Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælastofnun

Málaflokkur

Neytendavernd, Afurðarheiti

Undirritunardagur

17. febrúar 2026

Útgáfudagur

10. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 232/2026

17. febrúar 2026

AUGLÝSING

um vernd afurðarheitisins „Íslenskt viskí/viský - Icelandic Whisky/whiskey“ með vísan til landsvæðis.

Matvælastofnun hefur fallist á umsókn Eimverks ehf., um að afurðarheitið „Íslenskt viskí/viský – Icelandic Whisky/whiskey“ verði skráð sem verndað afurðarheiti með vísan til landsvæðis. Skráningin byggist á lögum um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, nr. 130/2014.

Auglýsing þessi um ákvörðun um skráningu afurðarheitis er birt í samræmi við 2. mgr. 16. gr. laga nr. 130/2014. Einnig er afurðarlýsing birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari, sbr. 14. gr. sömu laga.

Selfossi, 17. febrúar 2026.

F.h. Matvælastofnunar,

Þórður Heimir Sveinsson.

B deild — Útgáfudagur: 10. mars 2026

Tengd mál