Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Stykkishólmur

Málaflokkur

Skipulagsmál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla

Undirritunardagur

16. apríl 2026

Útgáfudagur

4. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 434/2026

16. apríl 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulagsmál í Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjorn Sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkt eftirfarandi skipulagsáætlun:

Hólar 5a, deiliskipulag.

Þann 25. september 2025 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms nýtt deiliskipulag fyrir Hóla 5a. Hólar 5a er 3,2 ha spilda úr landi Hóla sem er í dag skilgreind sem landbúnaðarland. Landnotkun er breytt úr landbúnaði í frístundabyggð með heimild fyrir þrjú frístundahús og eina íbúðarhúsalóð.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Stykkishólmi, 16. apríl 2026.

Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 4. maí 2026

Tengd mál