Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Félagsmál

Undirritunardagur

17. nóvember 2025

Útgáfudagur

17. nóvember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1180/2025

17. nóvember 2025

REGLUGERÐ

um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur í desember 2025.

2. gr.

Þeir sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2025 og verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2025 eiga rétt á desemberuppbót að fjárhæð kr. 109.469 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

3. gr.

Þeir sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2025 og verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2025 en tryggðir hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

4. gr.

Þeir sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2025 en verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2025 eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 4. mgr.

Þeir sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2025 en verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2025 ásamt því að hafa verið tryggðir hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2025, sbr. þó 4. mgr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. skal desemberuppbót aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 27.367.

5. gr.

Vinnumálastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2025.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, öðlast þegar gildi.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 17. nóvember 2025.

Inga Sæland.

Ásgeir Runólfsson.

B deild — Útgáfudagur: 17. nóvember 2025

Tengd mál