Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Mannvirki, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

16. desember 2025

Útgáfudagur

22. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1436/2025

16. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir skipulags- og byggingarmál í Dalvíkurbyggð.

1. gr. Almennt.

Vegna leyfisveitinga á sviði skipulags- og byggingarmála í Dalvíkurbyggð eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúar Dalvíkurbyggðar veita skal innheimta þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um. Gjaldskráin er sett með heimild í skipulagslögum nr. 123/2010 og lögum um mannvirki nr. 160/2010. Dalvíkurbyggð nefnist í gjaldskrá þessari leyfisveitandi og annast innheimtu samkvæmt gjaldskránni.

2. gr. Gjöld vegna leyfisveitinga á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010.

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að sá aðili sem óskar eftir breytingu á skipulagsáætlun eða gerð nýs skipulags skuli greiða þann kostnað sem vinnan hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Skipulagsráð getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á því svæði sem um ræðir eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

Eftirtalin gjöld eru innheimt af hálfu sveitarfélagsins vegna skipulagsvinnu:

Nr. Tegund þjónustu Gjald (kr.)
1. Veruleg breyting á aðalskipulagi, sbr. 1. mgr. 36. gr. Aðkeypt vinna skv. reikningi
2. Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. 154.800
3. Óveruleg breyting á aðalskipulagi, sbr. 2. mgr. 36. gr. Aðkeypt vinna skv. reikningi
4. Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 2.mgr. 36. gr. 82.560
5. Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. Aðkeypt vinna skv. reikningi
6. Veruleg breyting á deiliskipulagi, sbr. 1. mgr. 43. gr. Aðkeypt vinna skv. reikningi
7. Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. og 1. mgr. 43. gr. 154.800
8. Óveruleg breyting á deiliskipulagi, sbr. 2. mgr. 43. gr. Aðkeypt vinna skv. reikningi
9. Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. 87.720
10. Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 3. mgr. 44. gr. 51.600
11. Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr., deiliskipulag ekki til staðar 47.472
12. Framkvæmdaleyfi skv. 1. og 2. viðauka laga nr. 111/2021 154.800
13. Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir 43.421
14. Kostnaður við eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum, s.s. aðkeypt ráðgjöf o.fl. Aðkeypt vinna skv. reikningi

3. gr. Gjöld vegna leyfisveitinga á grundvelli laga um mannvirki nr. 160/2010.

Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra sem gerðir eru vegna

nýbygginga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Dalvíkurbyggðar

skal byggingarfulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

4. gr. Byggingarleyfisgjöld.

Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling innan byggingarreits, lögboðið byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt. Byggingarleyfisgjald skiptist í afgreiðslugjald og fermetragjald eins og fram kemur í eftirfarandi töflu:

Tegund bygginga Afgreiðslugjald (kr.) Fermetragjald (kr.)
A Íbúðarhúsnæði, bílgeymslur og gistihús 129.223 323
B Stofnanir, verslunar- og þjónustuhús 129.223 13
C Frístundahús 96.916 323
D Gripahús, iðnaðarhús og sérbyggðar bílgeymslur 96.916 127
E Vélageymslur, gróðurhús og eldishús 96.916 83
F Aðstöðuhús, geymslur, gestahús og sambærilegt 48.459 323
G Tilkynningarskyldar framkvæmdir skv. gr. 2.3.6 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 14.889  
H Niðurrif og afskráning húsnæðis. 14.889  
I Yfirferð sérteikninga skv. reikningi - hámark   191.298

Vegna viðbyggingar við áður byggð hús skal greiða kr. 48.459 afgreiðslugjald og fermetragjald samkvæmt töflu um viðeigandi húsagerð.

5. gr.

Fermetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttóflatarmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án B- og C- rýma. Fermetra skal námunda í heilan fermetra samkvæmt almennum reiknireglum.

6. gr.

Gjalddagi afgreiðslu- og fermetragjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, fyrr en afgreiðslu- og byggingarleyfisgjöld hafa verið greidd.

7. gr.

Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.

8. gr. Önnur afgreiðslu- og þjónustugjöld.

Fyrir ýmsa þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld:

Nr. Tegund þjónustu Gjald (kr.)
1. Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári.  
  a) Hjólhýsi, hús, bátar, sumarhús, söluvagnar o.fl. 38.172
  b) Gámar:  
  Fyrir 20 feta gám eða minni, veitt til eins árs 36.120
  Fyrir 40 feta gám, veitt til eins árs 61.920
2. Stofnun lóðar 38.000
3. Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þótt lóð sé skilað til sveitarfélagsins 127.015
4. Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga (hver umfjöllun) 65.758
5. Úttekt, leyfi og umsagnir vegna vínveitinga- og rekstrarleyfa 13.150
6. Úttekt vegna leiguhúsnæðis (hver úttekt) 13.150
7. Úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar 13.150
8. Útprentun á A3 361
9. Útprentun á A4 206
10. Nýr lóðarleigusamningur 65.735
11. Endurnýjun lóðarleigusamnings eða breyting á samningi 30.960
12. Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs (merkjalýsingar) 60.000
13. Útsetning húss og lóðar (hver mæling) Sama
14. Endurmæling húss Sama
15. Endurmæling lóðar Sama
16. Hver endurskoðun aðaluppdrátta 22.966
17. Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa 24.235
18. Endurnýjun leyfis án breytinga á teikningum 17.229

9. gr. Innviðagjald fyrir frístundalóðir (utan þéttbýlis).

Af leigulóðum utan þéttbýlis í Dalvíkurbyggð þar sem ekki er lagt á gatnagerðargjald en sveitarfélagið kemur að uppbyggingu gatna og annarra innviða og úthlutar leigulóðum, skal greiða innviðagjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Gjaldið reiknast þannig út að fyrir hvern heimilan fermetra húss á lóð greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 163/2007. Hundraðshluti byggingarkostnaðar fyrir frístundahús er 7%.

Gjalddagar innviðagjalds skulu vera sem hér segir:

  1. Við lóðarúthlutun, sölu lóðar eða byggingarréttar skv. a-lið 3. gr. eða við útgáfu byggingarleyfis skv. b-lið sömu greinar skal greiða 50% af innviðagjaldi.
  2. Við útgáfu byggingarleyfis greiðist innviðagjald að fullu.

Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Af gjaldföllnu innviðagjaldi skulu greiðast dráttarvextir skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

Byggingarleyfisgjöld og stofngjöld veitna eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í innviðagjaldi.

10. gr. Tímagjald og aðkeypt vinna.

Ef vinna eða kostnaður leyfisveitanda við leyfisveitingu eða eftirlit er verulegur umfram gjald samkvæmt ofangreindum gjaldskrárliðum er heimilt að leggja á viðbótar tímagjald eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar þjónustu. Tímagjald vegna vinnu skipulags- og byggingarfulltrúa er kr. 21.000.

11. gr.

Gjaldskráin uppreiknast um 3,2% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar að hausti 2025.

12. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingarmál í Dalvíkurbyggð nr. 1423/2024.

Samþykkt í skipulagsráði Dalvíkurbyggðar 12. nóvember 2025.

Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. nóvember 2025.

Dalvík, 16. desember 2025.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 22. desember 2025

Tengd mál