Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
23. október 2026
Útgáfudagur
6. nóvember 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1184/2026
23. október 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.
1. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
3.80 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1333 frá 15. júní 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.80.
3.81 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1845 frá 23. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.81.
4.88 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1336 frá 15. júní 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.88.
4.89 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1844 frá 23. júlí 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.89.
2. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 23. október 2026.
Daði Már Kristófersson.
Martin Eyjólfsson.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/1333
frá 15. júní 2026
um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða
sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 17. mars 2014 samþykkti ráðið ákvörðun 2014/145/SSUÖ (1).
2) Til að tryggja fjölbreytni í aðfangakeðjum fyrir rekstraraðila Sambandsins þykir rétt að innleiða nýjar, tímabundnar undanþágur frá frystingu eigna og banninu við að gera fjármuni eða efnahagslegan auð aðgengilegan tilgreindri rekstrareiningu, sem gerir kleift að vinda ofan af starfsemi, samningum og öðru samkomulagi sem gerð hafa verið við þá rekstrareiningu, sem og að iðnaðurinn geti keypt mikilvæga íhluti sem hún framleiðir. Gert er ráð fyrir að rekstraraðilar samþykki og innleiði viðeigandi áætlanir um fjölbreytni áður en sú undanþága rennur út, með það að markmiði að gera kleift að skipta yfir í aðrar birgðalindir.
3) Því ætti að breyta ákvörðun 2014/145/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Eftirfarandi málsgrein bætist við í 2. gr. ákvörðunar 2014/145/SSUÖ:
„36. Þrátt fyrir undanþágur í 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður, sem tilheyra rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmer 692 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í viðaukanum við þessa ákvörðun, verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur þessari rekstrareiningu, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að slíkir fjármunir og efnahagslegur auður séu algerlega nauðsynleg:
a) til að binda enda á, fyrir 31. desember 2026, starfsemi, samninga eða önnur samkomulög sem gerð hafði verið við rekstrareininguna sem skráð er undir færslunúmeri 692 fyrir 23. apríl 2026, að því tilskildu að affrystingu eða aðgangi að fjármunum eða efnahagslegum auð sé lokið fyrir 31. desember 2026, eða
b) vegna kaupa iðnaðarins á mikilvægum íhlutum sem sú rekstrareining framleiðir og samsvarandi greiðslna til hennar með það fyrir augum að gera kleift að skipta yfir í aðra birgja, að því tilskildu að affrystingu eða aðgangi að fjármunum eða efnahagslegum auði sé lokið fyrir 16. mars 2027.“
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Lúxemborg 15. júní 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
K. KALLAS
(1) Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj).
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/1845
frá 23. júlí 2026
um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða
sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 17. mars 2014 samþykkti ráðið ákvörðun 2014/145/SSUÖ (1).
2) Í ályktun sinni ES-11/7, sem samþykkt var 24. febrúar 2025, minnti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á þörfina á að viðeigandi ályktanir þess, sem samþykktar hafa verið til að bregðast við árásum gegn Úkraínu, komi að fullu til framkvæmda, einkum krafa þess um að Rússneska sambandsríkið dragi allan herafla sinn tafarlaust, að öllu leyti og skilyrðislaust, til baka frá yfirráðasvæði Úkraínu innan alþjóðlega viðurkenndra landamæra hennar og krafa þess um að Rússneska sambandsríkið hætti tafarlaust hernaðarátökum gegn Úkraínu, einkum árásum á borgara og borgaraleg skotmörk.
3) Svo lengi sem ólögmætar aðgerðir Rússneska sambandsríkisins halda áfram að brjóta gegn grundvallarreglum þjóðaréttar, þ.m.t. einkum banninu við valdbeitingu sem er að finna í 4. mgr. 2. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna, eða alþjóðlegum mannúðarrétti þykir rétt að láta allar ráðstafanir sem Sambandið hefur gert gilda áfram og gera viðbótarráðstafanir ef nauðsyn krefur.
4) Í ljósi áframhaldandi og stigvaxandi árása Rússneska sambandsríkisins á Úkraínu, einkum nýlegrar hrottalegrar hernaðaraðgerðar sem beinist vísvitandi gegn borgaralegum innviðum, þ.m.t. orkuverum, vatnsveitum og heilbrigðisstofnunum, sem hefur valdið almennum borgurum miklum þjáningum og sem miðar að því að grafa undan viðnámsþrótti Úkraínu, telur ráðið nauðsynlegt að samþykkja frekari þvingunaraðgerðir.
5) Einkum telur ráðið að bæta ætti 48 aðilum og 168 rekstrareiningum á skrána yfir aðila, rekstrareiningar og stofnanir sem þvingunaraðgerðir taka til, sem sett er fram í viðaukanum við ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
6) Rétt þykir að taka upp undanþágu frá frystingu fjármuna og banni við því að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega sumum sértækum, tilgreindum rekstrareiningum. Slíkri undanþágu er ætlað að heimila greiðslu sem þeim einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í viðaukanum, eða vátryggingaraðila, ber að inna af hendi vegna áhættu sem þau bera ábyrgð á.
7) Einnig þykir rétt að taka upp viðbótarundanþágur frá frystingu fjármuna og banni við því að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega sumum sértækum, tilgreindum aðilum. Þessar undanþágur eru þröngt afmarkaðar til að gera rekstraraðila í Sambandinu kleift að uppfylla tiltekna fyrirliggjandi samningsbundna skyldu sem leiðir af samningi sem gerður var árið 2015, áður en viðeigandi þvingunaraðgerðir voru teknar upp. Þessar undanþágur grafa ekki undan almennum markmiðum ákvörðunar 2014/145/SSUÖ og reglugerðar ráðsins (ESB) nr. 269/2014 (2) og eru eingöngu rökstuddar með því að nauðsynlegt sé að bregðast við ófyrirséðum neikvæðum afleiðingum fyrir rekstraraðila í Sambandinu.
8) Rétt þykir að taka upp undanþágu frá frystingu eigna og banni við að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega tilgreindum aðilum svo að unnt sé að halda áfram starfrækslu nauðsynlegra flutninga með járnbrautum milli Rússlands og Sambandsins, í gegnum Sambandið og innan Rússlands. Upptaka undanþágunnar hefur ekki áhrif á mat á því, í hverju tilviki fyrir sig, hvort rekstrareiningar sem eru ekki tilgreindar séu undir stjórn tilgreindra aðila.
9) Einnig þykir rétt að taka upp undanþágu frá frystingu eigna og banni við því að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega tilteknum tilgreindum rekstrareiningum svo að unnt sé að starfrækja áfram Paks II-verkefnið og koma í veg fyrir að grafið verði undan kjarnorkuöryggi.
10) Rússnesk löggjöf og dómvenja gera aðilum kleift að leggja fram kröfu fyrir tilteknum rússneskum dómstólum sem síðan taka sér lögsögu yfir deilumálum og kveða upp dóma yfir fyrirtækjum í Sambandinu í tengslum við samninga eða viðskipti sem verða fyrir áhrifum af þvingunaraðgerðum Sambandsins. Til samræmis við það sýna gögn að rússneskir aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, eða aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem starfa í gegnum eða fyrir hönd einhverra þessara rússnesku aðila, rekstrareininga eða stofnana, eða eru í eigu eða undir stjórn slíkra aðila, rekstrareininga eða stofnana, leita eftir eða gætu leitað eftir því að hefja og halda uppi málarekstri í tengslum við ráðstafanir sem komið er á samkvæmt ákvörðun 2014/145/SSUÖ eða ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ (3) eða reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 (4) eða reglugerð (ESB) nr. 269/2014, eða leita eftir eða gætu leitað eftir því að ná fram viðurkenningu eða fullnustu dóma sem eru kveðnir upp í slíkum málarekstri. Til að viðhalda skilvirkni þvingunaraðgerða Sambandsins er nauðsynlegt að Sambandið grípi til aðgerða til að draga úr áhrifum slíks hátternis með því að krefjast þess að aðildarríkin viðurkenni ekki né fullnusti lögbann, úrskurð, úrræði, dóm eða aðrar ákvarðanir dómstóls eða stjórnvalds sem rússneskur dómstóll eða stjórnvald hefur kveðið upp í tengslum við samning eða viðskipti, ef ráðstafanir sem komið er á samkvæmt ákvörðun 2014/145/SSUÖ eða reglugerð (ESB) nr. 269/2014 hafa haft áhrif á framkvæmd þeirra, beint eða óbeint, í heild eða að hluta.
11) Þegar beiting ráðstafananna, sem komið er á samkvæmt ákvörðun 2014/145/SSUÖ, gæti haft í för með sér ótilhlýðilegan efnahagslegan ávinning fyrir aðila, rekstrareiningar eða stofnanir á skrá, getur það grafið undan skilvirkni og markmiðum þvingunaraðgerða Sambandsins. Framkvæmdastjórnin ætti því að fylgjast með slíkum tilvikum og leggja mat sitt fyrir ráðið án ótilhlýðilegrar tafar og æðsti fulltrúinn ætti, eftir því sem við á, að leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir á skrá njóti ófyrirséðs ávinnings. Ráðið ætti að kanna slíkar tillögur með það fyrir augum að samþykkja nauðsynlegar ráðstafanir innan ramma refsiaðgerðanna við fyrsta tækifæri til að koma í veg fyrir að skráðir aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir njóti ótilhlýðilegs efnahagslegs ávinnings.
12) Því ætti að breyta ákvörðun 2014/145/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun 2014/145/SSUÖ er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 2. gr. er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„28a. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður, sem tilheyrir einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í viðaukanum skv. k-lið 1. mgr. þessarar greinar, verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur viðkomandi einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum samkvæmt þeim skilyrðum sem lögbæru stjórnvöldin telja viðeigandi og eftir að hafa gengið úr skugga um að:
a) slík affrysting eða veitt aðgengi að fjármunum eða efnahagslegum auði sé nauðsynlegt til að heimila greiðslu sem þeim einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem eru á skrá í viðaukanum skv. k-lið 1. mgr. þessarar greinar, eða vátryggingaraðila ber að inna af hendi vegna áhættu sem þessir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem eru á skrá í viðaukanum skv. k-lið 1. mgr. þessarar greinar bera ábyrgð á, til rekstrareiningar með staðfestu í Sambandinu, landi sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, í Sviss eða í samstarfslandi, eins og skráð er í VII. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, eða til ríkisborgara eða íbúa aðildarríkis, lands sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, Sviss eða samstarfslands, eins og skráð er í VII. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ og ekki er skráð í viðaukann og
b) slík greiðsla feli í sér skaðabætur eða ávinning sem veittur er vegna þess að áhætta hefur komið fram sem þeir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem eru á skrá í viðaukanum skv. k-lið 1. mgr. þessarar greinar, bera ábyrgð á.“
b) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„37. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna einnig heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi:
a) ráðstöfun eða framsal hlutabréfa, hlutdeilda eða annarra eiginfjárgerninga af hálfu lánastofnunar með staðfestu í Sambandinu til rekstrareiningar með staðfestu í Sambandinu sem er, fyrir slíkt framsal, í minnihlutaeigu, með beinum eða óbeinum hætti, sjálfstætt eða sameiginlega, annars eða beggja þeirra einstaklinga sem eru á skrá undir færslunúmerum 674 og 675 undir fyrirsögninni „Aðilar“ í viðaukanum við þessa ákvörðun, þegar framsalið myndi leiða til aukinnar hlutafjáreignar annars eða beggja þessara einstaklinga hjá þeim rekstraraðila eftir að hafa ákvarðað að slík ráðstöfun eða framsal fari fram á grundvelli valréttar sem er samþykktur samkvæmt samningi og nýttur á viðeigandi hátt fyrir 28. febrúar 2022 en hefur ekki enn komið til framkvæmda á gildistökudegi þessarar undanþágu, að því tilskildu að öll hlutabréf eða eignarhlutir þessara einstaklinga, þar með talið þau sem stafa af aukinni hlutafjáreign þeirra í kjölfar framsalsins, sæti frystingu,
b) að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða aðgengi veitt að tilteknum fjármunum eða efnahagslegum auði sem tilheyrir, er í eigu, í vörslu eða undir stjórn, beint eða óbeint, sjálfstætt eða sameiginlega, annars eða beggja þeirra einstaklinga sem skráðir eru undir færslunúmerum 674 og 675 undir fyrirsögninni „Aðilar“ í viðaukanum, eða rekstrareiningar sem er beint eða óbeint í eigu, undir stjórn eða með þátttöku þessara einstaklinga, eða fjármunir eða efnahagslegur auður í eigu, vörslu eða undir stjórn slíkra einstaklinga hjá rekstrareiningum eða lánastofnunum sem eru á skrá undir færslunúmerum 198 eða 270 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í viðaukanum, eftir að hafa ákvarðað að:
i. slík affrysting eða veitt aðgengi að fjármunum eða efnahagslegum auði fari einungis fram í þeim eina tilgangi að gera mótaðilanum kleift að standa við greiðsluskuldbindingu sína gagnvart lánastofnun með staðfestu í Sambandinu samkvæmt valrétti sem er samþykktur samkvæmt samningi og nýttur á viðeigandi hátt fyrir 28. febrúar 2022 en hefur ekki enn komið til framkvæmda á gildistökudegi þessarar undanþágu,
ii. fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður, sem er affrystur eða gerður aðgengilegur, sé yfirfærður beint til viðkomandi lánastofnunar sem hefur staðfestu í Sambandinu þannig að slík samningsbundin skylda sé uppfyllt og
iii. lánastofnunin sem hefur staðfestu í Sambandinu sem endurgjaldið er greitt til er ekki aðili, rekstrareining eða stofnun á skrá í viðaukanum.
38a. Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar gilda ekki um fjármuni eða efnahagslegan auð JSC Russian Railways, sem er nauðsynlegur vegna flutninga á vörum eða fólki með járnbrautarlestum eða til að sjá fyrir tengdum járnbrautargrunnvirkjum JSC Russian Railways milli Rússlands og Sambandsins, í umflutningi um Sambandið, milli Kaliningrad-héraðs og Rússlands eða innan Rússlands, eða um fjármuni eða efnahagslegan auð JSC Russian Railways sem er nauðsynlegur til að veita þjónustu í tengslum við rekstur, viðhald eða öryggi slíkra járnbrautarflutninga.
38b. Ákvæði 2. mgr. þessarar greinar gilda ekki í tengslum við veitingu aðgangs að fjármunum eða efnahagslegum auði JSC Russian Railways sem er nauðsynlegur vegna flutninga á vörum eða fólki með járnbrautarlestum eða til að sjá fyrir tengdum járnbrautargrunnvirkjum JSC Russian Railways milli Rússlands og Sambandsins, í umflutningi um Sambandið, milli Kaliningrad-héraðs og Rússlands eða innan Rússlands, eða veitingu aðgangs að fjármunum eða efnahagslegum auði JSC Russian Railways sem er nauðsynlegur til að veita þjónustu sem tengist rekstri, viðhaldi eða öryggi slíkra járnbrautarflutninga.
39. Ákvæði 1. og 2. mgr. þessarar greinar eiga ekki við um fjármuni eða efnahagslegan auð sem tilheyrir, er í eigu, í vörslu eða undir stjórn rekstrareininga sem skráðar eru undir færslunúmerum 975, 976 og 977 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í viðaukanum, eða það að veita þessum rekstrareiningum aðgang að fjármunum eða efnahagslegum auði, með beinum eða óbeinum hætti, eða í þeirra þágu, að því tilskildu að þessir fjármunir eða efnahagslegi auður sé algerlega nauðsynlegur vegna Paks II-verkefnisins að því er varðar starfsemi sem er nauðsynleg vegna stofnsetningar, reksturs, viðhalds, eldsneytisbirgða og -endurmeðhöndlunar og öryggis kjarnorku til borgaralegra nota og áframhaldandi hönnunar, byggingar og gangsetningar sem er nauðsynleg til að ljúka við kjarnorkustöðvar til borgaralegra nota innan þess verkefnis.
Rekstrareiningar sem veita þeim rekstrareiningum sem um getur í þessari málsgrein aðgang að fjármunum eða efnahagslegum auði skulu tilkynna viðkomandi lögbæru stjórnvaldi í Ungverjalandi um hverja þá starfsemi, þar sem fjármunir eða efnahagslegur auður er notaður eða gerður aðgengilegur, innan tveggja vikna frá upphafi starfseminnar. Ungverjaland skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um hverjar þær upplýsingar sem það tekur við samkvæmt þessari málsgrein innan tveggja vikna frá móttöku upplýsinganna.“
2) Eftirfarandi grein er bætt við:
„4. gr. c
Ekki skal viðurkenna, veita réttaráhrif eða fullnusta í aðildarríki lögbann, úrskurð, úrræði, dóm eða aðra ákvörðun dómstóls eða stjórnvalds sem byggist á eða er leidd af gr. 248.1 eða gr. 248.2 í rússneskum lögum um gerðardómsmeðferð eða sambærilegri rússneskri löggjöf eða sem rússneskur dómstóll eða stjórnvald hefur kveðið upp eða tekið á grundvelli annarra rússneskra laga og felur í sér að aðili sem um getur í c- eða d-lið 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 er talinn ábyrgur, hvort sem er samkvæmt samningi, skaðabótarétti eða á öðrum lagagrundvelli, eða viðurkenna með beinum eða óbeinum hætti kröfu, rétt eða meinta skuldbindingu gagnvart slíkum aðila, m.a. í samhengi við ógjaldfærni, gjaldþrot, endurskipulagningu eða sambærilega málsmeðferð, í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, af þeim ráðstöfunum sem komið er á samkvæmt þessari ákvörðun.“
3) Viðaukanum við ákvörðun 2014/145/SSUÖ er breytt til samræmis við viðaukann við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 23. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. BYRNE
(1) Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj).
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 6, ELI: http://data.europa.eu/eli/reg/2014/269/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 13, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/512/oj).
(4) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/833/oj).
VIÐAUKI
Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1845/oj
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1336
frá 15. júní 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða
sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Með reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 (2) koma þær þvingunaraðgerðir til framkvæmda sem kveðið er á um í ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
2) Hinn 15. júní 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/1333 (3) um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
3) Til að tryggja fjölbreytni í aðfangakeðjum fyrir rekstraraðila Sambandsins eru með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1333 innleiddar nýjar, tímabundnar undanþágur frá frystingu eigna og banninu við að gera fjármuni eða efnahagslegan auð aðgengilegan tilgreindri rekstrareiningu, sem gerir kleift að vinda ofan af starfsemi, samningum og öðru samkomulagi sem gerð hafa verið við þá rekstrareiningu, sem og að iðnaðurinn geti keypt mikilvæga íhluti sem hún framleiðir. Gert er ráð fyrir að rekstraraðilar samþykki og innleiði viðeigandi áætlanir um fjölbreytni áður en sú undanþága rennur út, með það að markmiði að gera kleift að skipta yfir í aðrar birgðalindir.
4) Þessar ráðstafanir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
5) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 269/2014 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Eftirfarandi málsgrein bætist við 6. gr. b í reglugerð (ESB) nr. 269/2014:
„5l. Þrátt fyrir 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður, sem tilheyra rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmer 692 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í I. viðauka við þessa reglugerð, verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur þessari rekstrareiningu, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að slíkir fjármunir og efnahagslegur auður séu algerlega nauðsynleg:
a) til að hætta, fyrir 31. desember 2026, starfsemi, samningum eða öðru samkomulagi sem gert hafði verið við rekstrareininguna sem skráð er undir færslunúmeri 692 fyrir 23. apríl 2026, að því tilskildu að affrystingu eða aðgangi að fjármunum eða efnahagslegum auð sé lokið fyrir 31. desember 2026, eða
b) vegna kaupa iðnaðarins á mikilvægum íhlutum sem sú rekstrareining framleiðir og samsvarandi greiðslna til hennar með það fyrir augum að gera kleift að skipta yfir í aðra birgja, að því tilskildu að affrystingu eða aðgangi að fjármunum eða efnahagslegum auði sé lokið fyrir 16. mars 2027.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Lúxemborg 15. júní 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
K. KALLAS
(1) Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 6, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/269/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1333 frá 15. júní 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2026/1333, 15.6.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1333/oj).
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1844
frá 23. júlí 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða
sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Með reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 (2) koma þær þvingunaraðgerðir til framkvæmda sem kveðið er á um í ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
2) Hinn 23. júlí 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/1845 (3) um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ.
3) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1845 er innleidd undanþága frá frystingu fjármuna og banni við því að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega sumum sértækum, tilgreindum rekstrareiningum. Slíkri undanþágu er ætlað að heimila greiðslu sem þeim einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. viðauka, eða vátryggingaraðila, ber að inna af hendi vegna áhættu sem þau bera ábyrgð á.
4) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1845 eru innleiddar viðbótarundanþágur frá frystingu eigna og banninu við því að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega sumum sértækum, tilgreindum aðilum. Þessar undanþágur eru þröngt afmarkaðar til að gera rekstraraðila í Sambandinu kleift að uppfylla tiltekna fyrirliggjandi samningsbundna skyldu sem leiðir af samningi sem gerður var árið 2015, áður en viðeigandi þvingunaraðgerðir voru teknar upp. Þessar undanþágur grafa ekki undan almennum markmiðum reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 og eru eingöngu rökstuddar með því að nauðsynlegt sé að bregðast við ófyrirséðum neikvæðum afleiðingum fyrir rekstraraðila í Sambandinu.
5) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1845 er innleidd undanþága frá frystingu eigna og banni við að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega tilgreindum aðilum svo að unnt sé að halda áfram starfrækslu nauðsynlegra flutninga með járnbrautum milli Rússlands og Sambandsins, í gegnum Sambandið og innan Rússlands. Innleiðing 6. gr. g hefur ekki áhrif á mat á því, í hverju tilviki fyrir sig, hvort rekstrareiningar sem eru ekki tilgreindar séu undir stjórn tilgreindra aðila.
6) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/1845 er innleidd undanþága frá frystingu eigna og banni við því að gera fjármuni og efnahagslegan auð aðgengilega tilteknum tilgreindum rekstrareiningum svo að unnt sé að starfrækja áfram Paks II-verkefnið og koma í veg fyrir að grafið verði undan kjarnorkuöryggi.
7) Með reglugerð ráðsins (ESB) 2026/511 (4) var gildissvið bannsins við því að efna kröfur í tengslum við samninga eða viðskipti sem þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa haft áhrif á, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, víkkað út og tekur til krafna einstaklinga, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana með staðfestu í þriðju löndum, öðrum en samstarfslöndum sem eru á skrá í VIII. viðauka við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 (5). Þessir aðilar geta þó lagt fram kröfur í lögsögu þriðju landa í tengslum við samninga og viðskipti sem slík bönn hafa áhrif á og valda ríkisborgurum aðildarríkis eða lögaðilum, sem eru stofnaðir samkvæmt lögum aðildarríkis, tjóni. Því er nauðsynlegt að víkka út möguleikann á að sækja skaðabætur fyri3r dómstólum aðildarríkis.
8) Rússnesk löggjöf og dómvenja gera aðilum kleift að leggja fram kröfu fyrir tilteknum rússneskum dómstólum sem síðan taka sér lögsögu yfir deilumálum og kveða upp dóma yfir fyrirtækjum í Sambandinu í tengslum við samninga eða viðskipti sem verða fyrir áhrifum af þvingunaraðgerðum Sambandsins. Til samræmis við það sýna gögn að rússneskir aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, eða aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem starfa gegnum eða fyrir hönd einhverra þessara rússnesku aðila, rekstrareininga eða stofnana, eða eru í eigu eða undir stjórn slíkra aðila, rekstrareininga eða stofnana, leita eftir eða gætu leitað eftir því að hefja og halda uppi málarekstri í tengslum við ráðstafanir sem komið er á samkvæmt reglugerðum (ESB) nr. 269/2014 og (ESB) nr. 833/2014, eða leita eftir eða gætu leitað eftir því að ná fram viðurkenningu eða fullnustu dóma sem eru kveðnir upp í slíkum málarekstri. Til að viðhalda skilvirkni þvingunaraðgerða Sambandsins er nauðsynlegt að Sambandið grípi til aðgerða til að draga úr áhrifum slíks hátternis með því að krefjast þess að aðildarríki viðurkenni ekki né fullnusti lögbann, úrskurð, úrræði, dóm eða aðrar ákvarðanir dómstóls eða stjórnvalds sem rússneskur dómstóll eða stjórnvald hefur kveðið upp í tengslum við samning eða viðskipti ef ráðstafanir, sem komið er á samkvæmt reglugerðum (ESB) nr. 269/2014 og (ESB) nr. 833/2014, hafa haft áhrif á framkvæmd þeirra, beint eða óbeint, í heild eða að hluta.
9) Þegar beiting ráðstafananna sem komið er á samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 269/2014 gæti haft í för með sér ótilhlýðilegan efnahagslegan ávinning fyrir aðila, rekstrareiningar eða stofnanir á skrá, getur það grafið undan skilvirkni og markmiðum þvingunaraðgerða Sambandsins. Framkvæmdastjórnin ætti því að fylgjast með slíkum tilvikum og leggja mat sitt fyrir ráðið án ótilhlýðilegrar tafar og leggja fram tillögur, ásamt æðsta fulltrúanum, eftir því sem við á, til að koma í veg fyrir að aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir á skrá njóti ófyrirséðs ávinnings. Ráðið ætti að kanna slíkar tillögur með það fyrir augum að samþykkja nauðsynlegar ráðstafanir innan ramma refsiaðgerðanna við fyrsta tækifæri til að koma í veg fyrir að skráðir aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir njóti ótilhlýðilegs efnahagslegs ávinnings.
10) Þessar ráðstafanir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
11) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 269/2014 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (ESB) nr. 269/2014 er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 6. gr. b er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5ea. Þrátt fyrir 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður, sem tilheyrir einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru á skrá í I. viðauka skv. k-lið 1. mgr. 3. gr., verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur viðkomandi einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum samkvæmt þeim skilyrðum sem lögbæru stjórnvöldin telja viðeigandi og eftir að hafa gengið úr skugga um að:
a) slík affrysting eða veitt aðgengi að fjármunum eða efnahagslegum auði sé nauðsynlegt til að heimila greiðslu sem þeim einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem eru á skrá í I. viðauka skv. k-lið 1. mgr. 3. gr., eða vátryggingaraðila ber að inna af hendi vegna áhættu sem þessir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem eru á skrá í I. viðauka skv. k-lið 1. mgr. 3. gr. bera ábyrgð á, til rekstrareiningar með staðfestu í Sambandinu, landi sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, í Sviss eða í samstarfslandi, eins og skráð er í VIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, eða til ríkisborgara eða íbúa aðildarríkis, lands sem á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, Sviss eða samstarfslands, eins og skráð er í VIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014 og ekki er skráð í I. viðauka og
b) slík greiðsla feli í sér skaðabætur eða ávinning sem veittur er vegna þess að áhætta hefur komið fram sem þeir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem eru á skrá í I. viðauka skv. k-lið 1. mgr. 3. gr., bera ábyrgð á.“
b) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5l. Þrátt fyrir 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna einnig heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi:
a) ráðstöfun eða framsal hlutabréfa, hlutdeilda eða annarra eiginfjárgerninga af hálfu lánastofnunar með staðfestu í Sambandinu til rekstrareiningar með staðfestu í Sambandinu sem er, fyrir slíkt framsal, í minnihlutaeigu, með beinum eða óbeinum hætti, sjálfstætt eða sameiginlega, annars eða beggja þeirra einstaklinga sem eru á skrá undir færslunúmerum 674 og 675 undir fyrirsögninni „Aðilar“ í I. viðauka, þegar framsalið myndi leiða til aukinnar hlutafjáreignar annars eða beggja þessara einstaklinga hjá þeim rekstraraðila eftir að hafa ákvarðað að slík ráðstöfun eða framsal fari fram á grundvelli valréttar sem er samþykktur samkvæmt samningi og nýttur á viðeigandi hátt fyrir 28. febrúar 2022 en hefur ekki enn komið til framkvæmda á gildistökudegi þessarar undanþágu, að því tilskildu að öll hlutabréf eða eignarhlutir þessara einstaklinga, þar með talið þau sem stafa af aukinni hlutafjáreign þeirra í kjölfar framsalsins, sæti frystingu,
b) að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða aðgengi veitt að tilteknum fjármunum eða efnahagslegum auði sem tilheyrir, er í eigu, í vörslu eða undir stjórn, beint eða óbeint, sjálfstætt eða sameiginlega, annars eða beggja þeirra einstaklinga sem skráðir eru undir færslunúmerum 674 og 675 undir fyrirsögninni „Aðilar“ í I. viðauka, eða rekstrareiningar sem er beint eða óbeint í eigu, undir stjórn eða með þátttöku þessara einstaklinga, eða fjármunir eða efnahagslegur auður í eigu, vörslu eða undir stjórn slíkra einstaklinga hjá rekstrareiningum eða lánastofnunum sem eru á skrá (undir færslunúmerum 198 eða 270) undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í I. viðauka, eftir að hafa ákvarðað að:
i. slík affrysting eða veitt aðgengi að fjármunum eða efnahagslegum auði fari einungis fram í þeim eina tilgangi að gera mótaðilanum kleift að standa við greiðsluskuldbindingu sína gagnvart lánastofnun með staðfestu í Sambandinu samkvæmt valrétti sem er samþykktur samkvæmt samningi og nýttur á viðeigandi hátt fyrir 28. febrúar 2022 en hefur ekki enn komið til framkvæmda á gildistökudegi þessarar undanþágu,
ii. fjármunirnir eða hinn efnahagslegi auður, sem er affrystur eða gerður aðgengilegur, sé yfirfærður beint til viðkomandi lánastofnunar sem hefur staðfestu í Sambandinu þannig að slík samningsbundin skylda sé uppfyllt og
iii. lánastofnunin sem hefur staðfestu í Sambandinu sem endurgjaldið er greitt til er ekki aðili, rekstrareining eða stofnun á skrá í I. viðauka.“
2) Eftirfarandi greinum er bætt við:
„6. gr. g
1. Ákvæði 1. mgr. 2. gr. gilda ekki um fjármuni eða efnahagslegan auð JSC Russian Railways, sem er nauðsynlegur vegna flutninga á vörum eða fólki með járnbrautarlestum eða til að sjá fyrir tengdum járnbrautargrunnvirkjum JSC Russian Railways milli Rússlands og Sambandsins, í umflutningi um Sambandið, milli Kaliningrad-héraðs og Rússlands eða innan Rússlands, eða um fjármuni eða efnahagslegan auð JSC Russian Railways sem er nauðsynlegur til að veita þjónustu í tengslum við rekstur, viðhald eða öryggi slíkra járnbrautarflutninga.
2. Ákvæði 2. mgr. 2. gr. eiga ekki við í tengslum við veitingu aðgangs að fjármunum eða efnahagslegum auði JSC Russian Railways sem er nauðsynlegur vegna flutninga á vörum eða fólki með járnbrautarlestum eða til að sjá fyrir tengdum járnbrautargrunnvirkjum JSC Russian Railways milli Rússlands og Sambandsins, í umflutningi um Sambandið, milli Kaliningrad-héraðs og Rússlands eða innan Rússlands, eða veitingu aðgangs að fjármunum eða efnahagslegum auði JSC Russian Railways sem er nauðsynlegur til að veita þjónustu sem tengist rekstri, viðhaldi eða öryggi slíkra járnbrautarflutninga.
6. gr. h
1. Ákvæði 2. gr. eiga ekki við um fjármuni eða efnahagslegan auð sem tilheyrir, er í eigu, í vörslu eða undir stjórn rekstrareininga sem skráðar eru undir færslunúmerum 975, 976 og 977 undir fyrirsögninni „Rekstrareiningar“ í I. viðauka eða það að veita þessum rekstrareiningum aðgang að fjármunum eða efnahagslegum auði, með beinum eða óbeinum hætti, eða í þeirra þágu, að því tilskildu að þessir fjármunir eða efnahagslegi auður sé algerlega nauðsynlegur vegna Paks II-verkefnisins að því er varðar starfsemi sem er nauðsynleg vegna stofnsetningar, reksturs, viðhalds, eldsneytisbirgða og -endurmeðhöndlunar og öryggis kjarnorku til borgaralegra nota og áframhaldandi hönnunar, byggingar og gangsetningar sem er nauðsynleg til að ljúka við kjarnorkustöðvar til borgaralegra nota innan þess verkefnis.
2. Rekstrareiningar sem veita þeim rekstrareiningum sem um getur í 1. mgr. aðgang að fjármunum eða efnahagslegum auði skulu tilkynna viðkomandi lögbæru stjórnvaldi í Ungverjalandi um hverja þá starfsemi, þar sem fjármunir eða efnahagslegur auður er notaður eða gerður aðgengilegur, innan tveggja vikna frá upphafi starfseminnar. Ungverjaland skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um hverjar þær upplýsingar sem það tekur við samkvæmt þessari grein innan tveggja vikna frá móttöku upplýsinganna.“
3) Í stað 1. mgr. 11. gr. a kemur eftirfarandi:
„1. Sérhver aðili, sem um getur í c- eða d-lið 17. gr., skal, við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í d-lið 17. gr., stofnar til vegna krafna sem aðilar, rekstrareiningar og stofnarnir, sem um getur í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 11. gr., leggja fram hjá dómstólum í þriðju löndum í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum af ráðstöfunum, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, sem komið er á samkvæmt þessari reglugerð, að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki skilvirkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem um getur í a-, b- og c-lið 1. mgr. 11. gr., sem lögðu fram kröfur hjá dómstólum í viðkomandi þriðja landi, eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru í eigu eða undir stjórn þessara rekstrareininga eða stofnana.“
4) Eftirfarandi grein bætist við:
„11. gr. c
Ekki skal viðurkenna, veita réttaráhrif eða fullnusta í aðildarríki lögbann, úrskurð, úrræði, dóm eða aðra ákvörðun dómstóls eða stjórnvalds sem byggist á eða er leidd af gr. 248.1 eða gr. 248.2 í rússneskum lögum um gerðardómsmeðferð eða sambærilegri rússneskri löggjöf eða sem rússneskur dómstóll eða stjórnvald hefur kveðið upp eða tekið á grundvelli annarra rússneskra laga og felur í sér að aðili, sem um getur í c- eða d-lið 17. gr., er talinn ábyrgur, hvort sem er samkvæmt samningi, skaðabótarétti eða á öðrum lagagrundvelli, eða viðurkenna með beinum eða óbeinum hætti kröfu, rétt eða meinta skuldbindingu gagnvart slíkum aðila, m.a. í samhengi við ógjaldfærni, gjaldþrot, endurskipulagningu eða sambærilega málsmeðferð, í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum, með beinum eða óbeinum hætti, í heild eða að hluta, af þeim ráðstöfunum sem komið er á samkvæmt þessari reglugerð.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn sem hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 23. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. BYRNE
(1) Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 6, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/269/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1845 frá 23. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2026/1845, 23.7.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1845/oj).
(4) Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/511 frá 23. apríl 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2026/511, 23.4.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2026/511/oj).
(5) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/833/oj).
B deild — Útgáfudagur: 6. nóvember 2026