Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalabyggð

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Dalasýsla

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

20. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1691/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalabyggð og hreinsun rotþróa í Dalabyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 800/2014 um fráveitur í Dalabyggð.

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

  150 mm tenging eða minni 185.000 kr./tenging
  200 mm tenging 300.000 kr./tenging

Fyrir stærri heimtaugar greiðist raunkostnaður.

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur. Fyrir nýbyggingu skal ávallt leggja tvöfalt kerfi að lóðarmörkum. Á nýjum svæðum eru stofnlagnir aðgreindar.

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Fráveitugjald skal nema 0,19% af álagningarstofni fasteigna. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

  Stærð í lítrum    kr.
  0-2.000 11.726
  2.001-4.000 14.709
  4.001-6.000 16.749
  6.001-8.000 20.698
  8.001-10.000 27.369
  Rotþró > 10.000    7.821 pr. umframrúmmetra

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða 4.665 kr. Rotþró er tæmd þriðja hvert ár. Ákveði eigandi/forráðamaður eignar að tæma oftar greiðir hann allan kostnað af slíku.

5. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögsveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 11. desember 2025 staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 17/2025.

Búðardal, 15. desember 2025.

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 20. janúar 2026

Tengd mál