Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Strandabyggð
Málaflokkur
Sorphreinsun, Strandasýsla
Undirritunardagur
10. mars 2026
Útgáfudagur
25. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 284/2026
10. mars 2026
GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Strandabyggð.
1. gr.
Sveitarstjórn Strandabyggðar er heimilt að innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs, sbr. 10. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð, nr. 438/2025. Gjaldið skal lagt á allar íbúðir sem birtar eru í fasteignamati, aukaíbúðir í húsum sem birtar eru í fasteignamati sem og óskiptar eignir, lögbýli og atvinnuhúsnæði. Sorpgjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur grenndarstöðva. Sorpeyðingargjald greiðist til sveitarsjóðs Strandabyggðar og skulu gjalddagar vera hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.
2. gr.
Allir fasteignaeigendur í sveitarfélaginu Strandabyggð taka þátt í föstum kostnaði við meðhöndlun úrgangs. Fyrirtæki, stofnanir og aðrir rekstraraðilar í Strandabyggð greiða sömuleiðis árlegt fastagjald sem ætlað er til að taka þátt í rekstri grenndar- og söfnunarstöðva en greiða fyrir losun og eyðingu á öllum úrgangi samkvæmt gjaldskrá og/eða samningi við þjónustuaðila. Með greiðslu fastagjalds er rekstur grenndarstöðva Strandabyggðar tryggður. Þar er tekið við úrgangi sem skilgreindur er gjaldfrjáls sem og úrgangi sem ber úrvinnslugjald t.d. textíl, málmumbúðum og glerumbúðum. Sveitarfélaginu er heimilt að innheimta ákveðið gjald á hverja fasteignareiningu til að innheimta allt að 25% af heildarkostnaði sveitarfélagsins af viðkomandi þjónustu, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003.
Sorphirðu- og úrvinnslugjald, þ.e. árlegt fastagjald í Strandabyggð, er sem hér segir:
- Íbúðir í þéttbýli, 35.000 kr.
- Sumarhús í dreifbýli, 25.000 kr.
- Lögbýli, 35.000 kr.
- Fyrirtæki og rekstraraðilar, 35.000 kr.
3. gr.
Innheimt er tunnugjald vegna losunar úrgangs við heimili. Úrgangur sem safnað er við heimili er plast, pappír/pappi, óflokkanlegur heimilisúrgangur og lífúrgangur. Æskilegt er að sorptunnur séu staðsettar við framanvert hús og mikilvægt að gæta þess að aðgengi við losun sé ætíð sem best. Mikilvægt er að moka snjó frá sorptunnum að vetri. Tunnufestingar skulu vera þannig að auðvelt sé að losa þær og festa aftur. Ef tunnur eru lengra en 10 metra frá hirðubíl er innheimt hærra gjald fyrir losun. Tunnur skulu ekki fylltar meira en svo að þeim sé hægt að loka. Yfirfullar tunnur verða ekki losaðar og er fólki bent á móttökustöð.
Lífúrgangi verður safnað í fötur og safnað vikulega í þéttbýli. Gæta skal þess að fötur séu staðsettar við lóðarmörk á auglýstum söfnunardegi í sorpdagatali. Einnig er hægt að skipta lífúrgangsfötum á opnunartíma móttökustöðvar. Um tilraunaverkefni er að ræða og útfærsla gæti breyst.
Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu er 4.000 kr. í hvert sinn sem óskað er breytinga. Á það við um breytingu á íláti/tunnum, viðbótarílát eða breytingu á skráningu, svo sem samnýtingu á tunnum/ílátum. Ósk um breytingar skulu tilkynntar á skrifstofu Strandabyggðar.
Nánari leiðbeiningar varðandi flokkun eru birtar á heimasíðu Strandabyggðar og í 5. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð, nr. 438/2025. Sorphirðudagatal er birt á heimasíðu Strandabyggðar. Fyrir aukahirðingu samkvæmt skráningu þjónustuaðila eru innheimtar 15.000 kr. auk akstursgjalds í dreifbýli samkvæmt gjaldskrá þjónustuaðila.
Tunnugjöld eru innheimt með fasteignagjöldum og er um árlegt gjald að ræða samkvæmt neðangreindum töflum.
Tafla 1. Þéttbýli
| Sorpílátagjald | Stærð | Losun | Ílát < 10 m frá hirðubíl | Ílát > 10 m frá hirðubíl |
| Blandaður úrgangur | 240 l | 4 vikna fresti | 40.000 | 55.000 |
| Blandaður úrgangur | 660 l | 4 vikna fresti | 100.000 | 125.000 |
| Pappír og pappi | 240 l | 6 vikna fresti | 9.000 | 15.000 |
| Pappír og pappi | 660 l | 6 vikna fresti | 25.000 | 40.000 |
| Plastumbúðir | 240 l | 6 vikna fresti | 9.000 | 15.000 |
| Plastumbúðir | 660 l | 6 vikna fresti | 25.000 | 40.000 |
| Lífúrgangur | 5,7 l | vikulega eftir hverfum | 15.000 | |
| Lífúrgangur | 32,6 l | vikulega eftir hverfum | 35.000 |
Tafla 2. Dreifbýli
| Sorpílátagjald | Stærð | Losun | Ílát < 10 m frá hirðubíl | Ílát > 10 m frá hirðubíl |
| Blandaður úrgangur | 240 l | 4 vikna fresti | 40.000 | 55.000 |
| Blandaður úrgangur | 660 l | 4 vikna fresti | 100.000 | 125.000 |
| Pappír og pappi | 240 l/660 l | 12 vikna fresti | 9.000 | 15.000 |
| Plastumbúðir | 240 l/660 l | 12 vikna fresti | 9.000 | 15.000 |
Hægt er að sækja um niðurfellingu á gjaldi vegna lífúrgangs á skrifstofu Strandabyggðar ef notast er við aðrar viðurkenndar leiðir til förgunar lífúrgangs. Í þeim tilfellum verður lífúrgangur ekki sóttur á viðkomandi heimili.
4. gr.
Fyrirtæki, stofnanir og rekstraraðilar geta samið við þar til bæran aðila um að annast sorphirðu á þeirra vegum sem hefur tilskilin leyfi og réttindi til flutnings á úrgangi til förgunarstaðar. Þjónustuaðili Strandabyggðar, sem er Sorpsamlag Strandasýslu, getur tekið að sér að annast sorphirðu fyrir fyrirtæki og stofnanir gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá. Greitt er fyrir gjaldskyldan úrgang á móttökustöð Sorpsamlagsins. Nánari skýringar eru í 7. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð, nr. 438/2025.
- Móttökustöðin er vöktuð með myndavélum. Ef viðkomandi losar úrgang án greiðslu verður innheimt með reikningi á eiganda bifreiðar.
- Óheimilt er að fleygja sorpi og úrgangi á víðavangi og er sveitarfélaginu heimilt að beita viðeigandi viðurlögum.
5. gr.
Gjaldtaka á móttökustöð miðast við þyngd og tegund úrgangsmagns sem skilað er. Innheimt er samkvæmt gjaldskrá þjónustuaðila. Borgað er fyrir það sem hent er.
6. gr.
Sorpeyðingargjald vegna dýraleifa er lagt á alla aðila með dýrahald. Gjaldstofn er reiknaður út frá bústofnsskýrslum Matvælastofnunar:
- Nautgripir, 1.400 kr./grip.
- Sauðfé, 170 kr./grip.
- Hross, 300 kr./grip.
Gjaldið er innheimt með fasteignagjöldum 1. október ár hvert. Dýraleifar eru sóttar haust og vor á auglýstum dögum samkvæmt heimasíðu Strandabyggðar. Bændur tilkynna um dýraleifar til Sorpsamlags Strandasýslu sem heldur utan um skráningu og sækir á auglýstum dögum.
7. gr.
Gjaldskrá þessi, sem var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 10. mars 2026, staðfestist hér með 10. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Strandabyggð, nr. 438/2025, og samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, og ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Gjaldskráin öðlast þegar gildi, um leið fellur gjaldskrá um sorphirðu í Strandabyggð, nr. 1623/2025 úr gildi.
Strandabyggð, 10. mars 2026.
Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 25. mars 2026