Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
29. desember 2025
Útgáfudagur
30. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1554/2025
29. desember 2025
REGLUR
um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að birta upplýsingar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Upplýsingaskylda fjármálafyrirtækja.
Fjármálafyrirtæki skal birta upplýsingar samkvæmt áttunda hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. 18. gr. laga um fjármálafyrirtæki, með þeim hætti og þeirri tíðni sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) 2024/3172, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3172 frá 29. nóvember 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla varðandi birtingu upplýsinga sem um getur í II. og III. bálk í 8. hluta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 og sem fellir úr gildi framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/637, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2025 frá 13. júní 2025.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3172 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=CELEX%3A32024R3172&qid=1748952346297, birt í OJ deild L, undirdeild R, þann 31. desember 2024.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 772/2023, um upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja.
Seðlabanka Íslands, 29. desember 2025.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Gísli Óttarsson
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 30. desember 2025