir tvískiptar tunnur:

Gjaldflokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
E.1 240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan heimilisúrgang (60%) og matarleifar (40%) sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 52.000
E.2 240 l tvískipt tunna fyrir blandaðan heimilisúrgang (60%) og matarleifar (40%) sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 62.000
E.3 240 l tvískipt tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) sótt minna en 15 metra frá hirðubíl 10.000
E.4 240 l tvískipt tunna fyrir pappírsefni (60%) og plast (40%) sótt meira en 15 metra frá hirðubíl 13.200

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endurvinnslu úrgangs. Gjaldi fyrir gáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun eða endurvinnslu.

Aðrir gjaldaliðir.

Merktir pokar fyrir tilfallandi umfram blandaðan úrgang: 2.630 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun tunna og kerja: 16.050 kr./ferð auk 3.220 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun djúpgáma: 16.050 kr./ferð auk losunargjalds djúpgáma hér að framan.

Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 22.800 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 4.300 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

3. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

4. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari gjaldskrá.

Gjaldskrá þessi er samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkurborgar með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 2. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og öðlast gildi 1. janúar 2026. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg nr. 1383/2024.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025

Tengd mál