Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

28. september 2026

Útgáfudagur

13. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1091/2026

28. september 2026

REGLUR

um útlánaáhættu fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Útreikningur á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu.

Fjármálafyrirtæki sem skylt er að reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu skal fylgja ákvæðum reglugerða (ESB) sem tilgreindar eru í 3. gr.

Við mat á mikilvægi lánaskuldbindingar sem er komin fram yfir gjalddaga skal fjármálafyrirtæki miða bæði við 1% af heildarskuldbindingum lántaka og 15.000 kr. fyrir smásöluáhættuskuldbindingar og 75.000 kr. fyrir aðrar skuldbindingar í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/171, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 183/2014 frá 20. desember 2013 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina útreikningana á sértækum og almennum leiðréttingum á útlánaáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 285-288.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/585 frá 18. desember 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um tilgreiningu á áhættutímabili tryggingarfjár, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 254-256.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1646 frá 13. september 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar aðalvísitölur og viðurkenndar kauphallir í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 373-383.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/171 frá 19. október 2017 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 um tæknilega eftirlitsstaðla fyrir mikilvægismörkin fyrir lánaskuldbindingar sem komnar eru fram yfir gjalddaga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19 frá 9. mars 2023, bls. 33, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðuninni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 21. mars 2024, bls. 10-14.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/931 frá 1. mars 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina aðferðina til að bera kennsl á afleiðuviðskipti með einn eða fleiri mikilvæga áhrifaþætti áhættu með tilliti til 5. mgr. 277. gr., formúluna til að reikna út eftirlitsdeltastuðul kaup- og söluréttar sem tengdur er við vaxtaáhættuflokk og aðferðina til að ákvarða hvort viðskipti séu gnótt- eða skortstaða í helsta áhrifaþætti áhættu eða í mikilvægasta áhrifaþættinum í tilteknum áhættuflokki að því er varðar a- og b-lið 3. mgr. í 279. gr. a. í staðalaðferð fyrir útlánaáhættu mótaðila, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 141/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 94. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 30. mars 2023, bls. 542-547.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/954 frá 12. maí 2022 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) nr. 183/2014 að því er varðar tilgreiningu á útreikningi á sértækum og almennum leiðréttingum á útlánaáhættu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 281/2022 frá 28. október 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 35 frá 4. maí 2023, bls. 8. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. apríl 2024, bls. 314-315.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1650 frá 24. mars 2022 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í reglugerð (ESB) 2016/1646 að því er varðar aðalvísitölur og viðurkenndar kauphallir í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2023 frá 17. mars 2023 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 77 frá 26. október 2023, bls. 46.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/511 frá 24. nóvember 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir útreikning fjárhæðar áhættuveginnar áhættuskuldbindingar sjóða um sameiginlega fjárfestingu samkvæmt umboðsaðferðinni, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2023 frá 13. júní 2023 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 87 frá 30. nóvember 2023, bls. 27.
  9. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/206 frá 5. október 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru tegundir þátta sem taka skal til greina við mat á tilhlýðileika áhættuvoga fyrir áhættuskuldbindingar sem tryggðar eru með fasteignum og þau skilyrði sem taka skal tillit til við mat á því hversu viðeigandi lágmarksgildi fyrir tap að gefnum vanefndum er fyrir áhættuskuldbindingar sem tryggðar eru með fasteignum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 282/2023 frá 27. október 2023 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 16. maí 2024, bls. 59.
  10. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/855 frá 28. janúar 2025 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem settir eru fram í framseldri reglugerð (ESB) 2021/931 að því er varðar formúluna til að reikna út eftirlitsdeltastuðul kaup- og söluréttar sem tengdur er við hrávöruáhættu í flokki 1, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 209/2025 frá 19. september 2025 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3 frá 15. janúar 2026, bls. 43.
  11. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/807 frá 10. mars 2026 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem settir eru fram í framseldri reglugerð (ESB) 2023/206 að því er varðar uppfærslu á tilvísunum og samræmingu hugtaka í kjölfar breytinga á reglugerð (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 271/2026 frá 25. september 2025.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum um fjármálafyrirtæki vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1650, 2023/511, 2023/206, 2025/855 og 2026/807 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R1650, birt í OJ deild L, nr. 249, þann 27. september 2022, bls. 1-9;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32023R0511, birt í OJ deild L, nr. 71, þann 9. mars 2023, bls. 1-3;
  3. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32023R0206, birt í OJ deild L, nr. 29, þann 1. febrúar 2023, bls. 1-5;
  4. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32025R0855, birt í OJ deild L, 2025/855, þann 5. maí 2025;
  5. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32026R0807, birt í OJ deild L, 2026/807, þann 7. júlí 2026.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 5. mgr. 78. gr. a og 28., 31., 32., 39., 41., 47., 55. og 56. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur um útlánaáhættu fjármálafyrirtækja, nr. 1590/2025.

Seðlabanka Íslands, 28. september 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Linda Kolbrún Björgvinsdóttir

framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 13. október 2026

Tengd mál