Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Mennta- og menningarmálaráðuneytið (2009-2015)
Málaflokkur
Söfn, Skjalastjórnun
Undirritunardagur
28. maí 2014
Útgáfudagur
11. júní 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 77/2014
28. maí 2014
LÖG
um opinber skjalasöfn.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Almenn ákvæði.
1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að tryggja myndun, vörslu og örugga meðferð opinberra skjala með réttindi borgaranna, hag stjórnsýslunnar og varðveislu sögu íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi.
2. gr. Skilgreiningar.
Í lögum þessum og reglugerðum settum á grundvelli þeirra er merking hugtaka sem hér segir:
- Opinber skjalasöfn: Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfn sem starfa í samræmi við rekstrarleyfi.
- Skjal: Hvers konar gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, er hafa að geyma upplýsingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi á vegum stofnunar eða einstaklings.
- Skjalastjórn: Skilvirk og kerfisbundin stýring á myndun skjala, móttöku, skjalahaldi, notkun og umráðum, þar á meðal ferlum og hlítingu reglna til að fanga og viðhalda vitnisburði og upplýsingum um starfsemi og viðskipti í formi skjala.
- Skjalavarsla: Öll atriði er lúta að myndun, varðveislu og aðgengi að skjölum og öðrum upplýsingum tiltekins skjalasafns hvort heldur er hjá afhendingarskyldum aðila eða hjá opinberu skjalasafni.
3. gr. Hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands.
Þjóðskjalasafn Íslands gegnir hlutverki sem framkvæmdaraðili opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar. Að auki gegnir safnið hlutverki opinbers skjalasafns.
II. KAFLI Stjórnsýsla.
4. gr. Stjórn opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar.
Ráðherra fer með yfirstjórn opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar samkvæmt lögum þessum. Þjóðskjalasafn Íslands annast framkvæmd hennar.
5. gr. Þjóðskjalasafn Íslands.
Þjóðskjalasafn
Íslands
er
sérstök
ríkisstofnun
undir
yfirstjórn
ráðherra.
Kostnaður
við
rekstur
safnsins
greiðist
úr
ríkissjóði
eftir
því
sem
ákveðið
er
í
fjárlögum.
6. gr. Þjóðskjalavörður.
Ráðherra
skipar
forstöðumann
Þjóðskjalasafns
Íslands,
þjóðskjalavörð,
til
fimm
ára
í
senn.
Hann
skal
hafa
háskólamenntun
og
staðgóða
þekkingu
á
starfssviði
safnsins.
Þjóðskjalavörður
stjórnar
starfsemi
og
rekstri
Þjóðskjalasafns
Íslands.
Hann
ræður
annað
starfslið
þess
og
er
í
fyrirsvari
fyrir
safnið.
7. gr. Stjórnarnefnd.
Ráðherra
skipar
sex
menn
í
stjórnarnefnd
Þjóðskjalasafns
Íslands
til
fjögurra
ára
í
senn.
Skal
einn
tilnefndur
af
Sagnfræðistofnun
Háskóla
Íslands,
tveir
af
Sambandi
íslenskra
sveitarfélaga
og
skal
annar
þeirra
vera
starfsmaður
héraðsskjalasafns,
einn
af
fastráðnu
starfsfólki
Þjóðskjalasafns,
einn
af
félagsvísindasviði
Háskóla
Íslands
og
einn
skal
skipaður
án
tilnefningar.
Varamenn
skulu
skipaðir
með
sama
hætti.
Ekki
er
heimilt
að
skipa
sama
mann
aðalmann
í
stjórnarnefnd
safnsins
lengur
en
tvö
samfelld
starfstímabil.
Ráðherra
skipar
formann
og
varaformann
úr
hópi
nefndarmanna.
Stjórnarnefnd
safnsins
er
forstöðumanni
þess,
þjóðskjalaverði,
til
ráðgjafar
um
stefnu
safnsins
og
önnur
málefni
sem
varða
starfsemi
þess.
Stjórnarnefnd
veitir
þjóðskjalaverði
umsagnir
um
árlegar
starfs-
og
fjárhagsáætlanir
og
skipulag
safnsins.
Þjóðskjalavörður
situr
fundi
stjórnarnefndar
með
málfrelsi
og
tillögurétt.
8. gr. Framkvæmd opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar.
Hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands við framkvæmd opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar er m.a. að:
- setja reglur og veita leiðbeiningar um hvernig skjalastjórn og skjalavörslu skuli hagað hjá stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga svo og öðrum afhendingarskyldum aðilum sem falla undir 1. og 2. mgr. 14. gr.; reglurnar skulu staðfestar af ráðherra,
- setja reglur um frágang og afhendingu skjala- og gagnasafna afhendingarskyldra aðila til opinberra skjalasafna; reglurnar skulu staðfestar af ráðherra,
- setja reglur um varðveislu og förgun skjala; reglurnar skulu staðfestar af ráðherra,
- gera tillögu til ráðherra um að veita skuli sveitarstjórn eða byggðasamlagi leyfi til að koma á fót héraðsskjalasafni til að sinna hlutverki opinbers skjalasafns skv. 13. gr. og gefa út rekstrarleyfi því til handa að fengnu samþykki ráðherra; héraðsskjalasafn skal starfa innan marka þess sveitarfélags eða þeirra sveitarfélaga sem reka héraðsskjalasafnið samkvæmt stofnskrá þess,
- hafa eftirlit með rekstri héraðsskjalasafna í samræmi við ákvæði 9.–12. gr.
9. gr. Héraðsskjalasöfn.
Héraðsskjalasafn
er
sjálfstætt
opinbert
skjalasafn
sem
lýtur
faglegu
eftirliti
Þjóðskjalasafns
Íslands.
Rekstur
héraðsskjalasafns
er
á
ábyrgð
þess
sveitarfélags
eða
þeirra
sveitarfélaga
sem
að
því
standa.
Héraðsskjalasöfn
skulu
njóta
styrks
úr
ríkissjóði
samkvæmt
því
sem
er
ákveðið
í
fjárlögum
hverju
sinni.
Um
útlán
skjala
til
sveitarfélags
fer
skv.
19.
gr.
Héraðsskjalasafn
skal
hafa
eftirlit
með
skjalavörslu
þeirra
aðila
sem
eru
afhendingarskyldir
um
skjöl
sín
og
önnur
gögn
til
þess,
sbr.
4.
tölul.
8.
gr.,
4.
tölul.
13.
gr.
og
4.
tölul.
1.
mgr.
14.
gr.
Ráðherra
skal
setja
nánari
ákvæði
um
héraðsskjalasöfn
í
reglugerð.
10. gr. Heimild til reksturs héraðsskjalasafns og afturköllun rekstrarleyfis.
Einungis
þeim
sveitarstjórnum
og
byggðasamlögum
sem
hafa
fengið
leyfi
til
reksturs
héraðsskjalasafns
er
heimilt
að
reka
slíkt
safn.
Falli
héraðsskjalasafn
í
vanhirðu
eða
séu
ekki
lengur
fyrir
hendi
þau
faglegu
skilyrði
sem
voru
forsenda
fyrir
rekstrarleyfi
safnsins
skal
Þjóðskjalasafn
Íslands
vekja
athygli
hlutaðeigandi
sveitarstjórnar
eða
byggðasamlags
á
því
sem
aflaga
er
talið
fara
og
óska
úrbóta
fyrir
ákveðinn
tíma.
Sé
ítrekaðri
viðvörun
ekki
sinnt
skal
Þjóðskjalasafn
afturkalla
rekstrarleyfi
viðkomandi
héraðsskjalasafns
og
láta
flytja
safngögnin
úr
því
í
Þjóðskjalasafn
Íslands
á
kostnað
hlutaðeigandi
sveitarfélags
eða
byggðasamlags.
Ef
starfsemi
byggðasamlags
um
héraðsskjalasafn
er
hætt
skal
afhenda
Þjóðskjalasafni
Íslands
safngögnin
á
kostnað
þeirra
sveitarfélaga
sem
stóðu
að
því
í
samræmi
við
síðastgildandi
skiptingu
kostnaðar
við
rekstur
byggðasamlagsins.
11. gr. Leyfi til reksturs héraðsskjalasafns.
Sveitarstjórn
getur
sótt
um
leyfi
til
Þjóðskjalasafns
Íslands
til
reksturs
héraðsskjalasafns
til
að
varðveita
skjöl
sveitarfélagsins
og
sinna
því
hlutverki
sem
fram
kemur
í
13.
gr.
um
hlutverk
opinberra
skjalasafna.
Sveitarfélög
geta
myndað
byggðasamlag
um
rekstur
héraðsskjalasafns
í
samræmi
við
IX.
kafla
sveitarstjórnarlaga.
Með
umsókn
um
slíkt
leyfi
skal,
auk
umsóknar
skv.
2.
mgr.,
fylgja
samþykkt
fyrir
byggðasamlagið.
Í
umsókn
um
leyfi
til
reksturs
héraðsskjalasafns
skal
gera
grein
fyrir
áætluðum
rekstrarkostnaði,
húsnæði,
búnaði
og
fjölda
starfa
sem
safninu
er
ætlað.
Þjóðskjalasafn
Íslands
veitir
leyfi
til
reksturs
héraðsskjalasafns,
að
fengnu
samþykki
ráðherra,
ef
umsókn
ber
með
sér
að
fjárhagsleg
og
fagleg
skilyrði
séu
fyrir
hendi
til
rekstursins.
Í
leyfi
skal
tiltaka
þær
faglegu
forsendur
sem
eru
fyrir
útgáfu
þess.
Ráðherra
skal
setja
nánari
ákvæði
um
leyfi
til
reksturs
héraðsskjalasafns
í
reglugerð.
12. gr. Eftirlit Þjóðskjalasafns með rekstri héraðsskjalasafna.
Þjóðskjalasafn
Íslands
hefur
eftirlit
með
því
að
héraðsskjalasöfn
starfi
í
samræmi
við
lög
og
skilyrði
rekstrarleyfis.
Rekstraraðilar
héraðsskjalasafns
skulu
árlega
skila
Þjóðskjalasafni
skýrslu
um
starfsemina
og
láta
því
í
té
aðrar
þær
upplýsingar
og
skriflegar
skýringar
sem
óskað
er
eftir
og
þörf
er
á
vegna
eftirlits
með
því
að
skilyrði
rekstrarleyfis
séu
uppfyllt.
Lögbundin
þagnarskylda
stendur
ekki
í
vegi
slíkrar
upplýsingagjafar.
Héraðsskjalasöfn
skulu
veita
aðgang
að
starfsstöðvum
sínum
vegna
eftirlits
Þjóðskjalasafns
Íslands.
Skulu
starfsmenn
héraðsskjalasafna
láta
safninu
í
té
nauðsynlega
aðstoð
af
því
tilefni
ef
óskað
er.
III. KAFLI Starfsemi og hlutverk opinberra skjalasafna.
13. gr. Hlutverk opinberra skjalasafna.
Hlutverk opinberra skjalasafna er m.a. að:
- taka við og heimta inn skjöl og varðveita þau og önnur gögn frá afhendingarskyldum aðilum sem hafa að geyma upplýsingar sem þýðingu hafa fyrir stjórnsýslu eða hagsmuni og réttindi borgaranna eða hafa sögulegt gildi,
- hafa til reiðu skjöl og önnur gögn safnsins ásamt skrám og upplýsingum um þau fyrir þá sem nota vilja safnið og skapa þeim aðstöðu til þess, þ.m.t. til vísindalegra rannsókna og fræðiiðkana,
- leiðbeina um notkun skjala í vörslu safnsins og greiða fyrir rannsóknum á þeim eins og kostur er,
- hafa eftirlit með framkvæmd afhendingarskyldra aðila á lögum þessum, reglugerðum sem ráðherra setur á grundvelli þeirra og á reglum sem settar eru skv. 8. gr.; afhendingarskyldir aðilar skulu veita aðgang að starfsstöðvum sínum vegna athugana í þágu eftirlits opinberra skjalasafna,
- gangast fyrir rannsóknum sem tengjast safnkosti skjalasafna, sbr. 1. tölul., eftir því sem fjárheimildir leyfa á hverjum tíma,
- leitast við að afla annarra heimilda en frá afhendingarskyldum aðilum til að tryggja sem best að heimildir um þjóðarsöguna varðveitist.
14. gr. Afhendingarskyldir aðilar.
Afhendingarskylda samkvæmt lögum þessum gildir um:
- embætti forseta Íslands,
- Hæstarétt, héraðsdómstóla og aðra lögmæta dómstóla,
- Stjórnarráð Íslands, svo og allar stjórnsýslunefndir og stofnanir sem heyra stjórnarfarslega undir það, sem og þjóðkirkjuna,
- sveitarfélög, svo og allar stofnanir og nefndir á þeirra vegum sem fara með stjórnsýslu; hið sama gildir um byggðasamlög og aðra þá aðila sem sjá um framkvæmd einstakra stjórnsýsluverkefna vegna samvinnu sveitarfélaga,
- sjálfseignarstofnanir og sjóði sem stofnuð hafa verið með lögum eða á grundvelli heimildar í lögum í þeim tilgangi að sinna einkum opinberum verkefnum,
- stjórnsýsluaðila einkaréttareðlis hafi þeim á grundvelli laga verið fengið vald til þess að taka stjórnvaldsákvarðanir af hálfu ríkis eða sveitarfélags að því er varðar skjöl sem hafa orðið til hjá þeim eða komist í þeirra vörslu vegna mála er tengjast slíkum ákvörðunum,
- einkaréttarlega lögaðila sem tekið hafa að sér rekstrarverkefni með samningi skv. 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, eða skv. 100. og 101. gr. sveitarstjórnarlaga, að því er varðar skjöl sem hafa orðið til hjá þeim eða komist í þeirra vörslu vegna rækslu slíkra verkefna.
Afhendingarskylda
gildir
enn
fremur
um
lögaðila
sem
eru
að
51%
hluta
eða
meira
í
eigu
hins
opinbera.
Afhendingarskyldan
á
við
gagnvart
héraðsskjalasafni
þegar
viðkomandi
aðilar
eru
í
eigu
sveitarfélaga
sem
reka
eða
eiga
aðild
að
héraðsskjalasafni.
Komi
upp
ágreiningur
um
afhendingarskyldu
lögaðila
tekur
Þjóðskjalasafn
Íslands
ákvörðun
um
afhendingarskylduna.
Lög
þessi
gilda
ekki
um
Alþingi
eða
umboðsmann
Alþingis.
Skylt
er
þeim
sem
falla
undir
1.
og
2.
mgr.
að
afhenda
opinberu
skjalasafni
skjöl
sín
í
samræmi
við
ákvæði
laga
þessara.
Þeir
afhendingarskyldu
aðilar
sem
heyra
undir
stjórnsýslu
ríkisins
geta
eingöngu
afhent
Þjóðskjalasafni
Íslands
skjöl
sín.
Afhendingarskyldir
aðilar
sem
heyra
undir
stjórnsýslu
sveitarfélags
skulu
afhenda
Þjóðskjalasafni
Íslands
skjöl
sín
ef
sveitarfélagið
rekur
ekki
héraðsskjalasafn
á
eigin
vegum
eða
á
ekki
aðild
að
slíku
safni.
Sveitarfélag
sem
afhendir
Þjóðskjalasafni
Íslands
skjöl
sín
til
vörslu
greiðir
fyrir
vörslu
þeirra
samkvæmt
gjaldskrá
sem
ráðherra
setur.
Enn
fremur
skal
afhenda
Þjóðskjalasafni
Íslands
embættisbækur
skráðra
trúfélaga
sem
lögð
eru
niður
eða
starfa
af
öðrum
ástæðum
ekki
lengur
sem
skráð
trúfélög.
Þá
skulu
skiptastjórar
þrotabúa
og
dánarbúa
afhenda
Þjóðskjalasafni
Íslands
þau
skjöl
sem
ekki
hafa
verið
lögð
fram
í
dómi
eða
afhent
sýslumanni
við
lok
opinberra
skipta,
en
kunna
að
hafa
þýðingu
fyrir
skiptin.
Hver
sá
sem
hefur
í
vörslum
sínum
skjöl
úr
skjalasafni
stjórnvalds
eða
lögaðila
sem
falla
undir
1.,
2.
eða
5.
mgr.,
án
þess
að
eiga
löglegt
tilkall
til
þeirra,
skal
afhenda
þau
opinberu
skjalasafni
í
samræmi
við
þá
verkaskiptingu
opinberra
skjalasafna
sem
fram
kemur
í
4.
mgr.
Tilkall
opinbers
skjalasafns
til
afhendingar
afhendingarskyldra
skjala
fellur
ekki
niður
fyrir
tómlæti
eða
hefð.
15. gr. Um afhendingu afhendingarskyldra skjala og upplýsingarétt.
Afhendingarskyld
skjöl
skal
afhenda
opinberu
skjalasafni
þegar
þau
hafa
náð
30
ára
aldri.
Þó
skulu
skjöl
og
önnur
gögn
á
rafrænu
formi
afhent
að
jafnaði
eigi
síðar
en
þegar
þau
hafa
náð
fimm
ára
aldri.
Í
báðum
tilvikum
er
miðað
við
síðustu
innfærslu
eða
síðasta
bréf
afgreidds
máls.
Varðandi
skrár
reiknast
ársfresturinn
frá
lokum
þess
árs
þegar
síðast
var
fært
inn
í
skrána.
Afhendingarskyldur
aðili
ber
ábyrgð
á
afgreiðslu
úr
rafrænum
gögnum
þar
til
þau
hafa
náð
30
ára
aldri.
Forstöðumaður
opinbers
skjalasafns
getur
lengt
eða
stytt
afhendingarfrest
skv.
1.
mgr.
í
einstökum
tilvikum
ef
sérstakar
ástæður
mæla
með
því.
Þjóðskjalasafn
Íslands
skal
í
reglum
sínum
mæla
nánar
fyrir
um
afhendingu
afhendingarskyldra
skjala
og
um
annan
afhendingarfrest
á
ákveðnum
flokkum
skjala
en
mælt
er
fyrir
um
í
1.
mgr.
þar
sem
veigamiklar
ástæður
mæla
með
því.
Þegar
afhendingarfrestur
skjals
er
lengdur
tekur
hlutaðeigandi
stjórnvald
ákvörðun
um
aðgang
að
skjölunum
á
grundvelli
V.–VII.
kafla
meðan
þau
eru
í
vörslu
þess.
Þegar
afhendingarfrestur
er
styttur
tekur
forstöðumaður
viðkomandi
opinbers
skjalasafns
ákvörðun
um
aðgang
að
skjölunum
á
grundvelli
þeirra
reglna
sem
gilda
um
rétt
til
aðgangs
að
þeim
eftir
afhendingu
þeirra.
Hætti
afhendingarskyldur
aðili
skv.
1.
eða
2.
mgr.
14.
gr.
starfsemi
eða
sé
hún
lögð
niður
skulu
afhendingarskyld
skjöl
hans
færð
til
opinbers
skjalasafns
við
lok
starfseminnar.
Ef
við
á
úrskurðar
hið
opinbera
skjalasafn
sem
tekur
við
skjölunum
hvaða
skjöl
skuli
afhent
þeim
aðila
sem
tekur
við
verkefni
viðkomandi
aðila.
Heimilt
er
að
krefja
um
greiðslu
kostnaðar
vegna
móttöku,
frágangs
og
flutnings
skjala
afhendingarskylds
aðila
sem
hættir
starfsemi
eða
er
lagður
niður.
Aðgangur
að
skjölum,
þegar
þau
verða
30
ára,
fer
eftir
þessum
lögum,
óháð
því
hvernig
fyrirkomulag
hefur
verið
á
skilum
skjala
til
opinbers
skjalasafns.
Réttur
til
aðgangs
að
skjölum
samkvæmt
lögum
þessum
haggar
ekki
við
höfundarétti
séu
skjölin
háð
slíkum
rétti
samkvæmt
höfundalögum.
Þegar
skjöl
eru
afhent
opinberu
skjalasafni
áður
en
þau
hafa
náð
30
ára
aldri
er
safninu
heimilt
að
taka
gjald
fyrir
geymslu
þeirra
þar
til
þau
hafa
náð
30
ára
aldri.
Þrotabú
skulu
greiða
Þjóðskjalasafni
Íslands
gjald
fyrir
varðveislu
í
sjö
ár
og
eyðingu
skjalanna,
allt
eftir
eðli
þeirra
og
magni,
og
telst
gjaldið
til
kostnaðar
af
skiptum
samkvæmt
lögum
um
gjaldþrotaskipti
o.fl.
Ráðherra
mælir
fyrir
um
gjald
skv.
5.,
8.
og
9.
mgr.
í
reglugerð
að
fenginni
tillögu
frá
opinberum
skjalasöfnum
og
skal
miðað
við
þann
kostnað
sem
hlýst
í
rekstri
stofnana
af
varðveislu
skjala
með
hliðsjón
af
eðli
þeirra
og
magni.
16. gr. Einkaskjalasöfn.
Opinberu
skjalasafni
er
heimilt
að
taka
við
skjölum
annarra
en
afhendingarskyldra
aðila
til
varðveislu
og
eignar
ef
þau
eru
talin
hafa
mikilvæga
þýðingu
fyrir
hlutverk
safnsins
skv.
13.
gr.
Þegar
sérstaklega
stendur
á
er
opinberu
skjalasafni
þó
heimilt
að
taka
við
slíkum
skjölum
með
skilyrði
um
að
þau
verði
ekki
gerð
aðgengileg
í
ákveðinn
tíma,
en
hann
má
lengstur
vera
80
ár
og
er
heimilt
að
hafa
ólík
tímaviðmið
um
aðgang
almennings
annars
vegar
og
fræðimanna
í
skilningi
8.
mgr.
37.
gr.
hins
vegar.
Að
öðru
leyti
gilda
ákvæði
þessara
laga
um
aðgang
að
slíkum
skjalasöfnum
eftir
því
sem
við
getur
átt.
Þegar
eigur
manns
renna
til
ríkissjóðs
skv.
55.
gr.
erfðalaga
skulu
skjöl
hans,
ef
einhver
eru,
afhent
Þjóðskjalasafni
Íslands.
Þjóðskjalaverði
er
heimilt
að
fela
héraðsskjalasafni
varðveislu
skjala
sem
Þjóðskjalasafni
kunna
að
berast
samkvæmt
þessu
ákvæði.
Hafi
maður
í
vörslum
sínum
einkaskjalasafn
sem
enginn
á
eignarrétt
að
er
honum
skylt
að
afhenda
það
Þjóðskjalasafni
Íslands.
Þjóðskjalaverði
er
heimilt
að
fela
öðru
safni
varðveislu
skjala
sem
Þjóðskjalasafni
kunna
að
berast
samkvæmt
þessu
ákvæði.
Þjóðskjalavörður
skal
beita
sér
fyrir
að
gert
verði
samkomulag
milli
opinberra
skjalasafna
og
annarra
stofnana
sem
málið
varðar
um
hvernig
varðveislu
einkaskjalasafna
verði
best
háttað
á
opinberum
vettvangi.
17. gr. Afritun mikilvægra skjala í eigu einstaklinga.
Ákvæði
laga
um
menningarminjar
um
flutning
menningarminja
úr
landi
og
laga
um
skil
menningarverðmæta
til
annarra
landa
gilda
um
flutning
hvers
konar
skjalasafna
úr
landi
sem
orðin
eru
50
ára.
Áður
en
skjalasafn
í
eigu
einkaaðila,
sem
hefur
menningarlegt
eða
sagnfræðilegt
gildi,
er
flutt
úr
landi
skal
veita
Þjóðskjalasafni
Íslands
færi
á
að
afrita
það.
18. gr. Varðveisla mikilvægra skjala.
Opinber skjalasöfn skulu tryggja örugga varðveislu skjala sem eru á ábyrgð þeirra, óháð formi þeirra. Mikilvægustu skjöl safnanna skulu vera til á filmum, í rafrænu afriti eða á öðrum vörslumiðli og eintak afritanna varðveitt á öruggum stað utan höfuðstöðva þeirra.
19. gr. Útlán skjala.
Afhendingarskyldir
aðilar
eiga
rétt
á
að
fá
lánuð
skjöl
eða
að
fá
afrit
skjala
sem
þeir
hafa
afhent
opinberu
skjalasafni
þurfi
þeir
á
þeim
að
halda
við
störf
sín.
Opinberum
skjalasöfnum
er
heimilt
að
lána
skjöl
til
notkunar
í
öðrum
opinberum
skjalasöfnum,
í
handritasafni
Landsbókasafns
Íslands
–
Háskólabókasafns
eða
öðrum
söfnum
og
rannsóknastofnunum
ef
aðstaða
er
þar
til
að
varðveita
skjöl
tryggilega.
Heimilt
er
að
binda
slík
útlán
skilyrðum
um
viðhlítandi
öryggisráðstafanir
til
varðveislu
skjalanna.
Önnur
útlán
skjala
en
um
getur
í
1.
og
2.
mgr.
eru
að
jafnaði
óheimil.
Hver
sá
sem
fær
skjal
að
láni
ber
ábyrgð
á
varðveislu
þess
og
skilvísum
skilum.
20. gr. Almenn miðlun upplýsinga um þjóðarsöguna.
Opinber skjalasöfn skulu vinna að því að gera mikilvæg skjöl aðgengileg almenningi, svo sem á vef sínum eða með öðrum hætti, og veita fræðslu um sögu þjóðarinnar eða byggðarlaga á grundvelli skjala í vörslu þeirra.
21. gr. Þagnarskylda starfsmanna.
Starfsmenn opinberra skjalasafna skulu gæta fyllstu þagmælsku um upplýsingar sem varða fjárhags- og einkamálefni einstaklinga, atvinnu-, framleiðslu- eða viðskiptaleyndarmál einstaklinga og lögaðila og mikilvæga almannahagsmuni sem óheimilt er að veita almenningi aðgang að og upplýsingar sem synjað er um aðgang að skv. 29. gr. Sé veittur aðgangur að skjölum sem undanþegin eru upplýsingarétti skv. V. kafla nær þagnarskylda skv. 33. gr. til starfsmanna opinberra skjalasafna. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
IV. KAFLI Skjalastjórn og skjalavarsla afhendingarskyldra aðila.
22. gr. Ábyrgð á skjalastjórn og skjalavörslu afhendingarskyldra aðila.
Ákvæði
þessa
kafla
gilda
um
afhendingarskylda
aðila
skv.
1.
og
2.
mgr.
14.
gr.
Forstöðumaður
afhendingarskylds
aðila
ber
ábyrgð
á
skjalastjórn
og
skjalavörslu
viðkomandi
aðila,
þ.m.t.
að
unnið
sé
í
samræmi
við
fyrirmæli
laga
og
reglna
þar
að
lútandi.
Hið
sama
gildir
um
formann
stjórnsýslunefndar
og
framkvæmdastjóra
sveitarfélags,
svo
og
forstöðumenn
sjálfseignarstofnana,
sjóða
og
annarra
aðila
sem
lög
þessi
gilda
um
skv.
14.
gr.
Afhendingarskyldum
aðilum
er
skylt
að
haga
skjalastjórn
og
skjalavörslu
með
þeim
hætti
sem
segir
í
þeim
reglum
sem
settar
eru
á
grundvelli
23.
gr.
og
varðveita
málsgögn
þannig
að
þau
séu
aðgengileg
í
samræmi
við
þær.
Sá
sem
ber
ábyrgð
á
skjalastjórn
og
skjalavörslu
skal
grípa
til
viðeigandi
ráðstafana
til
þess
að
vernda
skjöl
afhendingarskylds
aðila
fyrir
ólöglegri
eyðileggingu,
breytingu
og
óleyfilegum
aðgangi.
Við
afhendingu
skjala
til
opinbers
skjalasafns
flyst
ábyrgð
á
vörslu
skjalanna
yfir
til
þess.
23. gr. Skjalastjórn og skjalavarsla.
Þjóðskjalasafn
Íslands
skal
setja
reglur
skv.
1.
tölul.
8.
gr.
um
það
hvernig
skjalastjórn
og
skjalavörslu
í
stjórnsýslu
ríkis
og
sveitarfélaga
og
afhendingarskyldra
aðila
skuli
hagað,
svo
og
skráningu,
flokkun
og
frágangi
skjala
til
afhendingar
til
opinberra
skjalasafna,
þ.m.t.
skilmála
um
staðla
fyrir
skjalavistunarkerfi
og
samþykkt
á
skjalavistunarkerfum.
Afhendingarskyldum
aðilum
skv.
14.
gr.
er
skylt
að
skrá
mál
sem
koma
til
meðferðar
hjá
þeim
á
kerfisbundinn
hátt
og
varðveita
málsgögn
þannig
að
þau
séu
aðgengileg
í
samræmi
við
reglur
sem
settar
eru
skv.
1.
mgr.
24. gr. Varðveisluskylda og förgunarreglur.
Óheimilt
er
að
ónýta
eða
farga
nokkru
skjali
í
skjalasöfnum
þeirra
aðila
sem
falla
undir
1.
eða
2.
mgr.
14.
gr.
nema
það
sé
gert
á
grundvelli
samþykktar
þjóðskjalavarðar,
reglna
skv.
23.
gr.
eða
2.
mgr.
þessarar
greinar
eða
sérstaks
lagaákvæðis.
Þjóðskjalasafn
Íslands
skal
setja
sérstakar
reglur
skv.
3.
tölul.
8.
gr.
um
förgun
skjala
fyrir
afhendingarskylda
aðila
eftir
því
sem
við
verður
komið.
V. KAFLI Aðgangur almennings að skjölum opinberra skjalasafna.
25. gr. Upplýsingaréttur almennings.
Opinberu
skjalasafni
er
skylt,
sé
þess
óskað,
að
veita
almenningi
aðgang
að
skjölum
þegar
liðin
eru
30
ár
frá
því
að
þau
urðu
til
enda
gildi
ekki
þær
takmarkanir
um
skjalið
sem
fram
koma
í
lögum
þessum.
Er
þá
miðað
við
síðustu
innfærslu
eða
síðasta
bréf
afgreidds
máls.
Heimilt
er
að
miða
við
tilurð
skjals
ef
meðferð
máls
hefur
dregist
á
langinn
hjá
stjórnvaldi
eða
ríkar
ástæður
mæla
með
því.
Ef
takmarkanir
samkvæmt
lögum
þessum
eiga
aðeins
við
um
hluta
skjals
skal
veita
aðgang
að
öðru
efni
skjalsins
ef
unnt
er
að
skilja
upplýsingar,
sem
falla
undir
undantekningar,
frá
þeim
upplýsingum
sem
veita
má
aðgang
að.
26. gr. Upplýsingar um fjárhags- og einkamálefni einstaklinga.
Óheimilt
er
að
veita
almenningi
aðgang
að
gögnum
um
fjárhags-
og
einkamálefni
einstaklinga
sem
sanngjarnt
er
og
eðlilegt
að
leynt
fari
nema
sá
samþykki
sem
í
hlut
á.
Opinberu
skjalasafni
er
skylt,
sé
þess
óskað,
að
veita
almenningi
aðgang
að
skjölum
þegar
liðin
eru
80
ár
frá
því
að
þau
urðu
til
þótt
þar
komi
fram
upplýsingar
er
varða
fjárhags-
og
einkamálefni
einstaklinga,
þar
á
meðal
persónuupplýsingar
sem
teljast
viðkvæmar
í
skilningi
8.
tölul.
2.
gr.
laga
um
persónuvernd
og
meðferð
persónuupplýsinga,
svo
og
upplýsingar
um
vernd
vitna,
brotaþola
og
annarra
sem
fjallað
er
um
í
skjölum
hjá
lögreglu,
ákæruvaldi,
dómstólum
og
stjórnvöldum
sem
hafa
vald
til
að
beita
stjórnsýsluviðurlögum.
Þrátt
fyrir
ákvæði
2.
mgr.
er
óheimilt
að
veita
aðgang
að
sjúkraskrám
og
öðrum
skrám
um
heilsufarsupplýsingar
nafngreindra
manna
fyrr
en
liðin
eru
100
ár
frá
síðustu
færslu
í
skrárnar.
Þrátt
fyrir
ákvæði
2.
mgr.
er
aðgangur
að
aðalmanntölum,
prestþjónustubókum
og
sóknarmanntölum
heimill
þegar
liðin
eru
50
ár
frá
því
að
upplýsingar
voru
færðar.
27. gr. Upplýsingar um atvinnu-, framleiðslu- eða viðskiptaleyndarmál.
Óheimilt er að veita aðgang að skjölum sem hafa að geyma upplýsingar sem snerta virka og mikilvæga hagsmuni einstaklings eða fyrirtækis um atvinnu-, framleiðslu- eða viðskiptaleyndarmál.
28. gr. Upplýsingar um mikilvæga almannahagsmuni.
Opinbert skjalasafn getur við afhendingu skjala ákveðið, að höfðu samráði við viðeigandi afhendingaraðila, að skjal verði fyrst aðgengilegt þegar liðin eru allt að 40 ár frá því að það varð til ef það þykir nauðsynlegt til að vernda virka almannahagsmuni, enda hafi það að geyma upplýsingar um:
- öryggi ríkisins eða varnarmál,
- samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir,
- bréfaskipti við sérfróða aðila til afnota í dómsmáli eða við athugun á því hvort slíkt mál skuli höfðað,
- efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins,
- viðskipti stofnana og fyrirtækja í eigu ríkis og sveitarfélaga, að því leyti sem þau eru í samkeppni við aðra,
- umhverfismál ef birting skjalsins getur haft alvarleg áhrif á vernd þess hluta umhverfisins sem upplýsingar þess varða, t.d. heimkynni fágætra tegunda lífvera, steinda, steingervinga og bergmyndana.
Veita skal aðgang að skjölum sem 6. tölul. 1. mgr. tekur til þegar ekki er lengur ástæða til að ætla að miðlun upplýsinganna geti haft skaðleg áhrif á umhverfið.
29. gr. Sérstakar aðstæður.
Þegar sérstaklega stendur á getur opinbert skjalasafn ákveðið að synja um aðgang að skjali sem er yngra en 110 ára, svo sem þegar það hefur að geyma upplýsingar um einkamálefni einstaklings sem enn er á lífi eða um almannahagsmuni er að ræða.
VI. KAFLI Aðgangur hins skráða að skjölum opinberra skjalasafna.
30. gr. Upplýsingaréttur hins skráða.
Opinberu
skjalasafni
er
skylt,
sé
þess
óskað,
að
veita
aðila
sjálfum
aðgang
að
skjölum
um
hann
þegar
liðin
eru
30
ár
frá
því
að
þau
urðu
til
enda
gildi
ekki
þær
takmarkanir
um
skjalið
sem
fram
koma
í
27.
og
28.
gr.
Heimilt
er
að
takmarka
aðgang
aðila
að
skjölum
skv.
1.
mgr.
ef
þau
hafa
jafnframt
að
geyma
upplýsingar
um
einkamálefni
annarra,
enda
vegi
þeir
hagsmunir,
sem
mæla
með
því
að
upplýsingunum
sé
haldið
leyndum,
þyngra
en
hagsmunir
þess
sem
fer
fram
á
aðgang
að
skjölum.
Ef
ákvæði
27.
gr.
og
2.
mgr.
þessarar
greinar
eiga
aðeins
við
um
hluta
skjals
skal
veita
aðgang
að
öðru
efni
skjalsins
ef
unnt
er
að
skilja
upplýsingar
sem
falla
undir
undantekningar
frá
þeim
upplýsingum
sem
veita
má
aðgang
að.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
mgr.
fer
um
rétt
sjúklings
til
aðgangs
að
sjúkraskrá
sinni
samkvæmt
ákvæðum
14.
gr.
laga
um
sjúkraskrár.
Opinbert
skjalasafn
veitir
aðgang
að
sjúkraskrám
sem
eru
í
vörslu
þess.
VII. KAFLI
Aðgangur að skjölum sem undanþegin eru upplýsingarétti skv. V. og VI. kafla.
31. gr. Ákvörðun um aðgang að skjölum sem undanþegin eru upplýsingarétti skv. V. og VI. kafla.
Heimilt
er
að
óska
eftir
aðgangi
að
skjali
sem
undanþegið
er
upplýsingarétti
skv.
V.
og
VI.
kafla
sem
nauðsynlegur
er
í
þágu
vísindarannsóknar,
réttindagæslu
eða
af
öðrum
sambærilegum
ástæðum.
Í
umsókn
skal
upplýst
í
hvaða
tilgangi
óskað
er
eftir
aðgangi
að
skjalinu.
Opinberu
skjalasafni
er
heimilt
að
veita
aðgang
að
skjölum
ef
ætla
má
að
hægt
sé
að
verða
við
umsókn
án
þess
að
skerða
þá
almanna-
og
einkahagsmuni
sem
ákvæðum
V.
og
VI.
kafla
er
ætlað
að
vernda.
Svar
við
ósk
um
slíkan
aðgang
skal
vera
skriflegt.
32. gr. Aðgangur að skjali háður samþykki eða skilyrði.
Áður
en
veittur
er
aðgangur
að
skjali
skv.
31.
gr.
skal
afla
samþykkis
Persónuverndar
ef
skjalið
hefur
verið
afhent
af
afhendingarskyldum
aðila
og
það
hefur
að
geyma
persónugreinanlegar
upplýsingar
og
vinnsla
með
upplýsingarnar
hefur
fallið
undir
lög
um
persónuvernd
og
meðferð
persónuupplýsinga.
Persónuvernd
getur
bundið
samþykki
sitt
skilyrðum.
Opinbert
skjalasafn
getur
einnig
sett
skilyrði
fyrir
aðgangi
að
skjölum
og
gögnum
samkvæmt
þessari
grein.
Skilyrðin
skulu
byggð
á
sjónarmiðum
um:
- eðli þeirra upplýsinga sem veittur er aðgangur að,
- þann tilgang sem umsókn skv. 31. gr. byggist á.
Sem skilyrði geta afhendingarskyldir aðilar eða Persónuvernd sett að:
- upplýsingum um einkamálefni, þ.m.t. fjárhagsmálefni, sé ekki miðlað áfram,
- ekki sé haft samband við einstaklinga sem eru nefndir í skjalinu sem veittur er aðgangur að eða skyld- og venslamenn þeirra,
- skjalið verði ekki birt í heild sinni,
- ekki verði tekið afrit af skjalinu,
- þær upplýsingar sem veittur er aðgangur að verði ekki birtar í rannsóknaniðurstöðum á persónugreinanlegan hátt.
Þegar
sérstaklega
stendur
á
er
heimilt
að
setja
önnur
skilyrði
en
fram
koma
í
3.
mgr.
Persónuvernd
skal
að
jafnaði
hafa
30
daga
til
þess
að
svara
opinberum
skjalasöfnum
um
hvort
hún
veiti
samþykki
sitt
fyrir
því
að
veittur
verði
aðgangur
að
tilteknu
skjali.
Hafi
erindi
opinbers
skjalasafns
ekki
verið
svarað
innan
30
daga
skal
skýra
safninu
frá
ástæðum
tafanna
og
hvenær
ákvörðunar
sé
að
vænta.
Ráðherra
getur,
að
fengnum
tillögum
Persónuverndar,
sett
reglur
um
skilyrði
fyrir
notkun
ákveðinna
tegunda
skjala
sem
undir
þennan
kafla
heyra
og
hafa
að
geyma
persónuupplýsingar
sem
falla
undir
lög
um
persónuvernd
og
meðferð
persónuupplýsinga.
Þarf
þá
ekki
að
leita
samþykkis
Persónuverndar
um
skjöl
sem
undir
slíkar
reglur
falla.
33. gr. Þagnarskylda.
Sá sem fær aðgang að skjölum sem falla undir þennan kafla má ekki birta, afhenda eða nota upplýsingar sem hann hefur þannig fengið aðgang að á annan hátt en mælt er fyrir um í leyfi hins opinbera skjalasafns.
VIII. KAFLI Öryggismálasafn og aðgangur að því.
34. gr. Öryggismálasafn.
Þjóðskjalasafn
Íslands
skal
hafa
sérstakt
safn,
öryggismálasafn,
sem
varðveitir
öll
skjöl
og
skráðar
heimildir
sem
verið
hafa
í
vörslum
afhendingarskyldra
aðila
og
snerta
öryggismál
Íslands,
innra
og
ytra
öryggi,
á
árunum
1945–1991.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
mgr.
15.
gr.
skulu
afhendingarskyldir
aðilar
afhenda
Þjóðskjalasafni
Íslands
öll
skjöl
og
skráðar
heimildir
sem
eru
í
vörslum
þeirra
og
varða
öryggismál
Íslands,
innra
og
ytra
öryggi,
á
árunum
1945–1991.
Útbúin
skal
skrá
yfir
öll
mál
og
skjöl
þeirra
sem
tilheyra
þessari
deild
safnsins.
35. gr. Aðgangur almennings að öryggismálasafni.
Þjóðskjalasafni
Íslands
er
skylt,
sé
þess
óskað,
að
veita
almenningi
aðgang
að
skjölum
öryggismálasafns,
enda
komi
þar
ekki
fram
upplýsingar
sem
falla
undir
ákvæði
3.
eða
4.
mgr.
37.
gr.
Ef
ákvæði
3.
og
4.
mgr.
37.
gr.
eiga
aðeins
við
um
afmarkaðan
hluta
skjals
skal
afmá
þær
upplýsingar
og
veita
almenningi
aðgang
að
öðru
efni
skjalsins.
36. gr. Aðgangur hins skráða að öryggismálasafni.
Þjóðskjalasafni
Íslands
er
skylt,
sé
þess
óskað,
að
veita
aðila
sjálfum
aðgang
að
skjölum
í
öryggismálasafni
ef
þau
hafa
að
geyma
persónugreinanlegar
upplýsingar
um
hann
sjálfan.
Ef
í
skjali
koma
jafnframt
fram
persónugreinanlegar
upplýsingar
um
aðra
einstaklinga
sem
falla
undir
3.
eða
4.
mgr.
37.
gr.
skal
afmá
þær
upplýsingar
úr
ljósriti
eða
afriti
skjals
áður
en
aðila
er
veittur
aðgangur
að
því
nema
sá
sem
í
hlut
á
hafi
samþykkt
opinbera
birtingu
upplýsinganna,
sbr.
5.
mgr.
37.
gr.
Nú
er
einstaklingur
látinn
sem
upplýsingar
varða
skv.
1.
mgr.,
og
getur
þá
maki
hans,
börn
og
barnabörn,
sem
náð
hafa
18
ára
aldri,
óskað
eftir
aðgangi
að
upplýsingum
um
hann
skv.
1.
mgr.
Hið
sama
gildir
um
systkini
hins
látna
eigi
hann
ekki
á
lífi
maka,
börn
eða
barnabörn.
37. gr. Aðgangur fræðimanna að öryggismálasafni.
Öll
skjöl
öryggismálasafns,
svo
og
skrá
skv.
3.
mgr.
34.
gr.,
skulu
vera
aðgengileg
fræðimönnum
í
Þjóðskjalasafni
Íslands
að
uppfylltum
skilyrðum
þessarar
greinar.
Sá
sem
fær
aðgang
að
skjölum
öryggismálasafns
skal
áður
skrifa
undir
yfirlýsingu
þar
sem
hann
heitir
því
að
virða
þagnarskyldu
skv.
3.
og
4.
mgr.,
svo
og
önnur
ákvæði
þessarar
greinar.
Óheimilt
er
fræðimanni
að
skýra
frá
eða
miðla
á
annan
hátt
persónugreinanlegum
upplýsingum
um
lifandi
einstaklinga
sem
taldir
voru
geta
ógnað
öryggi
ríkisins
samkvæmt
skjölum
safnsins
nema
sá
samþykki
sem
í
hlut
á.
Óheimilt
er
að
skýra
frá
eða
miðla
á
annan
hátt
persónugreinanlegum
upplýsingum
um
viðkvæm
einkamálefni
einstaklinga
sem
sanngjarnt
er
og
eðlilegt
að
leynt
fari
og
finna
má
í
skjölum
öryggismálasafns
nema
sá
samþykki
sem
í
hlut
á.
Þetta
bann
fellur
niður
þegar
liðin
eru
80
ár
frá
því
að
gögn
urðu
til.
Eftir
því
sem
skráningu
mála
í
öryggismálasafni
vindur
fram
skal
Þjóðskjalasafn
Íslands
skrifa
þeim
einstaklingum
sem
á
lífi
eru
eða
nánum
vandamanni
hins
látna,
sbr.
36.
gr.,
bréf,
komi
fram
upplýsingar
í
gögnum
öryggismálasafns
um
þá
sem
falla
undir
3.
og
4.
mgr.,
og
kanna
hvort
þeir
vilji
veita
samþykki
sitt
fyrir
því
að
birta
megi
opinberlega
upplýsingar
um
þá.
Með
bréfinu
skulu
fylgja
almennar
leiðbeiningar
um
það
hvaða
réttaráhrif
það
hefur
að
veita
slíkt
samþykki.
Samþykki
skv.
3.–5.
mgr.
skal
vottað
af
lögbókanda
eða
tveimur
lögráða
vitundarvottum.
Það
skal
skýlaust
tekið
fram
að
útgefandi
samþykkisins
hafi
ritað
nafn
sitt
eða
kannast
við
undirskrift
sína
í
viðurvist
þess
eða
þeirra
er
undirskriftina
staðfesta,
svo
og
að
hann
hafi
verið
sjálfráða
er
hann
ritaði
nafn
sitt.
Fræðimönnum
er
óheimilt
að
taka
út
af
safninu
ljósrit,
ljósmynd
eða
stafræna
mynd
af
skjölum
hafi
þau
að
geyma
upplýsingar
sem
falla
undir
3.
eða
4.
mgr.
nema
sá
sem
í
hlut
á
hafi
samþykkt
opinbera
birtingu
upplýsinganna,
sbr.
5.
mgr.,
eða
veitt
sérstakt
samþykki
fyrir
heimild
til
afhendingar
á
ljósriti
af
skjalinu
til
fræðimannsins
sem
afhent
skal
Þjóðskjalasafni
Íslands.
Til
fræðimanna
í
skilningi
þessarar
greinar
teljast
þeir
sem
hafa
stundað
fræðirannsóknir
í
hug-
eða
félagsvísindum
og
birt
rannsóknir
sínar
á
viðurkenndum
vettvangi.
Fræðimaður
skal
sýna
fram
á
að
gögn
öryggismálasafns
hafi
mikilsverða
þýðingu
fyrir
rannsókn
sem
hann
vinnur
að.
Persónugreinanlegar
upplýsingar
í
skilningi
3.
og
4.
mgr.
teljast
þær
upplýsingar
sem
beint
eða
óbeint
má
rekja
til
tiltekins
einstaklings,
látins
eða
lifandi.
38. gr. Afhending utanríkisráðuneytis á gögnum til öryggismálasafns.
Áður
en
gögn
utanríkisráðuneytisins
sem
falla
undir
34.
gr.
eru
afhent
öryggismálasafni
skulu
þau
skoðuð
og
skráð
til
afhendingar
í
samræmi
við
fyrirmæli
Þjóðskjalasafns
Íslands.
Skjöl
sem
íslenska
ríkið
hefur
skuldbundið
sig
með
þjóðréttarsamningi
við
Norður-
Atlantshafsbandalagið
til
að
halda
leyndum
skulu
ekki
afhent
öryggismálasafni.
Skjöl
sem
hafa
að
geyma
upplýsingar
um
virka
varnar-
og
öryggishagsmuni
íslenska
ríkisins
skulu
ekki
afhent
öryggismálasafni
ef:
- þau hafa ekki náð 30 ára aldri eða
- sérstök ákvæði laga um þagnarskyldu takmarka rétt almennings til aðgangs að þeim.
IX. KAFLI
Skjöl rannsóknarnefnda og annarra verkefna á vegum Alþingis.
39. gr. Skjöl rannsóknarnefnda og annarra verkefna á vegum Alþingis.
Þjóðskjalasafn
Íslands
varðveitir
skjöl
og
gagnagrunna
sem
orðið
hafa
til
í
störfum
rannsóknarnefnda
og
öðrum
verkefnum
á
vegum
Alþingis
sem
stofnað
er
til
í
samræmi
við
ákvæði
laga.
Um
aðgang
að
slíkum
skjölum
og
gagnagrunnum
fer
samkvæmt
ákvæðum
viðeigandi
laga,
upplýsingalaga
eða
þessara
laga
eftir
því
sem
við
á.
X. KAFLI Málsmeðferð, stjórnsýslukæra og ábyrgð.
40. gr. Beiðni um aðgang að skjölum.
Sá
sem
fer
fram
á
aðgang
að
skjölum
á
grundvelli
V.–IX.
kafla
skal
tilgreina
skjölin
eða
upplýsingarnar
sem
hann
óskar
eftir
að
fá
aðgang
að
á
eyðublaði
sem
viðeigandi
opinbert
skjalasafn
leggur
til.
Beiðni
um
aðgang
að
skjölum
skal
varða
skjöl
sem
eru
í
vörslum
viðeigandi
safns
en
því
er
ekki
skylt
að
afla
sérstaklega
skjala
frá
öðrum
aðilum
til
þess
að
láta
þau
í
té.
Um
meðferð
opinbers
skjalasafns
á
beiðnum
skv.
V.
og
VI.
kafla
fer
eftir
ákvæðum
IV.
kafla
upplýsingalaga
eftir
því
sem
við
getur
átt.
Opinbert
skjalasafn
getur
vísað
frá
beiðni
um
aðgang
að
skjölum
ef
tilgreining
skjals
eða
þeirra
upplýsinga
sem
óskað
er
eftir
aðgangi
að
er
of
óljós
til
að
hægt
sé
að
afgreiða
beiðnina
án
verulegrar
fyrirhafnar.
Áður
en
til
þess
kemur
ber
að
veita
málsaðila
leiðbeiningar
þar
um
og
gefa
honum
færi
á
að
afmarka
beiðni
sína
nánar.
41. gr. Álitsumleitan.
Áður en opinbert skjalasafn tekur ákvörðun um aðgang að skjölum getur það skorað á þann afhendingarskylda aðila sem lét skjalið af hendi eða þann sem upplýsingarnar varða að upplýsa hvort efni þeirra varði viðkvæma hagsmuni sem leyndar eiga að njóta samkvæmt lögum þessum. Veita skal frest í sjö virka daga til þess að svara erindinu.
42. gr. Málshraði og málsmeðferð.
Opinbert
skjalasafn
skal
taka
ákvörðun
um
hvort
orðið
verður
við
beiðni
um
aðgang
að
skjölum
svo
fljótt
sem
verða
má.
Hafi
beiðni
ekki
verið
afgreidd
innan
25
virkra
daga
frá
móttöku
hennar
skal
skýra
aðila
frá
ástæðum
tafarinnar
og
hvenær
ákvörðunar
sé
að
vænta.
Sé
beðið
um
aðgang
að
gögnum
á
grundvelli
VI.
eða
VII.
kafla
er
fyrrnefndur
frestur
30
virkir
dagar
að
viðbættum
þeim
tíma
sem
lög
gera
ráð
fyrir
að
taki
að
afla
álits
eða
samþykkis,
þar
sem
það
á
við.
Um
málsmeðferð
fer
að
öðru
leyti
eftir
stjórnsýslulögum.
43. gr. Leiðbeiningar um höfundarétt.
Þegar afgreidd er beiðni um aðgang að skjölum sem höfundaréttur tekur til skal veita upplýsingar um nafn rétthafa liggi þær fyrir.
44. gr. Ljósrit eða afrit af skjölum o.fl.
Opinber
skjalasöfn
skulu
veita
aðgang
að
skjölum
í
því
formi
eða
með
því
sniði
sem
skjölin
eru
varðveitt
í
nema
þau
séu
þegar
aðgengileg
almenningi.
Þegar
upplýsingar
eru
varðveittar
á
rafrænu
formi
getur
aðili
valið
á
milli
þess
að
fá
þær
í
því
formi
eða
útprentaðar
á
pappír
þegar
því
verður
við
komið.
Við
veitingu
aðgangsins
skal
beita
viðeigandi
öryggisráðstöfunum
sem
taka
mið
af
eðli
gagnanna.
Þegar
skjöl
eru
mörg
geta
opinber
skjalasöfn
ákveðið
að
fela
öðrum
að
sjá
um
ljósritun
eða
afritun
þeirra.
Þá
skal
sá
aðili
sem
óskað
hefur
aðgangs
að
umræddum
skjölum
greiða
þann
kostnað
sem
hlýst
af
ljósritun
eða
afritun
þeirra.
Þegar
óskað
er
eftir
aðgangi
að
gögnum
þrotabús
eða
öðrum
óskráðum
eða
óflokkuðum
skjölum
er
opinberu
skjalasafni
heimilt
að
taka
gjald
fyrir
þá
vinnu
og
kostnað
sem
af
því
hlýst.
Þjóðskjalasafni
Íslands
er
heimilt
að
innheimta
gjald
fyrir
ljósritun
og
afritun
gagna
sem
safnið
afhendir
samkvæmt
lögum
þessum.
Gjaldtakan
skal
ákveðin
í
gjaldskrá,
staðfestri
af
ráðherra,
og
skal
hún
birt
í
B-deild
Stjórnartíðinda.
Gjaldskráin
skal
einnig
birt
notendum
þjónustu
safnsins
á
aðgengilegan
hátt.
Héraðsskjalasöfnum
er
heimilt
að
innheimta
gjald
fyrir
ljósritun
og
afritun
gagna
sem
afhent
eru
samkvæmt
lögum
þessum.
Gjaldtakan
skal
ákveðin
af
stjórn
safns
með
gjaldskrá
sem
skal
birt
notendum
á
aðgengilegan
hátt.
Sé
safninu
ekki
skipuð
stjórn
ákveður
sveitarstjórn
gjaldtökuna.
Umrædd
gjöld
skulu
ekki
vera
hærri
en
raunkostnaður
viðkomandi
safns
vegna
þjónustunnar
og
er
þeim
ætlað
að
standa
straum
af
eftirfarandi
kostnaðarþáttum
við
hana:
- launum starfsfólks sem sinnir þjónustunni,
- sérstökum efniskostnaði vegna þjónustunnar,
- eðlilegum afskriftum af þeim búnaði sem notaður er við afritun gagna.
Ef fyrirsjáanlegt er að kostnaður við afritun eða ljósritun verði meiri en 10.000 kr. er heimilt að krefjast fyrirframgreiðslu.
45. gr. Rökstuðningur og tilkynning ákvörðunar um synjun aðgangs.
Ákvörðun opinbers skjalasafns um að synja beiðni um aðgang að skjölum, að hluta eða í heild, skal rökstudd og tilkynnt skriflega. Hið sama gildir ef synjað er beiðni um ljósrit eða afrit af umbeðnum skjölum.
46. gr. Kæruheimild.
Heimilt er að kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál:
- synjun á beiðni um aðgang að skjölum samkvæmt lögum þessum,
- synjun á beiðni um ljósrit af skjölum eða afrit af öðrum gögnum,
- ákvörðun um að takmarka aðgang að tilteknu skjali í allt að 40 ár á grundvelli 1. mgr. 28. gr. sé synjun opinbers skjalasafns um aðgang að skjalinu byggð á henni.
Um
meðferð
kærumála
skv.
1.
mgr.
gilda
ákvæði
V.
kafla
upplýsingalaga.
Um
meðferð
ákvörðunar
Þjóðskjalasafns
Íslands
skv.
2.
og
3.
mgr.
10.
gr.
fer
samkvæmt
ákvæðum
stjórnsýslulaga.
Heimilt
er
að
kæra
til
ráðherra
ákvörðun
Þjóðskjalasafns
Íslands
um
afhendingarskyldu
lögaðila
til
opinbers
skjalasafns.
Heimilt
er
að
kæra
til
ráðherra
synjun
Þjóðskjalasafns
Íslands
sem
byggð
er
á
8.
mgr.
37.
gr.
Aðrar
ákvarðanir
en
að
framan
greinir
og
teknar
eru
samkvæmt
lögum
þessum
verða
ekki
kærðar
til
ráðherra.
XI. KAFLI Viðurlög og reglugerðarheimild.
47. gr. Refsingar og skaðabætur.
Það varðar mann sektum eða fangelsi allt að þremur árum ef:
- hann vanrækir afhendingarskyldu skv. 4. mgr. 14. gr.,
- hann ber ábyrgð á skjalastjórn og skjalavörslu skv. 22. gr. og hagar skráningu mála eða flokkun eða frágangi skjala í andstöðu við ákvæði reglna skv. 23. gr.,
- hann grípur ekki til ráðstafana skv. 4. mgr. 22. gr.,
- hann brýtur ákvæði 24. gr.,
- hann brýtur gegn þagnarskyldu skv. 33. gr.,
- hann brýtur gegn ákvæði 3., 4. eða 7. mgr. 37. gr.
Það
varðar
mann
sektum
ef
hann
vanrækir
afhendingarskyldu
samkvæmt
ákvæðum
6.
mgr.
14.
gr.
eða
3.
mgr.
16.
gr.
Brot
skv.
1.
mgr.
varða
mann
refsiábyrgð
ef
þau
eru
framin
af
ásetningi
eða
stórkostlegu
gáleysi.
Brot
skv.
2.
mgr.
varða
mann
refsiábyrgð
ef
þau
eru
framin
af
ásetningi
eða
gáleysi.
Gera
má
lögaðila
sekt
vegna
brots
skv.
1.
eða
2.
mgr.
óháð
sök
fyrirsvarsmanns
lögaðilans,
starfsmanns
hans
eða
annars
á
hans
vegum
í
starfsemi
lögaðilans.
Lögaðila
verður
gerð
refsing
þó
að
ekki
verði
staðreynt
hver
þessara
aðila
hafi
átt
í
hlut.
Refsiábyrgð
stjórnvalda
er
bundin
sömu
skilyrðum,
enda
hafi
verið
framið
brot
skv.
1.
eða
2.
mgr.
í
starfsemi
sem
telst
vera
sambærileg
starfsemi
einkaaðila.
Tilraun
til
brota
og
hlutdeild
í
brotum
skv.
1.
og
2.
mgr.
eru
manni
refsiverð
eftir
því
sem
segir
í
almennum
hegningarlögum.
Nú
brýtur
maður
eitt
eða
fleiri
af
þeim
ákvæðum
sem
talin
eru
upp
í
e-
og
f-lið.
1.
mgr.
af
ásetningi
eða
gáleysi
og
má
þá
dæma
hann
til
að
greiða
þeim
sem
upplýsingarnar
varða
bætur
fyrir
fjártjón
og
miska.
48. gr. Heimild til setningar reglugerða.
Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna í heild eða einstakra kafla þeirra.
XII. KAFLI Gildistaka o.fl.
49. gr. Gildistaka.
Lög
þessi
öðlast
þegar
gildi.
Um
leið
falla
úr
gildi
lög
nr.
66/1985,
um
Þjóðskjalasafn
Íslands,
með
síðari
breytingum.
Ákvæði
laganna
gilda
um
öll
afhendingarskyld
skjöl
án
tillits
til
þess
hvenær
þau
urðu
til
eða
hvenær
þau
hafa
borist
afhendingarskyldum
aðilum.
50. gr. Breytingar á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara breytast eftirfarandi ákvæði laga sem hér segir:
-
Lög
um
persónuvernd
og
meðferð
persónuupplýsinga,
nr.
77/2000:
Á
eftir
15.
gr.
laganna
kemur
ný
grein,
15.
gr.
a,
svohljóðandi:
Heimilt er að afhenda opinberu skjalasafni upplýsingar, sem falla undir lög þessi, til varðveislu í samræmi við ákvæði laga -
Lög
um
upplýsingarétt
um
umhverfismál,
nr.
23/2006:
3.
mgr.
7.
gr.
laganna
orðast
svo:
Um aðgang að gögnum sem 3. tölul. 1. mgr. 6. gr. tekur til fer samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn enda séu gögnin orðin 30 ára eða eldri. -
Lög
um
Hagstofu
Íslands
og
opinbera
hagskýrslugerð,
nr.
163/2007:
Við
lögin
bætist
nýtt
ákvæði
til
bráðabirgða,
svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 12. gr. er Hagstofu Íslands heimilt að afhenda Þjóðskjalasafni Íslands trúnaðargögn sem safnað var vegna manntals sem fór fram á grundvelli laga nr. 76/1980, um manntal 31. janúar 1981. Um aðgang að gögnunum fer samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 26. gr. laga um opinber skjalasöfn. - Lög um sjúkraskrár, nr. 55/2009: 2. málsl. 11. gr. laganna orðast svo: Um skyldu til að afhenda sjúkraskrár til opinberra skjalasafna, varðveislu þeirra og aðgang að þeim þar gilda ákvæði laga um opinber skjalasöfn.
- Lög um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011: 2. málsl. 4. mgr. 13. gr. laganna orðast svo: Um aðgang að þeim fer samkvæmt ákvæðum upplýsingalaga og laga um opinber skjalasöfn.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
mgr.
10.
gr.
er
sveitarfélögum
og
byggðasamlögum
sem
reka
héraðsskjalasafn
við
gildistöku
laga
þessara
heimilt
að
reka
slíkt
safn
án
þess
að
hafa
fengið
útgefið
rekstrarleyfi
í
þrjú
ár
frá
því
að
reglugerð
ráðherra
um
leyfi
til
reksturs
héraðsskjalasafns
tekur
gildi.
Þrátt
fyrir
ákvæði
2.
og
3.
mgr.
10.
gr.
er
sveitarfélögum
og
byggðasamlögum
ekki
skylt
að
flytja
safngögn
til
Þjóðskjalasafns
eða
afhenda
þau
því
fyrr
en
þremur
árum
eftir
gildistöku
reglugerðar
ráðherra
um
leyfi
til
reksturs
héraðsskjalasafns.
Gjört á Bessastöðum, 28. maí 2014.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Bjarni Benediktsson.
A deild - Útgáfud.: 11. júní 2014