Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands
Undirritunardagur
11. janúar 2026
Útgáfudagur
11. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 2/2026
11. janúar 2026
FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra:
1. gr.
4. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:
Félags- og húsnæðismálaráðherra.
Ragnar Þór Ingólfsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið skv. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og húsnæðismálaráðherra.
2. gr.
9. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:
Mennta- og barnamálaráðherra.
Inga Sæland fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og barnamálaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra.
3. gr.
Síðara ákvæði til bráðabirgða, sbr. 2. gr. forsetaúrskurðar nr. 87/2025, fellur brott.
4. gr.
Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 11. janúar 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild — Útgáfudagur: 11. janúar 2026