Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands

Undirritunardagur

26. ágúst 2024

Útgáfudagur

27. ágúst 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 113/2024

26. ágúst 2024

FORSETAÚRSKURÐUR

um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2022, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2022, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr.:

  1. 3. og 4. tölul. falla brott.
  2. Á eftir f-lið 7. tölul. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Þjóðgarðinn á Þingvöllum.
  3. 8. tölul. fellur brott.

2. gr.

Á eftir 4. tölul. 3. gr. koma tveir nýir tölul., sem orðast svo:

  1. Mannréttindi og mannréttindasáttmála.
  2. Jafnréttismál, þar á meðal:

    1. Jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
    2. Stjórnsýslu jafnréttismála.
    3. Jafna meðferð utan vinnumarkaðar.
    4. Jafna meðferð á vinnumarkaði.
    5. Kynrænt sjálfræði.
    6. Jafnréttisstofu.
    7. Kærunefnd jafnréttismála.
    8. Jafnréttissjóð Íslands.
    9. Sérfræðinefnd um breytingar á kynskráningu barna og varanlegar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum barna.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

  1. Á eftir j-lið 2. tölul. kemur nýr stafliður, sem orðast svo: Tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
  2. Á eftir a-lið 3. tölul. kemur nýr stafliður, sem orðast svo: Kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
  3. Á eftir c-lið 8. tölul. kemur nýr stafliður, sem orðast svo: Innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
  4. Orðin „og málefni Ríkiskaupa“ í b-lið 9. tölul. falla brott.

4. gr.

Á eftir a-lið 5. tölul. 5. gr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Gervigreind.

5. gr.

Á eftir a-lið 3. tölul. 7. gr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.

6. gr.

Á eftir h-lið 5. tölul. 8. gr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Afurðasjóð Grindavíkurbæjar.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr.:

  1. G-liður 2. tölul. fellur brott.
  2. L-liður 2. tölul. fellur brott.
  3. Orðið „Íslands“ í m-lið 2. tölul. fellur brott.
  4. D-liður 11. tölul. orðast svo: Loftslags- og orkusjóð.
  5. 12. tölul. fellur brott.
  6. Á eftir k-lið 18. tölul. kemur nýr stafliður, sem orðast svo: Raforkueftirlitið.
  7. L-liður 18. tölul. fellur brott.

8. gr.

Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, öðlast gildi 1. september 2024.

Gjört á Bessastöðum, 26. ágúst 2024.

Halla Tómasdóttir.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.

A deild - Útgáfud.: 27. ágúst 2024

Tengd mál