Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
7. nóvember 2016
Útgáfudagur
21. nóvember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 991/2016
7. nóvember 2016
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 962/2013 um sameiginlegar kröfur til notenda loftrýmisins og verklagsreglur vegna notkunar árekstrarvara loftfara.
1. gr.
Eftirfarandi töluliður bætist við 3. gr. reglugerðarinnar:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/583 frá 15. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1332/2011 um sameiginlegar kröfur um notkun loftrýmis og verklagsreglur fyrir árekstrarvara í flugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 156/2016 frá 8. júlí 2016. Reglugerðin er birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins nr. 52 frá 22. september 2016, bls. 644.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 28. gr. e., 28. gr. f og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 7. nóvember 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2016