Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Dýravernd
Undirritunardagur
12. maí 2026
Útgáfudagur
15. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 486/2026
12. maí 2026
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
2. málsl. 1. tölul. verður svohljóðandi: Í þeim tilvikum, þar sem tilraun gengur einungis út á að nota líffæri eða vefi úr dýrum sem voru ræktuð og aflífuð í öðrum tilgangi en tilraunaskyni, er ekki þörf á leyfi frá Matvælastofnun.
Á eftir 2 tölul. bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Í leyfinu skal koma fram starfstöð ef slíkt á við, hver er notandi og hver er ábyrgðarmaður tilraunar sem ábyrgist framkvæmd og að skilyrði leyfisins og reglugerðar þessarar séu uppfyllt.
- Í leyfinu skulu koma fram sérstök skilyrði ef slík eru sett og hvort krafist verði eftirfylgnimats.
Breytast númer annarra töluliða samkvæmt því.
2. gr.
1. tölul. 6. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:
- Notandi eða aðili, sem ber ábyrgð á tilraun, skal leggja fram umsókn um leyfi fyrir tilraun eða breytingu á tilraun. Umsóknin skal innihalda lýsingu á tilrauninni í formi rannsóknaráætlunar. Umsóknin skal einnig innihalda samantekt sem ekki er á tæknimáli, sem uppfyllir skilyrði 7. gr.
3. gr.
7. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:
Samantekt um tilraun, sem ekki er á tæknimáli.
- Samantekt um tilraun, sem ekki er á tæknimáli, skal vera auðskilin almenningi og skal hún að auki innihalda upplýsingar um eftirfarandi:
- markmið tilraunar,
- þann skaða sem reiknað er með að dýrunum verði valdið,
- þann vísindalega- og samfélagslega ávinning sem reiknað er með,
- þann fjölda og þær tegundir dýra sem á að nota,
- hvernig kröfunum um staðgöngu, fækkun og mildun skuli fullnægt.
- hvort áætlað sé að framkvæma eftirfylgnimat eftir að tilraun lýkur
- Samantekt um tilraun skal lögð fram undir nafnleynd og skal ekki innihalda nöfn og heimilisföng notandans né starfsfólks hans. Samantektin skal ekki heldur innihalda upplýsingar sem háðar eru þagnarskyldu.
- Samantektin ásamt mögulegum uppfærslum verður birt í gagnagrunni ESB yfir dýr sem eru notuð í vísindaskyni innan sex mánaða frá leyfisveitingu. Ef framkvæmt er eftirfylgnimat þegar tilraun lýkur skal uppfærð samantekt birt innan sex mánaða eftir að eftirfylgnimati er lokið.
4. gr.
Á eftir 34. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein svohljóðandi:
34. gr. aEftirfylgnimat.
- Í þeim tilvikum þar sem fram kemur í leyfi Matvælastofnunar ákvörðun um að framkvæmt skuli eftirfylgnimat, skulu notendur veita stofnuninni eftirfarandi upplýsingar:
- Hvort markmið tilraunar hafi náðst.
- Hvaða tegundir og fjöldi dýra voru notað.
- Hvaða álagi eða skaða dýrin urðu fyrir.
- Raunverulegan alvarleika tilrauna samkvæmt flokkun í viðauka VII.
- Hvernig kröfunum um staðgöngu, fækkun og mildun var fullnægt.
- Upplýsingarnar skulu sendar Matvælastofnun eigi síðar en 30 dögum eftir að leyfi til tilrauna á dýrum fellur úr gildi.
- Tilraunir sem flokkast sem verulega íþyngjandi, sem og tilraunir þar sem notaðir eru apakettir, skulu ávallt sæta eftirfylgnimati.
5. gr.
Við 35. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Matvælastofnun tekur saman og birtir árlega framangreindar upplýsingar í gagnagrunni ESB yfir dýr sem notuð eru í vísindaskyni.
6. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein, 38. gr., ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
38. gr. innleiðing.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins:
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/63/ESB frá 22. september 2010 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni, sem felld var inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 256/2014, frá 12. desember 2014.
- Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1010 frá 5. júní 2019 um samræmingu á kvöðum um skýrslugjöf á sviði löggjafar í tengslum við umhverfið og um breytingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 166/2006 og (ESB) nr. 995/2010, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, 2004/35/EB, 2007/2/EB, 2009/147/EB og 2010/63/ESB, reglugerðum ráðsins (EB) nr. 338/97 og (EB) nr. 2173/2005 og tilskipun ráðsins 86/278/EBE. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 300/2024 frá 6. desember 2024. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 1045.
7. gr.
Í stað „22. gr.“ í heiti viðauka I við reglugerðina kemur: 21. gr.
8. gr.
Í stað „22. gr.“ í heiti viðauka V við reglugerðina kemur: 23. gr.
9. gr.
Í stað „7. gr.“ í heiti viðauka VI við reglugerðina kemur: 6. gr.
10. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 20. gr. og 6. mgr. 21. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 12. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Svava Pétursdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 15. maí 2026