Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Grindavík

Undirritunardagur

21. september 2026

Útgáfudagur

5. október 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1058/2026

21. september 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar vegna breyttrar legu Norðurljósavegar og verslunar- og þjónustusvæðis VÞ9.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 21. september 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032 sem samþykkt var í bæjarstjórn 13. maí 2026. Í breytingunni felst að gerð er breyting á veglínu Norðurljósavegar og útfærslu gatnamóta við Grindarvíkurveg, auk þess sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ9) er minnkað úr 49,3 ha í 31,3 ha.

Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 21. september 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 5. október 2026

Tengd mál