Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

30. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1562/2025

1. desember 2025

REGLUR

um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2026.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2026 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2026.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2026 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 141 pr. lítra
Egg 719 pr. kg
Kartöflur 215 pr. kg
Rófur 210 pr. kg
Gulrætur 573 pr. kg
Lambakjöt 875 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 268 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 186 pr. kg
Ungnautakjöt 885 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 522 pr. kg
Folaldakjöt 390 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 169 pr. kg
Grísakjöt 632 pr. kg
Annað svínakjöt 324 pr. kg
Kjúklingar 572 pr. kg
Annað fuglakjöt 939 pr. kg
Lax og silungur 979 pr. kg
Annar fiskur 452 pr. kg

Reykjavík, 1. desember 2025.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025

Tengd mál