Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

1. júlí 2026

Útgáfudagur

15. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 808/2026

1. júlí 2026

REGLUR

um breytingu á reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009.

1. gr.

Við reglurnar bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, III, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði reglna þessara skulu þær reglur um námsskipulag og námsframvindu sem giltu um nemendur Hólaskóla – Háskólans á Hólum við stofnun háskólasamstæðunnar 1. júlí 2026, og byggðu á reglum fyrir Háskólann á Hólum nr. 1540/2021, gilda áfram um þá nemendur sem höfðu hafið nám við Hólaskóla – Háskólann á Hólum fyrir 1. júlí 2026 og áttu þá ólokið námi við skólann. Ákvæðið gildir þar til þeir hafa lokið því námi sem þeir höfðu hafið fyrir framangreint tímamark, enda sé námsframvinda þeirra í samræmi við þær reglur um námsframvindu og hámarkstímalengd í námi sem giltu við stofnun háskólasamstæðunnar. Ákvæðið tekur ekki til þeirra sem hefja nám á haustmisseri 2026 eða síðar, þótt þeir hafi sótt um nám eða gengið frá skráningu fyrir 1. júlí 2026.

2. gr.

Reglur þessar eru settar á grundvelli laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 1. júlí 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 15. júlí 2026

Tengd mál