Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalabyggð
Málaflokkur
Landbúnaður, Heilbrigðiseftirlit, Dalasýsla
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
20. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1692/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð.
1. gr.
Sveitarstjórn Dalabyggðar leggur á gjald til að mæta kostnaði við söfnun og eyðingu dýraleifa í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og samþykkt nr. 845/2021 um meðhöndlun úrgangs í Dalabyggð.
2. gr.
Förgunargjaldið byggir á fjölda búfjár á lögbýlum í sveitarfélaginu miðað við búfjárskýrslur Matvælastofnunar og verður innheimt með fasteignagjöldum. Miðað er við að dýrahræ séu sótt til bænda og annarra búfjáreigenda með skráðan bústofn og komið í viðeigandi meðhöndlun. Farin verður ein ferð í viku að jafnaði.
3. gr.
Gjald vegna hirðingar og eyðingar á dýrahræjum er innheimt af bújörðum, hesthúsum og öðrum aðilum sem eru með skráðan bústofn og er árlega sem hér segir (miðað við hausttölur ár hvert, upplýsingar frá atvinnuvegaráðuneyti). Eitt hross reiknast sem þrjár ær og einn nautgripur sem fimm ær.
| a. | Sauðfé < 20 | 24.610 kr. |
| b. | Sauðfé 21–40 | 70.051 kr. |
| c. | Sauðfé 41–80 | 92.795 kr. |
| d. | Sauðfé > 80 |
110.991 kr. |
4. gr.
Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 11. desember 2025 staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð nr. 16/2025.
Búðardal, 15. desember 2025.
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 20. janúar 2026