Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
20. desember 2024
Útgáfudagur
30. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1665/2024
20. desember 2024
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2025.
Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Tekjuskattshlutfall á árinu 2025 verður 16,55% af tekjuskattsstofni að 5.664.062 kr., 23,05% af tekjuskattsstofni frá 5.664.063 kr. að 15.901.523 kr. og 31,35% af tekjuskattsstofni frá 15.901.524 kr. Meðalútsvar á árinu 2025 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,94%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2025 verður því 31,49% af tekjuskattsstofni að 5.664.062 kr., eða að 472.005 kr. að meðaltali á mánuði, 37,99% af tekjuskattsstofni frá 5.664.063 kr. að 15.901.523 kr., eða frá 472.006 kr. að 1.325.127 kr. að meðaltali á mánuði og 46,29% af tekjuskattsstofni frá 15.901.524 kr., eða frá 1.325.128 kr. að meðaltali á mánuði.
Samkvæmt A-lið 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2025 vera 824.288 kr., eða 68.691 kr. að meðaltali á mánuði.
Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, skal skattfrelsismark erfðafjárskatts í skattstofni dánarbús á árinu 2025 vera 6.498.129 kr.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. desember 2024.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. desember 2024