Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar, Flutningar, Eldsneyti
Undirritunardagur
20. apríl 2016
Útgáfudagur
22. apríl 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 334/2016
20. apríl 2016
AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.
Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. maí 2016 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:
| Bifreiðabensín | 0,46 kr. á lítra | |
| Gasolía | 0,73 kr. á lítra | |
| Aðrar olíur og blöndur til brennslu | 0,15 kr. á kg | |
| Flugsteinolía (þotueldsneyti) | 0,10 kr. á lítra | |
| Flugvélabensín | 0,10 kr. á lítra |
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1175/2014.
Byggðastofnun, 20. apríl 2016.
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.
Elín
Gróa
Karlsdóttir,
formaður
stjórnar
Flutningsjöfnunar-
sjóðs
olíuvara.
B deild - Útgáfud.: 22. apríl 2016